Mímir - 01.03.1967, Blaðsíða 11

Mímir - 01.03.1967, Blaðsíða 11
Noregs árið 1814. Með þessu fellur stjórnin að fyrra bragði frá kröfu sinni til þessara landa í þeirri von, að það geri Dani örlitlu vægari í skuldaskiptunum. Karl Jóhann kaus að fara aðra leið og vafa- laust vænlegri til árangurs. I janúar 1819 sendi hann fulltrúa sínum í samningunum fyrirmæli um að krefjast þess, að Noregur fengi Færeyjar, Island og Grænland. Þó skyldi fallið frá þessari kröfu, ef Danir féllust á tilboð hans að öðru leyti. Það er því enginn grundvallarmunur á stefnu Karls Jóhanns og norsku stjórnarinnar. Hann vill aðeins halda kröfunni til þess að hafa eitthvað, sem auðvelt væri að falla frá á síðustu stundu. Þegar hér var komið sögu, var Norðmaður- inn Paul Christian Holst fulltrúi Norðmanna í samningunum. Hann fær ekki orð fyrir að hafa verið mikill stjórnmálamaður, og hann virðist ekki hafa skilið þessa aðferð Karls Jóhanns. Holst mun hafa þótt krafan um hjálendurnar svo fráleit, eftir það sem á undan var gengið, að hann bar hana ekki fram fyrr en eftir að Karl Jóhann hafði ítrekað fyrirmæli sín, og þá á þann hátt, að það varð gjörsamlega máttlaust. Þess var ekki langt að bíða, að Karl Jóhann félli líka frá kröfunni um hjálendur Noregs. Stórveldin gerðu honum ókleift að halda áfram þófinu um skuldaskiptin, og 1. september 1819 var undirskrifaður samningur milli konungs Noregs og Svíþjóðar annars vegar og Danakon- ungs hins vegar, þar sem kveðið er á um hlut- deild Noregs í greiðslu ríkisskuldanna. Sam- komulagið er reist á Kielarsamningnum og felur í sér viðurkenningu á gildi hans varðandi skulda- skiptin. Hjálendurnar eru ekki nefndar, en helzt er að skilja á samkomulaginu, að því sé ætlað að viðurkenna Kielarsamninginn um öil þau atriði, sem ekki hafði áður verið samið um á annan hátt. En hvernig sem það hefur verið skilið, hafa vafalaust allir aðilar verið á einu máli um, að kröfu Noregs til Islands, Grænlands og Færeyja yrði ekki hreyft framar. Að þessu loknu var aðeins eftir að ganga frá einu atriði varðandi skuldaskiptin. Attu Norð- menn að greiða allt það fé, sem konungur Nor- egs og Svfþjóðar hafði tekið að sér að greiða, eða áttu Svíar að taka að sér hluta af greiðslunni? Þetta var ekki eingöngu fjárhagslegt mál. Það varðaði einnig stöðu Noregs sem sérstaks ríkis í sambandinu við Svía. Norðmönnum var þvert um geð að taka á sig alla greiðsluna, enda illa undir það búnir. A hinn bóginn þótti hæpið að krefjast þess, að Svíar tækju þátt í greiðslu skulda norska ríkisins. Lauk svo, að norska stór- þingið féllst á að veita fé til allrar greiðslunnar. I samþykkt þingsins um þetta er rækilega tekið fram, að þar með skuli allar gagnkvæmar kröf- ur Danmerkur og Noregs vegna sambands land- anna vera úr sögunni. Með þessari samþykkt girtu Norðmenn sjálfir endanlega fyrir, að þeir gætu gert frekari kröfu til hinna gömlu skattlanda sinna. Osennilegt er, að þetta hafi verið tilgangur þeirra. Sennilega hafa þeir valið þetta orðalag til þess að fyrir- byggja frekari kröfur frá Dana hálfu, þótt það kynni að virðast óþarft. En krafan um hjálend- urnar hafði heldur ekkert gildi, eftir að skulda- skiptin voru til lykta leidd. Y Það er athyglisvert, hversu ósamkvæmir Norð- menn eru sjálfum sér í þessu máli öllu. Það eru næsta ólíkar hugmyndir, sem þeir hafa um rétt þjóðarinnar, þegar um er að ræða íbúa Islands, Grænlands og Færeyja eða þegar um rétt þeirra sjálfra er að ræða. I norskum söguritum er yfir- leitt ekki fjallað um þessi mál öðruvísi en í sam- bandi við önnur og mikilvægari atriði norskrar sögu á þessum árum. Vel kann því að vera, að norskir sagnfræðingar hafi veitt þessu misræmi athygli, þótt þeir hafi ekki orð á því. Hvað Noreg sjálfan varðaði, reism Norðmenn stefnu sína á kenningunni um fullveldi þjóðar- innar, eftir að konungur hafði afsalað sér valdi sínu. Varðandi hjálendurnar héldu þeir hins veg- ar fram sögulegum rétti Noregs. Þeir gleymdu þannig, að Islendingar höfðu svarið Friðriki kon- ungi þriðja og örfum hans einveldi og höfðu aldrei látið í ljós neina ósk um að gangast undir 11

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.