Farmasía - 01.06.1946, Page 18
Sagt hefur verið frá mörgum öðrum dæm-
um um bórsýrueitrun barna og fullorðinna
og vegna þessara slysa hefur verið bannað
að nota bórsýru á fæðingadeildum sjúkra-
húsa í fylkinu Illinois og vitað er um sjúkra-
hús í öðrum fylkjum (Michigan University
Hospital), sem gert hafa slíkt hið sama vegna
slysa af völdum bórsýru.
Einn læknir hefur talið sig geta rakið bór-
sýrueitrun í hvitvoðungum til bórvatns á
brjóstvörtum mæðranna.
Fyrir þremur árum brann veitingahús í
Boston (Cocoanut Grove) og með því mikill
fjöldi gesta. Til að græða sár þeirra, sem af
komust, var 10% bórsýrusmyrsli mikið notað
og einnig bórvatns þrýstibakstrar. Að því er
brunasárin snerti var árangurinn svo góður,
að skýrsla um lækninguna var send læknum
flotans til eftirbreytni. En hjá mörgum sjúk-
linganna kom smám saman í ljós eitrun, er
rakin var til bórsýrunnar.
Athugun leiddi í ljós, að þvag 20 sjúklinga,
sem höfðu brunasár, er þöktu 4% eða meir af
yfirborði líkamans og fengið höfðu smyrslið,
innihélt 2 gm af bórsýru á sólarhring. Þvag
þeirra, sem fengið höfðu bórsýrubakstrana,
innihélt mun meira. Var það athyglisvert, að
þvagið innihélt þeim mun meiri bórsýru, sem
smyrslið eða bakstrarnir höfðu verið notaðir
lengur. Sýndi það, að sýran safhaðist fyrir í
líkamanum.
Þessi reynsla varð til þess, að yfirvöldin
beittu sér gegn notkun bórsýru við græðslu
■brunasára.
Talið er, að toxískt magn fyrir fullorðna
sé 15—20 gm og 5—6 gm fyrir ungbörn. Eitr-
unareinkenni brjótast venjulega út á 4—5
dögum og getur sjúklingurinn andazt allt að
5 sólarhringum eða meira, eftir að tekið hef-
ur verið fyrir orsök eitrunarinnar.
I tímariti Ameríska læknafélagsins frá 26.
maí 1945 er skýrt frá rannsóknum á bórsýru-
eitrun og eru niðurstöðurnar m. a. þessar:
1) Líkaminn absorberar bórsýru í toxísk-
um skömmtum úr bórsýrusmyrsli, sem
borið er á brunasár eða önnur þau sár,
þar sem hörundið hefur farið af á stór-
um svæðum.
2) Ur 5% bórsýruupplausn, sem notuð hef-
ur verið til skolunar, absorbera vefirnir
alla sýruna.
3) Einn skammtur af bórsýru veldur ekki
ætíð eitrun, þótt stór sé, en endurtekn-
ir skaimmtar safnast fyrir í líkamanum,
aðallega í heilanum, lifrinni og líkams-
fitunni.
4) Þau líffæri, sem einkum spillast af bór-
sýru, eru: Lifrin, nýrun, húðin, en þó
mest heilinn og mænan.
5) Sem móteitur eru aðallega notaðir stór-
ir skammtar af isotoniskri upplausn af
NaCl, KCl og CaCl2 (Ringers upplausn)
með blóðplasma.
Enda þótt varúðar þurfi einkum að gæta
við særða húð, hefur þó verið sannað, að
heilt hörund absorberar einnig nokkura bór-
sýru, a. m. k. úr upplausn.
2,5% bórsýruupplausn heftir vöxt flestra
bakteríutegunda og hefur sýran því antisept-
ískt gildi, en disinfektant gildi hennar er
ekkert, því að jafnvel 4% upplausn getur
ekki drepið á heilum sólarhring viðkvæmar
bakteríur eins og anthrax bacillus.
Með því að mörg efni eru til, sem hafa
sama eða meira gildi en bórsýra sem sóttvarn-
arefni, en eru laus við þær hættur hennar,
sem hér hefur verið stuttlega lýst, hafa
margir lagt það til, að bórsýrunotkun verði
lögð niður og bórsýra og bórax tekin úr
lyfjaskrám.
UNNRA hefur notað amínosýrublöndur og
protein hydrolysöt til þess að bjarga lífi
hungraðra manna. Fundizt hefur annað nota-
gildi þessara efna, sem að atenennu gagni
mun koma, þegar UNNRA hefur mett fólkið.
Ýmsar tegundir sára gróa fyrr, ef sjúkl-
ingnum er gefin þessi efni sem innspýting
eða inntaka og koma þau einkum að gagni
við uppskurði og magasárum.
★
Næstum tvisvar sinnum fleiri Bandaríkja-
þegnar dóu af völdum krabbameins á stríðs-
árunum, heldur en Bandaríkin misstu í stríð-
inu.
10
FARMASÍA