Upp í vindinn - 01.05.2004, Blaðsíða 31
...upp í vindinn
i
notaðar í styrkingar jafnt í lóðrétta stoð-
veggi þar sem þær eru tengdar við fram-
hlið og í fláastyrkingar. Eru á margan hátt
heppilegar þar sem auðvellt er að tengja
þær við framhliðina. Grindur ná mikilli
festu þar sem steinar krækjast í götin (e.
interlocking effect).
• Jarðhólf (e. geocells): Gerð úr plastefn-
um sem mynda hólf. Notað í styrkingar
bóeði til að styrkja fláa og einnig til að
reisa stoðveggi þá með jarðgrindum ef
hseð veggja er mikil. Jarðhólf eru notuð
við byggingu snjóflóðavarnargarða á
Siglufirði. Þar eru hólfin 15 sm há og er
raðað upp til að mynda 4,0 - 5.5 m háa
stoðveggi efst í görðunum.
• Samsetningar (e. geocomposites): Sam-
bland úr öðrum flokkum, t.d. dúkur og
net eða grind í einu og sama stykkinu.
Samsetningar eru oft notaðar til styrk-
ingar þar sem drenera þarf vatn úr
styrktu fyllingunni. Samsetningar hafa
þannig fjölbreyttara hlutverk.
• Ræmur og stangir (e. stríps and bars):
Ræmurnar eru lagðar í fyllingu og ná
festu með núningi við fyllingarefnið. Á
ræmurnar eru líka settar ribbur til að
auka enn núninginn við fyllinguna. Ræm-
urnar geta verið bæði úr stáli eða plasti.
Þær eru eingöngu notaðar til að byggja
stoðveggi með mismunandi framhlið.
Stangir eru notaðar með akkerum eins
tíðkast oft í hafnargerð.
í framhliðum stoðveggja og fláa sem
gerð eru úr styrktum jarðvegi eru ýmsar
lausnir mögulegar. Mikil þróun hefur verið á
síðustu árum í þessum efnum. Helstu val-
möguleikar í framhliðinni eru eftirfarandi:
• Forsteyptar einingar: Einingar til að
hlaða upp sem tengjast við styrkingarnar
í fyllingunni. Einingar eru mun efnisminni
en ef veggurinn bæri álagið einn. Miklir
valmöguleikar í útliti og áferð.
• Grindur: Grindurnar eru úr teinum með
ca. 100 mm möskvum og flatjárn nær ut-
an um þær og tengir þær við ræmur inni
í fyllingunni. Allt stál með þykkri galvan-
húðun. Steinarnir næst grindunum eru
sérvaldir 100 - 200 mm. Býður upp á
náttúrulegra útlit framhliðar. Svona kerfi
er notað í snjóflóðavarnarmannvirkjum í
Neskaupstað.
• Körfur (e. gabions): Tilbúnar körfur úr
stálneti eða grindum sem fylltar eru með
sérvöldu grjóti og þeim hlaðið hverri ofan
á aðra til að mynda vegg. Stálnetið er oft-
ast um 3 mm þykkt og hægt að fá það
með PVC húðun. Sérvaldir steinar í kist-
unum. Aftan úr körfunum gengur oftast
net eða jarðgrind, sem tengist í fyNing-
una. Býður einnig upp á náttúrulegt útlit
því steinarnir eru mun meira áberandi
heldur en netið í körfunum. Vegagerðin
hefur nýtt slíkar kistur meðfram veginum
á Óshlíð til að stöðva grjót úr hlíðinni og
hindra að það lendi á veginum. Snjó-
flóðavörn ofan við Sorpþrennslustöö ísa-
fjarðarbæjar er einnig reist með slíkri
tækni.
• Dúkar: Mögulegt er að láta dúka sem
notaðir eru sem styrking í fyllingunni
einnig mynda framhliðina. Þetta er helst
kostur til bráðabirgöa þar sem dúkarnir
eru þá óvarðir. Þó er unnt að verja þá
með sprautusteypu eða öðru efni. Sú út-
færsla hefur verið notuð erlendis að nota
stór vörubfladekk til að verja framhliðina
en það er ekki raunhæfur kostur hérlend-
is þar sem flytja þyrfti inn dekkin.
• Jarðhólf: Jarðhólfin mynda framhliðina.
Komið er fyrir gróöurmold í fremstu hólf-
unum þ.a. möguleiki sé á að framhliðin
grói upp. Efni verður að hafa mótstöðu
gagnvart útfjólubláu Ijósi.
Kostir og gallar styrkts jarðvegs
Hér verður farið yfir þá kosti og galla sem
fylgja notkun styrkts jarövegs í stað hefð-
bundins stoðveggjar. Ekki er um tæmandi
lista að ræða.
Helstu kostir við notkun styrktsjarðvegs:
• Meðfærilegt kerfi: Styrktur jarðvegur
býður upp á mikinn sveigjanleika í upp-
setningu og jafnvel síðari viðbótum.
Veggurinn er byggður upp jafnóðum og
fyllingin er lögð út og þjöppuð. Fyrirferða-
mikill og tímafrekur mótauppsláttur er
óþarfur. Dæmi eru um að slíkt mannvirki
hafi verið tekið niður og fært.
Mynd 3: Virkni jarðgrinda
31