Voröld - 01.11.1948, Qupperneq 21

Voröld - 01.11.1948, Qupperneq 21
 hitt og petta Þessar litlu stúlkur hafa allar verið nær heyrnarlausar frá fæðingu og eru þær í Ephiphetá skól- anum fyrir heyrnarlaus börn í Chieago. Nýlega gátu þær í fyrsta sinn heyrt mannsrödd, með nýuppfundnum tækjum, og voru þessar myndir teknar, er þær heyrðu hlátur. Þá hlógu þær dátt. konung, RíMiarð III. með slíkri tilfinningu, að ihann hefði meiðzt i hné, og sjálfur orðið haltur í marga daga á eftir. :!: :it :!t Clement Attlee, forsætisráð- berra Breta, fékk nýlega lækn- isskipun um að reykja aðeins tvær pípur á dag. Attlee tók þessu með ró, en sendi mann út til að kaupa stærstu pípu, sem hasg't væri að fá í London. íji :Ji ;j: Ríkið Wyoming i Banda- ríkjunum mun vefa hið fjrrsta í heimi, er setur ótvíræð iagaákvæði, sem hanna mönn- um að fljúga, 'þegar þeir eru undir áhrifum ófengis. :J: :■: Frú Bessle Taylor, sem hýr í Middlesex í Englandi, átti von á erfingja, en henni fannst ekki allt með felldu. Hún fór því í sjúkrahús til skoðunar, og sagðist halda, að það ætluðu að verða tvíburar. Læknirinn skoðaði ‘hana vand- Iega, og tilkynnti að því loknu, að það væru ekki tví- burar, það' væru fjórburar! Nú liggur frú Bessie í sjúkra- húsi, þar sem 'hún er undir stöðugu eftirliti lækna. Þetta munu vera 16. fjórbur- arnir, sem igetið er um í Eng- landi ó 12 árum, en aðeins tvisvar hafa öll börnin lifað. Talið er, að fjórburar komi fyfir einu sinni af hverjum 375 þús. fæðingum. ;|: Amerisfci prófessorinn P. A. Soro'kin, sem kennir félags- fræði við Harvard háskóla, gerði nýlega rannsókn á heim- i'ldum um 900 styrjaldir og 1600 borgarastyrjaldir, sem sagan getur um á síðustu 25 öldum. Komst ihann að þeirri niðurstöðu, að nútfminn væri án efa grimmilegasta tímabil, sem sagan getur um. A 20. öldinni hafa aftur verið tekin upp þrældómur, pyntingar, nauðungarflutningar þúsunda manna, ofsóknir fyrir skoðan- ir, aftökur fyrir villutrú og alvarleg ritskoðun. :!: :!: * Sir James Bissett var skip- stjóri á Queen Mary á stríðs- árunum, en það skip flútti marga tugi þúsimda her- manna. Frægasti farþeginn var Winston Ghurdhill, og 'hefur Bissett nú skýrt frá þeim ráð- stöfunum, sem hann gerði til verndar Cbu'rdhíll. Sérstakur björgunarbátur með áhöfn valinna sjómamra viar jafnan viðbúinn að bjarga honum, ef eitthvað kæmi fyrir skipið. Auk þess, sagði Bissett, vör á- vallt sérstakur varðmaður, sem átti að skjóía Churehill, ef nokkur hætta virtist á að h'ann yrði tekinn höndum af Þjóðverjum. Skipstjórinn sagði frá þessu í ræðu í Launceton á Tasma- níu, og befur Churchill ekki mótmælt frásögn- hans, þótt hann hafi heyrt frá henni sagt. VORÖLD 21

x

Voröld

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Voröld
https://timarit.is/publication/1956

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.