Mosfellsblaðið - 01.05.1999, Blaðsíða 4
Þreyttar og skítugar eftir œfingu, f.v. Karitas, Kolla, Lára, Kata, Asa, Anna Rún, Anna Gréta, Halla, Amdís, Tmna, Heiða, Sigrún og
Svandís. A myndina vantar Evu og Fjólu.
FERSKUR OG FREISTANDI
Reykjagarður hf. sími 566 6440
kjuklíngaálegg sem bragð er af...
Frakk-
lands-
ferð!
Þann 29. mars lögðum við 2. flokk- .
ur kvenna í knattspymu UMFA, af
stað frá Keflavíkurflugvelli í æfinga-
ferð til smábæjarins Chartres, sem
staðsettur er í suðurhluta Frakklands.
Við vomm 17 manna hópur með farar-
stjóra og þjálfara.
Æfingasvæðið sem við höfðum var
ágætt og æfingar vora 2. Til 3. Sinnum
á dag. Við spiluðum 2 leiki við mjög
góð skilyrði og fór fyrri leikurinn 3-0
fyrir okkur en sá seinni 3-0 fyrir hin-
um. Veðrið var frábært allan tímann og
notuðum við fnstundimar mikið í bæj-
arferðir og þess háttar. I einni slfkri
ferð fóm 8 stykki úr hópnum á Tattoo-
stofu, þar sem 5 létu setja hring í nafl-
ann á sér, en 3 létu slag standa og settu
gat í tunguna. Eftir kvöldmat fengum
við fijálsan tíma sem notaður var í að
kíkja á menningarlífið í Chartres, sem
var ekki til að hrópa húrra yfir.
Maturinn þama var ekki að okkar
smekk, en við þraukuðum. Þijár af
okkur áttu afmæli meðan á ferðinni
stóð og fengu þær veglegar afmælis-
gjafir, t.d. gullfiska sem við urðum því
miður að skilja eftir úti. Næst seinasta
daginn fórum við til Pansar, þar sem
við fómm í bátsferð og sáum m.a.
Notre Dame kirkjuna o.fl. Síðan skoð-
uðum við Eiffel tuminn, þó svo við
hefðum ekki tíma til að fara upp í
hann.
Þegar líða tók á daginn löbbuðum
við í gegn um götumarkað og framhjá
minningarreit um Díönu prinsessu.
Um kvöldið fórum við út að borða þar
sem við fengum síðustu kvöldmáltíð-
ina sem var frábær. - Þreyttar en
ánægðar lögðum við af stað heim til
íslands þann 5. apríl eftir vel heppnaða *
ferð. Við viljum þakka öllum sem
styrktu okkur og gerðu okkur kleyft að
komast í þessa ferð.
F.h. 2. flokks kvenna íknattspyrnu,
Svandís, Eva og Asa.
Lélegar
undirtektir
Ein af skoðanakönnunum í
Reykjanesi fyrir síðustu Alþingis-
kosningar sýndi að listi Framsókn-
arflokksins hafði áberandi lítið
fylgi í Mosfellsbæ miðað við ann-
arsstaðar í kjördæminu, skv. frá-
sögn útvarps.
Það vekur athygli að 5. sæti list-
ans skipaði stjórnarformaður
Heilsugæslu Mosfellsumdæmis.
Samkvæmt þessari könnun
þurfa stjómmálaflokkar greinilega
að vanda vel val fólks á lista sína.
0 Mogfcllsblaðið