Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.07.2024, Page 6

Víkurfréttir - 03.07.2024, Page 6
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319. Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmói 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421-0000. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is. Blaðamenn: Jóhann Páll Kristbjörnsson og Sigurbjörn Daði Dagbjartsson. Útlit og umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson og Hilmar Bragi Bárðarson. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is Rétturinn Ljúengur heimilismatur í hádeginu Opið: 11-13:30 alla virka daga   Bílaviðgerðir Smurþjónusta    Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is Heyrn // Hlíðasmára 19 // Kópavogur // heyrn@heyrn.is // HEYRNARTÆKI // HEYRNARGREINING // RÁÐGJÖF Heyrðu umskiptin, fáðu heyrnartæki til reynslu HEYRN.ISvf is Þú finnur allar nýjustu fréttirnar frá Suðurnesjum á SUMARFJÖR SÓLARLÖND GAMAN DRAUMALANDIÐ EÐLA MAMMA FERÐAFÉLAGAR AUÐN ÁSTFANGIN LANGAR SUMARNÓTT GLEÐI SÆTINDI POTTUR FJALLVEGUR RÓSIR ÚTHALD EIGN LANDRIS SÓLBAÐ I S U K N A S A A S A O Ð R S I I S G D L R Ð Ö F M S R Ó A Ó G Ð N T D G R Ú A M Ð G Ð L N T A Æ D G K M J R A Ó B A N T M Ð U M P H K T K H H Ú A I F T R U Ú P Ó R T O D T T A G R I T L É N U Í B D M S Æ I Ó G Ó S U F N A Ó N E H T Ó M Ð F I A S A R A L R A T M I R V Á I A A L D L J A R L S F N Ú N E A I G Ó U I T N A G I G B A A P Ó D L U S N R U L L Ö I S H R K É É T S M A E U L G T D A Ð Ó F A E É É G R R A L F F L S A R E O J U V S L A G B ORÐALEIT Finndu tuttugu vel falin orð Gangi þér vel! Þú finnur allt það nýjasta í sjónvarpi frá Suðurnesjum á vf.is Lumar þú á ábendingu um áhugavert efni í Suðurnesjamagasín? Sendu okkur línu á vf@vf.is Ufsakvótinn er nokkuð stór þetta fiskveiðitímabil Þá er júnímánuður liðinn og það þýðir að tveir mánuðir eru liðnir af strandveiðitímabilinu. Miðað við hversu lítill þorsk- kvóti er eftir þá má búast við því að veiðar stöðvist um miðjan júlí eða jafnvel fyrr. Mun þá verða steindautt í höfnunum á Suður- nesjunum? Nei, í raun og veru ekki því undanfarin ár, og þá í júlí og ágúst, hefur töluverður fjöldi af færabátum komið til Sandgerðis og þessi bátafloti hefur verið að eltast við ufsann við Eldey og þar í kring. Það er nefnilega þannig að ufsa- kvótinn þetta fiskveiðitímabil er nokkuð stór og mikill því alls var ufsakvótinn 53 þúsund tonn, síðan var ufsakvóti færður frá fiskveiðiár- unum 2022–2023 og samtals var kvótinn því 68 þúsund tonn. Núna hafa aðeins verið veidd 28 þúsund tonn og það þýðir að eftir eru 40 þúsund tonn af ufsa óveidd. Þegar svona stutt er í nýtt fisk- veiðiár þá er leiguverð á ufsakvóta frekar lágt og verð á markaði nokkuð gott svo það er fengur fyrir sjómenn að ná sér í ufsakvóta og eltast við þennan fisk. Þannig að já, þó svo að strandveiðitímabilið muni klárast þá mun samt verða líf í höfnunum og þá mest í Sand- gerði. Nú þegar eru nokkrir bátar á færaveiðum sem eru ekki á strand- veiðum, til að mynda Ragnar Al- freðs GK sem hefur landað 7,3 tonnum í tveimur róðrum og Bergur Vigfús GK sem hefur landað 5,8 tonnum í tveimur róðrum. Bergur Vigfús GK var búinn að vera uppi í slippnum í Njarðvík í um þrjú ár og því kærkomið að þessi bátur sé kominn á flot aftur og farinn að veiða. Annars fyrir utan færabátana þá er enginn línubátur fyrir sunnan að veiða nema nokkrir stærri bátar sem hafa verið að eltast við löngu og keilu. Sighvatur er búinn að landa 260 tonnum í Grindavík í þremur róðrum og af þeim afla er 47 tonn af löngu, 81 tonn af hlýra og 50 tonn af keilu. Valdimar GK kom með 48 tonn til Grindavíkur og Páll Jónsson GK kom með 159 tonn í tveimur róðrum til Grinda- víkur, af þeim afla voru 49 tonn af keilu. Af minni bátunum þá byrjuðu Sævík GK og Daðey GK veiðar í júní fyrir sunnan en báðir eru komnir í slipp. Særif SH frá Rifi er búinn að vera á veiðum á Selvogs- banka og hefur landað í Þorláks- höfn. Báturinn kom þó til Sand- gerðis með 8,8 tonn og af þeim afla var langa 3,8 tonn og ýsa 2,5 tonn. Aðalbjörg RE er eini dragnóta- báturinn á Suðurnesjum sem hefur róið allan júní og gengið nokkuð vel. Er báturinn kominn með 94 tonn í tíu róðrum. Það sem vekur athygli við þennan afla er að það eru aðeins 10 tonn af þorski í afl- anum, mest af aflanum hjá bátnum er koli. Rækjuveiðarnar hjá Nesfisk- stogurunum hafa gengið ágætlega, þeir eru reyndar ekki að veiða með skilju og því er töluvert um fisk í aflanum hjá þeim. Sóley Sigur- jóns GK landaði í júní 131 tonni í þremur róðrum og af því var 58 tonn rækja. Pálína Þórunn GK var með 96 tonn í þremur róðrum og af þeim afla þá var 31 tonn af rækju. Rækja fer til vinnslu á Hvamms- tanga en mestöllum fiskinum er ekið til Sandgerðis og Garðs til vinnslu. AFLAFRÉTTIR Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is Bókað um ný stöðugildi í Stapasafni Ný stöðugildi Bókasafns Reykja- nesbæjar í Stapasafni voru til afgreiðslu á síðasta fundi bæjar- ráðs Reykjanesbæjar. Stefanía Gunnarsdóttir, forstöðumaður bókasafnsins, mætti á fundinn. Lagt var fram erindi um að auka stöðugildi við Stapasafn sem mun opna sem útibú og sam- steypusafn í Stapaskóla í haust 2024. Bókun frá Margréti A. Sanders (D): „Sjálfstæðisflokkurinn telur mikilvægt að sinna Innri-Njarð- víkurhverfi eins og öðrum hverfum vel enda stækkandi hverfi með fjölda íbúa en undrast að öll upp- bygging félags- og menningarstarfs í Reykjanesbæ sé utan um bóka- söfn í stað þess að horfa til upp- byggingar í heild sinni.“ Bókun frá Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur (B), Bjarna Páli Tryggvasyni (B), Guðnýju Birnu Guðmundsdóttur (S) og Valgerði Björk Pálsdóttur (Y): „Mikil gróska er í gangi og verður áfram í kringum Stapaskóla þar sem opnað verður íþróttahús síðar í sumar og sundlaug síðar í vetur. Samhliða því stendur til að bóka- safnið í Stapaskóla verði opið fyrir almenning um áramót. Verður í kjölfarið mikil upplyfting þjónustu við íbúa Reykjanesbæjar og þá sér- staklega í Innri-Njarðvíkurhverfi bæjarins. Við fögnum þessari upp- byggingu og bættri þjónustu við íbúa.“ Bæjarráð áætlar að Stapasafn opni fyrir íbúa um áramót og vísar ósk um stöðugildi til fjárhagsáætl- unar 2025. Ný vefsíða Byggðasafns Reykjanesbæjar Byggðasafn Reykjanesbæjar hefur tekið í notkun nýja og bætta vefsíðu. Á síðunni má finna upplýsingar um þær sýningar sem eru í gangi hverju sinni auk almennra upplýsinga um starfsemi byggðasafnsins. Vefslóð síðunnar er: www.byggdasafnreykjanesbaejar.is Frístundaakstri haldið áfram í Suðurnesjabæ Bæjarráð Suðurnesjabæjar hefur sam- þykkt samhljóða að frístundaakstri á milli byggðarkjarna í Suðurnesjabæ verði framhaldið og hefjist að nýju í haust. Vinna við fjölgun búsetuúrræða fyrir eldri borgara verði hafin Minnisblað um þjónustu og þjónustu- þörf aldraðra var lagt fram til kynningar á síðasta fundi öldrunarráðs Suðurnesja- bæjar og Sveitarfélagsins Voga. „Öldungaráð vill vekja athygli á biðlista íbúða fyrir eldri borgara Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga. Hvetur öldung- aráð bæjarstjórnir bæjarfélaganna til að hefja vinnu við fjölgun búsetuúrræðis fyrir eldri borgara í bæjarfélögunum,“ segir í af- greiðslu ráðsins. BREYTTIR ÚTGÁFUDAGAR Í SUMAR Víkurfréttir munu koma út hálfsmánaðarlega í stað vikulega næstu sex vikurnar. Næstu blöð koma út 17. júlí, 31. júlí og 14. ágúst en eftir það verður útgáfan vikuleg. Víkurfréttir standa samt vaktina á vf.is þar sem hægt er að nálgast nýtt efni og fréttir daglega. 17. JÚLÍ Miðvikudagur Næsti úrgáfudagur 6 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.