Víkurfréttir - 03.07.2024, Síða 15
Heiður Björk Friðbjörnsdóttir og Helgi Runólfsson, klúbbmeistarar GVS 2024.
Heiður og Helgi vörðu
klúbbmeistaratitlana
Meistaramóti Golfklúbbs Vatnsleysustrandar (GVS) lauk á Kálfa-
tjarnarvelli á laugardag en það hófst miðvikudaginn 26. júní. Mótið
heppnaðist einstaklega vel og veðrið lék við kylfinga á lokadegi en
smá gola var á öðrum og þriðja degi.
Klúbbmeistarar GVS árið 2024 eru Heiður Björk Friðbjörnsdóttir og
Helgi Runólfsson en bæði voru þau ríkjandi klúbbmeistarar.
Meistaraflokkur karla
1. sæti: Helgi Runólfsson,
287 högg (73-73-72-69)
2. sæti: Jóhann Hrafn Sigurjóns-
son, 307 högg (74-76-81-76)
3. sæti: Ívar Örn Magnússon,
310 högg (73-79-77-81)
1. flokkur karla
1. sæti: Birgir Heiðar Þórisson,
376 högg (88-96-98-94)
2. sæti: Valgeir Helgason,
390 högg (93-101-100-96)
3. sæti: Sigurður Jón Sveinsson,
394 högg (91-99-99-105)
2. flokkur karla
1. sæti: Hafliði Sævarsson,
389 högg (91-102-103-93)
2. sæti: Hilmar E Sveinbjörnsson,
393 högg (101-97-97-98)
3.sæti: Orri Hjörvarsson,
396 högg (90-95-111-100)
Öldungaflokkur
1. sæti: Húbert Ágústsson,
349 högg (90-84-90-85)
2. sæti: Reynir Ámundason,
356 högg (86-89-87-94)
3. sæti: Ríkharður Sveinn Braga-
son, 360 högg (84-93-93-90)
Meistaraflokkur kvenna
1. sæti: Heiður Björk Friðbjörns-
dóttir, 337 högg (79-87-85-86)
2. sæti: Oddný Þóra Baldvinsdóttir,
385 högg (99-109-89-88)
1. flokkur kvenna
1. sæti: Guðrún Egilsdóttir,
386 högg (94-101-97-94)
2. sæti: Agnese Bartusevica,
396 högg (89-115-93-99)
3. sæti: Hrefna Halldórsdóttir,
406 högg (97-105-106-98)
Opinn flokkur punktakeppni
1. sæti: Natalía Ríkharðsdóttir,
83 punktar (22-27-34)
2. sæti: Agnes Kragh Hansdóttir,
83 punktar (26-29-28)
3. sæti: Páll Skúlason,
72 punktar (27-22-23)
Störf í boði
hjá Reykjanesbæ
Störf í leik- og grunnskólum
Akurskóli - Kennari eða sérkennari í stoðþjónustu
Akurskóli - Kennari á unglingastig
Myllubakkaskóli - Myndmenntakennari
Önnur störf
Fjörheimar félagsmiðstöð - Frístundaleiðbeinandi
Björgin Geðræktarmiðstöð Suðurnesja - Ráðgjafi
Viltu starfa hjá Reykjanesbæ? Almenn umsókn
Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef
Reykjanesbæjar. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst
störf. Hægt er að notast við QR kóða til að fara beint inn á vefinn.
Systurnar sáu um Selfoss
Lengjudeild kvenna:
Grindavík vann Selfoss með
tveimur mörkum gegn einu í
níundu umferð Lengjudeildar
kvenna í knattspyrnu.
Það var Ása Björg Einarsdóttir
sem kom Grindavík yfir snemma
leiks (6’) en Selfyssingar jöfnuðu
um tíu mínútum síðar (17’).
Staðan jöfn í hálfleik en eftir um
tíu mínútna leik í seinni hálfleik
skoraði Dröfn Einarsdóttir, systir
Ásu, og tryggði Grindavík sigurinn.
Eftir sigurinn situr Grindavík
í fjórða sæti Lengjudeildarinnar
með þrettán stig eftir níu leiki.
Lengjudeild karla:
Suðurnesjaliðin riðu ekki feitum
hesti frá viðureignum sínum í
tíundu umferð Lengjudeildar
karla, öll töpuðu þau sínum
leikjum.
Verstu útreiðina fengu Keflavík
og Njarðvík en hvort lið fékk á sig
fimm mörk. Eftir markalausan
fyrri hálfleik í Eyjum skoaði ÍBV
f imm mörk gegn engu marki
Keflavíkur. Njarðvík lenti tveimur
mörkum undir í sínum leik gegn
Aftureldingu en Tómas Bjarki
Jónsson minnkaði muninn fyrir
hálfleik (35’).
Njarðvíkingar jöfnuðu leikinn
í seinni hálfleik með glæsimarki
Oumar Diouck (70’) en þrjú mörk
frá gestunum gerði út um leikinn.
Grindavík tapaði fyrir Þrótti
sem kom sér úr neðsta sætinu fyrir
vikið. Aðeins eitt mark var skorað
og það kom í lokin á fyrri hálfleik.
Njarðvík missti efsta sætið til
Fjölnis en er í öðru sæti, þremur
stigum frá toppnum. Grindavík
er í fimmta sæti en á leik til góða
og gæti komist upp að hlið Eyja-
manna sem eru í þriðja sæti. Kefl-
víkingar eru í áttunda sæti, aðeins
tveimur stigum fyrir ofan fallsæti.
Knattspyrnusamantekt
Tómas Bjarki Jónsson fagnar marki
sínu gegn Aftureldingu. VF/JPK
Dröfn og Ása Björg Einarsdætur,
markaskorarar Grindavíkur.
Grindavíkingar fagna sigurmarki Drafnar.
Myndir/Petra Rós Ólafsdóttir
víkurFrÉttir á SuðurNESjuM // 15