Mímir - 01.03.1967, Blaðsíða 26

Mímir - 01.03.1967, Blaðsíða 26
álengdar og glott við tönn þegar hirðgæðing- arnir þyrptust um kónginn tii að fá sem stærsta sopa úr ölkeri hans. Islendingnum fljúga í hug grísir föður síns. Hann þarf ekki að betla mjöð af kóngi, heldur færir honum full þess mjaðar sem aldrei fyrnist og seint er oflaunaður. Þannig eru þessar gátur, sem þó fjalla um hversdagsleg og lítilmótleg efni, í senn hnitmið- aðar og margbreytilegar. Aldir hafa liðið síðan þær voru ortar, en þær eru lifandi kveðskapur enn í dag. Um gáturnar sjálfar má segja það sama og um umgerð þáttarins: erlendur og íslenzkur efniviður er unninn á þann hátt að úr verður íslenzkur kjörgripur. Fjórðungur gátnanna a. m. k. á sér erlendar hliðstæður, þótt ekki sé ætíð víst að um beint samband sé að ræða. Við ber að hliðstæðurnar ná einnig til formsins, og þarf þá ekki frekari vitna við. Meira en helmingur þeirra er þó vafalaust alíslenzkur, og allar eru þær steyptar í íslenzkt mót. Menn hafa bollalagt talsvert um hvernig gát- ur Gestumblinda hafi fengið þetta íslenzka mót. Ýmsum hefur dottið í hug að höfundur þáttar- ins hafi snúið gátunum í Ijóð, en aðrir halda að þær séu samsafn úr ýmsum áttum. Þá hafa menn spurt hvort þær séu verk skálda eða alþýðan hafi smám saman mótað þær að smekk sínum. Ekki eru til einhlít svör við þessum spurningum. Hafi höfundur ort einhverjar af gátunum, hefur það áreiðanlega ekki verið nema lítill hluti þeirra, því að hann ræður sumar rangt og umgerð hans fellur misvel að þeim. Allmikill hluti ljóðahátt- argátnanna er þó svo sérstæður að stíl og brag að bein tengsl hljóta að vera á milli hvort sem skáldið er eitt eða fleiri. A Islandi hefur aldrei tíðkazt að greina milli skálda og alþýðu, en óhugsandi er að nokkur af gátum Gestumblinda hafi orðið til fyrir einhvers konar tilviljun. Næstum í hverri einustu gátu eru augljós listamannstök. Gátur Gestumblinda verða aldrei taldar með risháum eða djúpsæjum listaverkum. En þær skipa sinn sess með prýði og auka á fjölbreytni fornbókmenntanna; sýna að einnig á þessu sviði stóðu forfeður okkar jafnfætis eða framar evr- ópskum samtímamönnum sínum. ÍSLENZK ÞJÓÐFRÆÐI: KVÆÐI OG DANSLEIKIR Jón Samsonarson ÍSLENZKIR MÁLSHÆTTIR Bjarni Vilhjólmsson og Óskar Halldórsson ÍSLENZKAR BÓKMENNTIR í FORNÖLD Einar Ól. Sveinsson ÞÆTTIR UM ÍSLENZKT MÁL Halldór Halldórsson annaðist ritstjórn ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ 26

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.