Bergmál - 01.08.1955, Page 21
B E R G M Á L
1 9 5 5 ------------------------
að svíkjast um að greiða póker-
skuld. Og verst var að það
skyldi. einmitt gerast nú. Þegar
þessi 8 þúsund, sem raunveru-
lega voru frá honum sjálfum
komin, auk þessara tæþlega 2
þúsund dollara úr vasa Ben
Ransoms, áttu hvorttveggja að
verða hans framlag í nýju spili,
sem hann hafði aldrei reynt
fyrr, spili sem aðeins tveir sátu
að, — hann og Mary Lou. Pen-
ingarnir höfðu átt að verða
fyrsta afborgun af nautgripa-
búgarði, eða sá hluti þeirra, sem
ekki hefði þurft að nota fyrir
giftingarhringum og brúðkaups-
ferð til New Orleans.
Slim Granger flaug í hug sá
möguleiki að fara beint til skrif-
stofu Ben Ransoms og heimta
það sem honum bæri. Hvað
annað gat hann gert? Hlaðið
fyrirlitingu að honum og svælt
refinn á þann hátt út úr gren-
inu? Nei, það væri ekki hægt.
— Leikið á hann á einhvern hátt
og náð þessu með brögðum?
Það hefði verið hægt við ýmsa,
en Ben Ransom léti ekki leika á
sig. Eini maður í Greenfield,
sem Slim vissi til að leikið hefði
á Ransom var Bunn gamli lög-
fræðingur.
Slim fór að hugsa um Bunn
lögfræðing. Harðsvíraður þjark-
ur og óhlífinn í öllum viðskipt-
um. Slunginn náungi, með ráð
undir rifi hverju, sem leit inn í
Krókódílaklúbbinn að jafnaði
einu sinni í mánuði og hafði þá
sérstaka ánægju af að hlunnfara
Ben Ransom við pókerborðið.
Hann var samt enginn hrappur
og hafði aldrei rangt við —
heldur aðeins harðsnúinn ná-
ungi af gamla skólanum, sem
ekki fór varhluta af fíkninni í
fjárhættuspilið fremur en aðrir
fljótsbakkabúar. En hann var
maður, sem alltaf átti einhver
úrræði í pokahorninu, einkum
ef Ben Ransom var annars
vegar ....
Slim var kominn inn í reykj-
armökkinn í skrifstofu Bunns
lögfræðings og horfði á gamla
manninn virða fyrir sér fölsku
ávísunina hans Ben Ransoms.
„Vissulega er það hans skrift,“
sagði lögfræðingurinn. „Ég
myndi þekkja þessa rithönd í
mílufjarlægð. Þótt nú væri. Ég
lét hann borga hér áður fyrr og
það oftar en einu sinni þegar
honum bar að borga, en kærði
sig ekki um það. En um þessa
ávísun gegnir öðru máli. Enginn
getur innheimt spilaskuldir með
fógetavaldi.“
Slim kinkaði kolli: „Ég veit
það.“ Hann hafði oft heyrt um
19