Farmasía - 01.06.1946, Page 14

Farmasía - 01.06.1946, Page 14
bíotiskum áhrifum streptomysins en svo er ekki um hinn virka móðurgróður. Fyrirbrigði þetta er þó óalgent, sé réttra vinnubragða gætt. Streptomycin er organiskur basi, leysanleg- ur í vatni en óleysanlegur í eter, klóróformi og acetóni. Úr gróðurfæðunni er það skilið á þann veg, að það er adsorberað með koldufti, síðan þvegið úr kolunum með veikri blöndu af sýru og alkoholi, sem að því búnu er neutraliseruð, filteruð og blönduð með eter. Við það aðskilst vatnið, sem streptomycinið er uppleyst í. Þessi vatnsupplausn er gul-, brún, eða rauðlituð og hefur verið mikið not- uð til tilrauna. Úr vatnsupplausninni má vinna streptomy- cinið hreint með tveim aðferðum. Önnur er sú að útfella það með metyl orange (sem er natríum salt af helianthini) sem streptomy- cin-helianthat, er síðan má breyta í leysan- leg sölt af streptomycini. Til þess að fá hy- droklóríðið er helianthatið sett út í blöndu af saltsýru og metylalkoholi. Helianthinið fellur þá út og er skilið frá, en hydroklóríðið er fellt út með eter. Það er hvítt duft. Hin aðferðin er nokkru flóknari. Myndað er streptomycin reineckat, sem síðan er breytt í hydroklóríð eða súlfat. STANDARDISJÓN OG EINING Ýmsar aðferðir hafa verið notaðar til að ákvarða styrkleika streptomycins. Við ná- kvæma kvantitativa ákvörðun hefur verið notuð agar-diffusjóns aðferð með Bacillus subtilis eða Staphylococcus aureus. Akveðst þá styrkleiki óþekktra preparata á því, hversu þau takmarka gróður þessara bakt- ería, samanborið við standard. Eining streptomycins var upphaflega skýr- greind sem það magn, er nákvæmlega nægði til að hindra vöxt ákveðinnar tegundar af Escherichia coli í 1 cc. af nærandi gróður- fæðu. E.r þessi eining nefnd S-eining. Önnur eining, sem nefnd er L-eining, er það magn er nægir til að hindra vöxt sömu tegundar af E. coli í einum líter. Þriðja einingin er nefnd G og er talin svara til 1 gm af hrein- um basanum. Á hún einnig að svara til 1000 L eða 1 millj. S eininga. En síðan farið var að framleiða hreint kristallað streptomycin hefur 1 imicrog. verið talið eining, sé annað ekki tekið fram. Streptomycin hydroklórið er venjulega ná- lægt 800 ein. per mg og sulfatið um 600, ef miðað er við E. coli prófun. Ef gerður er samanburður á streptomycini og penicillini, ber að minnast hinna ólíku eininga þessara efna. Ein penicillin Oxford eining byggist á verkun þess á Staphylococcus aureus í 50 cc af gróðurfæðu, en eining streptomycins bygg- ist á verkun þess á E. coli í 1 cc. Einnig ber þess að gæta, að hinn Gram-positífi S. aureus er miklum mun viðkvæmari heldur en hin Gram-negatifa E. coli. Sé um hrein kristölluð efni að ræða, svarar 1 Oxford eining til 0,6 microg. af penicillini, en ein streptomycin eining til 1 microg. af streptomycini. Til þess að ákvarða magn streptomycins í líkamsvökvum má nota sömu aðferð og höfð er við penicillín (ræktun gróðursýnishorna á objektglerjum og borið saman við standard) að öðru leyti en því, að notaður er Bacillus megatheríum í stað Streptococcus pyogenes. VARANLEIKI Streptomycín hefur þann kost umfram penicillin að þola vel áhrif umhverfisins. Sterkar upplausnir hafa verið geymdar £ kæliskáp í meir en 6 mánuði, án þess að þær glötuðu nokkru af styrkleika sínum. Veikar sterílar upplausnir hafa verið geymdar við 37° C I 17 daga og hafa reynzt jafn góðar eftir, og þótt streptomycin upp- lausnir séu hitaðar við 100° C í 10 mínútur, glata þær ekki meir en 50% styrkleikans. Sams konar viðnámsþrótt sýnir streptomy- cin gagnvart smáverum og virðast þær engan veginn draga úr áhrifum þess. Veikar upp- lausnir af streptomycini, sem bakteríur og sveppar hafa verið ræktaðar í, hafa sýnt engu minni streptomycinverkun, heldur en jafn sterkar sterílar upplausnir, sem geymd- ar hafa verið á sama hátt. 6 FARMASIA

x

Farmasía

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Farmasía
https://timarit.is/publication/1978

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.