Mímir - 01.03.1967, Blaðsíða 6
ig er bent á, að ákvæðið nái einungis til þeirra
stúdenta, er stundi nám skv. eldri reglugerð.
Tekið er fram, að deildin hafi ekki talið sér fært
að fara fram á breytingu á reglugerðarákvæðum,
er enn hafi ekki komið til framkvæmda. A fundi
í Mími 8. febr. s. 1. var rætt um málið. Kom fram
almenn ánægja félagsmanna með þessa breyt-
ingu.
Nú mun lauslega fjallað um efni viðbótar-
ákvæðisins, en það er yfirleitt það skýrt, að fátt
getur orkað tvímælis um inntak þess. Þó skal
bent á, að hér er að formi til um heimildar-
ákvæði að ræða. Því þarf að sækja um það sér-
staklega til deildarinnar að fá að þreyta prófið í
áföngum. Hins vegar má telja víst, að slíkri um-
sókn yrði að jafnaði svarað játandi. Athyglis-
vert er, hve tímatakmörkunin milli fyrsta og
síðasta áfanga er rúm, og hefur í þessu tilliti ver-
ið gengið lengra til móts við stúdenta en farið
var fram á. Hins vegar er það nokkuð miður, að
ákvæðið nær einungis til þeirra, er stunda nám
skv. eldri reglugerð. Þó þykir mér sennilegt, að
unnt yrði að vinna að því, að slík tilhögun næði
einnig til annarra, a. m. k. ef tilhögun þessi þykir
gefa góða raun.
Að síðusm skal það ítrekað, hversu mikla
framför hér er um að ræða, og skal það metið að
verðleikum. Astæða er til að hvetja stúdenta,
er stunda nám skv. eldri reglugerð, til þess að
íhuga gaumgæfilega efni viðbótarákvæðisins og
skipuleggja nám sitt síðan í samræmi við þessar
breyttu aðstæður.
Er stœrsta og fullkomnasta samkomuhús landsins.
Kvikmyndahús
og
hljómleikasalur
Háskólabló er eign Sáttmálasjóðs, og rennur allur ágóði til
menningarstarfsemi í landinu.
6