Farmasía - 01.06.1946, Síða 9
I. ARG., 1. HEFTI
JÚNÍ 1946
FRÁ BORÐI
ritótfóranó
Tímaritið.
EÐ þessu hefti hefur nýtt rit göngu sína,
sem engan fyrirrennara á hér á landi.
Því er ætlað mikilvægt hlutverk, er vanrækt
hefur verið til þessa vegna þeirra margvís-
legu örðugleika, sem samfara eru útgáfu slíks
rits á landi voru.
Hlutverk ritsins er í fyrsta lagi að vera
vísindalegt lyffræðitímarit. í öðru lagi á það
að flytja upplýsingar um fræðilegar og tekn-
ískar nýjungar, sem að gagni mega koma fyr-
ir íslenzka lyffræði eða hafa almennt fróð-
leiksgildi fyrir stéttina. í þriðja lagi er ritinu
ætlað að vekja athygli stéttarinnar á réttar-
farslegum umbótum og öðrum framförum lyf-
fræðinnar hér á landi. í fjórða lagi er ritinu
ætlað hlutverk að vinna fyrir læknastéttina
með því að kynna henni ofangreind mál, er
hana snerta.
Ritinu er með öðrum orðum ætlað það
hlutverk eitt, sem nafn þess bendir til.
FARMASÍA er gefin út af Apótekarafélagi
íslands í samvinnu við Lyffræðingafélag ís-
lands.
Sú er von útgefendanna, að ritinu verði vel
tekið, svo að það megi inna af hendi köllun
sína, þrátt fyrir alla örðugleika. Megi gæfa
fylgja ritinu úr hlaði og verða förunautur
þess um alla framtíð.
Streptomycín.
EÐ tilskipun, sem gekk í gildi 1. marz
síðastliðinn, hefur notkun og framleiðsla
streptomycins í Bandaríkjunum verið sett
undir sams konar bráðabirgða eftirlit eins og
áður gilti um penicillín. Tvær opinberar
nefndir (National Research Council og Civilian
Production Administration í Washington)
hafa eftirlitið með höndum.
Framleiðendur streptomycíns eru 11 í
Bandaríkjunum og hafa þeir lagt fram fé til
að greiða niður framleiðsluverðið, svo hægt
sé að nota lyfið til tilrauna og lækninga. Síð-
astliðinn september var framleiðslumagnið 3
kg en i marz um 27 kg. Nægir það í 27000
glös með 1 millj. eininga hvert. Um tveir
þriðju fara til hersins og takmarkaðra nota
fyrir almenning. Hitt er notað til tilrauna.
Girnist íslenzkir læknar að fá eitthvað af
streptomycíni, ber þeim að snúa sér til Dr.
Chester S. Keefer, Evans Memorial Hospital,
Boston, Mass. U. S. A., en hann stjórnar nú
Úthlutun og notkun streptomycíns í Banda-
ríkjunum. Gefa verður upp hlutaðeigandi
sjúkdóm og sögu hans og að bæði penicilín
og súlfónamíð hafi reynzt árangurslaus við
hann.
Dr. Keefer stjórnaði áður úthlutun penicill-
íns með ágætum árangri.
Búizt er við því, að framleiðsla strepto-
mycíns verði komin svo vel á veg í haust, að
þá vérði hægt að gefa það frjálst. Mun því
verða fagnað um víða veröld, því að fundur
streptomycíns myndi vafalaust hafa verið tal-
inn mesta uppgötvun lyfjavísindanna, ef
penicillín hefði eigi verið fundið áður.
Apótek — lyfjabúð.
ÓTT „ylhýra málið“ eigi fegurð og kyngi
í sögu og ljóði, vefjast því margir fjötrar
um fót, þegar því er beitt við tæknileg og
fræðileg efni. Stafar þetta af því, hversu
stuttan tíma þjóðin hefur haft til að tileinka
sér seinni tíma raunvísindi og laga málið
eftir þeim.
FARMASÍA
1