Farmasía

Ataaseq assigiiaat ilaat

Farmasía - 01.06.1946, Qupperneq 16

Farmasía - 01.06.1946, Qupperneq 16
hefur einnig fengizt með því að gefa strepto- mycin eftir holskurði. N O TK U N Með intravenous innspýtingu hafa allt að 200,000 einingar af streptomycíni uppleystu í 10 cc af fýsíologiskri saltupplausn verið gefn- ar í senn á þriggja stunda fresti. Einnig hafa verið gefnar allt að 4 millj. eininga á dag með intravenous dreypiaðferð. Með intramuscular innspýtingu hafa venjulega verið gefnar 100,000 ein. í senn leystar í 1 cc. Með subcutaneous innspýtingu hafa 100,000 ein. uppleystar í 1 cc verið gefnar á þriggja stunda fresti. Með intrathecal innspýtingu hafa verið gefnar 100,000 ein. leystar í 5—10 cc á eins til tveggja sólarhringa fresti. Með úðun til innöndunar hafa verið gefnar 50,000 ein. leystar í 1 cc allt að 10 sinnum á dag. Slík úðun hefur verið notuð við berkl- um í 4 vikur samfleytt. Með inntöku kemst lítið sem ekkert strep- tomycin út í blóðið, en til þess að eyða bakt- eríum í meltingarfærunum hefur hálf millj. upp í nokkrar millj. eininga verið gefnar á dag. í Springfield, Ohio lagaði maður nokkur mjög svo frumlegan coctail, sem samanstóð af joðáburði, terpintínolíu, steinolíu, rottu- eitri, benzíni, skósvertu og brennivíni. Fram- leiðandinn var og fyrsti neytandinn en komst þó lífs af. ★ I holdsveikrahælinu við Carville í Louisana hefur prómín og díasón verið notuð með furðulega góðum árangri við holdsveiki. Prómín og díasón eru lyf, sem aðalle’ga hafa verið reynd við berklaveiki, en notkun þeirra við holdsveiki hafa gefið mikinn og tvímæla- lausan bata, einkum hjá þeim sjúklingum, sem þolað hafa þessi eitruðu lyf lengst og í stærstum skömmtum. Díasón hefur þann kost umfram prómín, að ekki þarf að gefa það sem innspýtingu. UM KEMISKA óamóetningti pejiici íllS Aundanförnum árum hefir verið unnij að því af kappi að komast að kemiskri sam- setningu penicillíns. í Bretlandi hafa 17 rann- sóknarflokkar, og í Bandaríkjunum 21 rann- sóknarflokkur haft samvinnu í þessu má'i. í SCIENCE 21. des. s. 1. er gefin skýrsla um helztu niðurstöður þessara rannsókna til árs- loka 1944. í penicillín-flokknum eru kunn mörj efni, sem öll hafa empirísku formúluna C!) H4 O , SN ll R, en R hefir mismunandi gildi, eins og efiir- farandi tafla sýnir: Penicillín-afbrigði F-penicillín (penicillín-I) Dihydro-F-penicillín G-penicillín (penicillín-II) X-penicillín (penicillín-III) K-penicillín gildi B pentenyl n-amyl benzyl p-hydroxy-benzyl n-heptyl Penicillín eru sterkar monobasiskar sýrur, sem gefa kolsýru, penilloaldehyð og amíno- sýrur penicillamín, þegar helt er á þau sterk- um óorganiskum sýrum. Penicillamín hefir verið búið til syntetiskt. Með hydrolysu á penicillíni fæst dikarboxíl- sýra, penicilloin-sýra, og myndast líklega fyr- ir áhrif frá enzymi, sem nefnt er •peniciilín- ase. Ef notaðar eru þynntar sýrur, við 30°C, fæst penillinsýra. Með súblímati gefur pen- illínsýra penillamín, en með baríumhydroxíði gefur hún isopenillínsýru. Bygging penicillín-molekúlanna er að vísu eigi fullkomlega kunn, en uppistaðan er lík- lega annað tveggja: Iaktam (I) eða laktón(II) 8 FARMASÍA

x

Farmasía

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Farmasía
https://timarit.is/publication/1978

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.