Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.07.2024, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 03.07.2024, Blaðsíða 10
Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í grindavík tók til starfa 1. júní en þann dag tóku ný lög þar af lútandi gildi á alþingi. Hægt er að nálgast lögin sem eru númer 40, 16. maí 2024, á síðu alþingis; althingi.is en til að koma þessu af lagamáli yfir á mannamál, var formaður framkvæmdanefndarinnar, árni Þór Sigurðsson, tekinn tali. Tilgangur og markmið nefndar- innar er þessi: n Tryggja skilvirka og hagkvæma úrlausn verkefna vegna jarð- hræringa í Grindavíkurbæ, n Hlúa að íbúum Grindavíkur- bæjar og stuðla að farsæld þeirra til framtíðar, n Stuðla að öflugu atvinnulífi í Grindavíkurbæ, n Grindavíkurbær verði öruggt samfélag með trausta innviði og þjónustu sem miðar að þörfum samfélagsins. „Eins og fram kemur í upphafi laganna er tilgangur nefndarinnar fjórþættur. Verkefnið er auðvitað krefjandi og við þrjú sem skipum nefndina komum utan frá má segja, það var skynsamlegt tel ég að fá alls óháðan aðila að þessu veigamikla verkefni. Bæjarstjórn Grindavíkur verður samt áfram starfandi og tekur allar stærri ákvarðanir með okkur. Ég er bara búinn að vera í nokkra daga í starfi og strax degi eftir að fram- kvæmdanefndin hóf störf fengum við risavaxið verkefni í hendurnar, Grindavík var orðin rafmagnslaus og því þurfti auðvitað að kippa strax í liðinn. Það gekk vel að leysa úr því verkefni og svona held ég að við munum fá verkefnin upp í hendurnar og þurfum einfald- lega að bregðast við hverju og einu þeirra eins vel og við getum. Við erum hægt og örugglega að fá til- finningu fyrir verkefninu, höfum átt tvo góða fundi með bæjarstjórn- inni og höfum fundað með þeim ráðuneytum sem koma að málinu, með almannavörnum og Veðurstof- unni. Eins höfum við átt fundi með HS Veitum, lögreglunni, Vegagerð- inni, fulltrúum atvinnulífsins og verkalýðshreyfingarinnar svo það hefur verið í nógu að snúast fyrir okkur til þessa. Það var kominn tími til að færa öll þessi stóru verkefni sem voru dreifð út um allt, undir einn og sama hattinn. Það var leitað til mín snemma í maí að taka að mér formennsku í þessari nefnd og væntanlega fékk ég kallið vegna reynslu minnar úr sveitar- og borgarstjórnarmálum og eins var ég í stjórn sambands sveitarfélaga. Ég var búinn að vera sendiherra í Danmörku en ákvað að svara kallinu og takast á við þetta spennandi og krefjandi verkefni. Með mér í nefndinni eru Gunnar Einarsson, fyrrum bæjar- stjóri í Garðabæ og Guðný Sverris- dóttir sem var lengi sveitarstjóri í Grenivík.“ Þjónusta við alla Grindvíkinga Þegar nefndin var kynnt í fjöl- miðlum í maí kom fram eitt af hlutverkum hennar, að hlúa að þeim Grindvíkingum sem hafa flutt í burtu. Blaðamanni fannst áhugavert að þetta sé eitt af verk- efnum nefndarinnar því venjan er að þegar fólk flytur annað og þá oftast lögheimili sitt í leiðinni, að þá þiggur það viðkomandi þjón- ustu í því sveitarfélagi þangað sem það flytur. „Eitt af því fyrsta sem við munum gera er að koma á fót þjón- ustuteymi fyrir íbúa Grindavíkur- bæjar, þ.e. á sviði félagsþjónustu, skólamála, frístundaþjónustu, barnaverndarmála, málefni eldri borgara, fatlaðra og jafnvel úrræði á sviði vinnumarkaðsmála. Ég skil hugsunina með að fólk sem hefur flutt lögheimili sitt, sæki eftir þessari þjónustu sem ég taldi upp, hjá því sveitarfélagi sem það flytur til en hafa ber í huga að þannig er staðan í fæstum tilvikum, fólk er nauðbeygt að flytja í burtu frá Grindavík og við teljum nauðsyn- legt að halda utan um þennan hóp Grindvíkinga. Án þess að búið sé að gera könnun á því þá er það til- finning okkar að flestir vilji snúa aftur til baka, þess vegna teljum við þetta góða leið. Hafa ber í huga að þetta er tímabundið verkefni, við erum ráðin fram að næstu sveitar- stjórnarkosningum árið 2026 og á þeim tíma verður mjög gott að geta haldið utan um Grindvíkinga. Koma að áhættumati í Grindavík Við munum koma að áhættumati í Grindavík í samvinnu við ríkis- lögreglustjóra og koma að fram- kvæmdum í bænum, þá bæði hvað varðar innviði og viðgerðir á götum og stígum. Eins munum við annast framkvæmd aðgangsstýringar til Grindavíkurbæjar, við munum koma að upplýsingamiðlun svo það má sjá á upptalningunni að þetta er veigamikið verkefni.“ Árni Þór hafði heyrt af hinum svokallaða „Aftur heim“-hópi og hann segir að nefndin ætli sér að þjóna báðum hópum, þeim Grindvíkingum sem ætla að bíða storminn af sér og treysta sér ekki til að flytja strax heim, og þeim sem eru nú þegar fluttir heim eða eru að undirbúa flutning á næstunni. „Við munum ekki skilja á milli Grindvíkinga, við erum komin til að þjóna þeim öllum, hvort sem viðkomandi er fluttur í Grindavík og vill sjá uppbyggingu hefjast strax í bænum, eða hvort viðkom- andi þurfi félagsþjónustu t.d. eins og ég nefndi. Það er mín tilfinning að flestir vilji gjarnan snúa „aftur heim“ og því munum við sinna öllum Grindvíkingum af bestu getu. Höfum heyrt af óánægju Grindvíkinga Hvenær byrjað verður að laga bæinn treysti ég mér ekki til að segja til um á þessum tímapunkti, við erum svo nýlega tekin til starfa. Ég hef farið í eina vettvangsferð í bæinn eftir að nefndin tók til starfa og við þurfum að átta okkur á umfanginu áður en við tökum ákvarðanir. Eins vil ég ekki tjá mig um lokunarpóstana, hvaða álit ég hafi á þeim. Ég vil setja mig vel inn í starfið áður en ég tek stórar ákvarðanir en við munum reyna að vinna sem mest í tengslum við Grindavík, við teljum það nauð- synlegt svo við séum betur með puttann á púlsinum. Við höfum heyrt af óánægju Grindvíkinga varðandi Þórkötlu, við munum setja okkur í samband við for- svarsfólk félagsins og ég er sann- færður um að mörg af þessum atriðum sem Grindvíkingar eru ósáttir við, stafa af samskiptaleysi eða skorti á upplýsingum og slíkt er auðvelt að laga. Ég er bjartsýnn á framtíð Grindavíkur, hef fulla trú á að þessi nýja framkvæmdanefnd muni hjálpa Grindvíkingum að ná vopnum sínum á ný og bærinn byggist upp sem fyrst svo fremi að náttúruöflin setji ekki fleiri strik í reikninginn. Ég hlakka virkilega til samstarfsins,“ sagði Árni Þór að lokum. Hvað er framkvæmdanefnd Grindavíkur að fara gera? Framkvæmdanefndin mun sinna öllum Grindvíkingum GRINDAVÍK Sigurbjörn Daði Dagbjartsson sigurbjorn@vf.is LJÓSMYND: STJÓRNARRÁÐIÐ Árni Þór Sigurðsson, fremstur á mynd, í Grindavíkurheimsókn á dögunum. Drengur fæddur 26. júní á ljósmæðravakt Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Þyngd: 3.616 grömm. Lengd: 52 sentimetrar. Foreldrar heita Katla Rún Garðarsdóttir og Halldór Garðar Hermannsson. Þau eru búsett í Reykjanesbæ. Ljósmóðir: Telma Ýr Sigurðardóttir. Stúlka fædd 29. júní á ljósmæðravakt Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Þyngd 3.476 grömm. Lengd 50,5 sentimetrar. Foreldrar heita Agnieszka Monica Kredens og Marcin Mikolajczyk. Þau eru búsett í Reykjanesbæ. Ljósmóðir: Telma Ýr Sigurðardóttir. N Ý B U R A R Stefnubreyting á fyrirkomulagi leikskóla Reykjanesbæjar Tillögur starfshóps um bættar starfsaðstæður í leikskólum voru til umræðu á síðasta fundi menntaráðs Reykjanesbæjar þann 14. júní. Á fundi menntaráðs 24. maí síðastliðinn voru tillögur starfshóps um bættar starfsaðstæður í leikskólum Reykjanesbæjar lagðar fram og var afgreiðslu málsins frestað. Tillögurnar þrjár eru lagðar fram með það í huga að bæta starfsað- stæður á leikskólum vegna stytt- ingar vinnuvikunnar og mönn- unar í nýjum leikskólum í Reykja- nesbæ. Ljóst er að stytting vinnu- vikunnar er orðin umfangsmikill hluti af störfum vinnandi fólks í landinu enda bundin í kjara- samninga. Í starfshópnum sem vann að tillögunum voru leikskólafull- trúi, sviðsstjóri menntasviðs, mannauðsstjóri, kjörnir fulltrúar í menntaráði, fulltrúi leikskóla- stjóra, fulltrúi leikskólakennara, fulltrúi starfsfólks leikskóla og fulltrúi foreldra leikskólabarna. Tillögurnar fela í sér stefnu- breytingu á fyrirkomulagi leik- skóla Reykjanesbæjar. Lagt er til að fjölga frídögum leikskóla, að bjóða foreldrum að skrá barn sitt í færri klukkustundir í leik- skólann gegn lægra gjaldi og að veita afslátt af leikskólagjöldum til leikskólakennara gegn ákveðnu vinnuframlagi. Svipaðar breytingar hafa verið gerðar í öðrum sveitarfélögum til að laða fólk til starfa í leikskólum og bregðast við áhrifum styttingar vinnuvikunnar. Eftir umfjöllun um tillögurnar á fundi menntaráðs þann 24. maí 2024 var málinu frestað. Í fram- haldi voru tillögurnar ræddar í bæjarstjórn Reykjanesbæjar sem hefur málið nú til skoðunar. Vegna sumarleyfis bæjarstjórnar er það í höndum bæjarráðs að taka ákvörðun um tillögurnar í samráði við menntaráð Reykja- nesbæjar. Tekið skal fram að tillagan um sex klukkustunda gjaldfrjálsan leikskóla mun þýða lækkun á tekjum til Reykjanesbæjar og þarf bæjarráð því sérstaklega að fjalla um þá tillögu. Menntaráð mun funda með bæjarráði ásamt sviðsstjóra menntasviðs á næstu vikum til að ræða málið nánar. Auk þess verður reynsla annarra sveitar- félaga af samskonar breytingum í leikskólamálum rýnd. Mikilvægt er að vinna áfram með tillögur starfshópsins af fagmennsku og ábyrgð. Menntaráð þakkar starfs- hópnum um bættar starfsað- stæður í leikskólum Reykja- nesbæjar fyrir gott og faglegt starf, segir í fundargerð þar sem menntaráð vísar tillögum starfs- hópsins til bæjarráðs til frekari umræðu. 10 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.