Farmasía - 01.06.1946, Side 19
ATHYGLISVERÐ
IAPÓTEKUNUM hafa verið framleidd og
prófuð eftirfarandi lyf:
Suspensio aluminii hydroxydi
er sama lyfið og „Gelatum alumnini hydr-
oxydi“ U.S.P. XII. Það er 3,6—4,4% suspen-
sjón af Al.,0,, (aðallega sem oxíð bundið
vatni) í vatni, bragðbætt með piparmyntuol-
íu og varin með. natríum benzoati. Formúlan
er eftirfarandi:
I. Alum. kal. sulf. gm 1000
Aqva comm. bull. — 10.000
Filtrerist.
II. Natr. carb. sicc. —• 450
Aqva comm. bull. —■ 5000
Filtrerist.
III. Aetherol. Menth. pip. — 0,3
Glycerin — 120
IV. Natr. benzoas — 12
Aqva comm. —• 240
II er sett út í I (báðar vel heitar) og hrært
vel saman. Botnfallið er þvegið vel með heitu
vatni, þar til það er sulfatlaust. Er þá II og
IV bætt saman við og að lokum vegið með
vatni upp í 2,4 kg. Suspensjónin skal upp-
fylla kröfur U.S.P. XII og geta þeir, sem
vilja, fengið forskrift að þeim frá FARMA-
SÍU.
Suspensio aluminii phosphatis
er 3,8—4,2% suspensjón af AIPO^ í vatni,
bragðbætt með kanelolíu og varin með natr-
íum benzoati. Formúlan er eftirfarandi:
I. Alum. kal. sulf. gm 1000
Aqva comm. bull. — 10.000
Filtrerist.
II. Natr. phosph. secund. — 580
Natr. carb. sicc. —• 135
Aqva comm. bull. — 5000
Filtrerist.
III. Aetherol. Cinnamomi Ceylanici gm 0,3
Glycerin gm 300
IV. Natr. benzoas — 30
Aqva comm. — 170
II er sett út í I (báðar vel heitar) og hrært
vel saman um leið. Botnfallið er þvegið' vel
með heitu vatni, þar til það er sulfatlaust. Er
þá III og IV bætt saman við og að lokum
vegið með vatni upp í 6 kg.
Suspensjónin skal uppfylla kröfur N.N.R.
og geta þeir, sem vilja, fengið forskrift
að þeim frá FARMASÍU.
Um ofangreindar suspensjónir segir Lyf-
fræði- og læknaráð Ameriska læknafélagsins
meðal annars:
Aluminíum hydroxíð suspensjón hefur
reynzt góður maga-antacid og eyðir saltsýru
magans með kemiskri reaksjón. Suspensjónin
lækkar ekki sýrumagn magans svo mikið, að
það hafi áhrif á meltingarstarf pepsíns eða
að það valdi gagnverkandi sýruaukningu.
Ekki veldur hún heldur systemískri alkaliza-
sjón eins og algengt er um venjuleg sýrueyð-
andi efni og er helzti ókostur þeirra. Amfót-
erískt eðli aluminíumhydroxíðs hefur ekki
klíniskt gildi, vegna þess, að hydroxíðið verk-
ar ekki sem sýra í öðrum vökvum én þeim,
sem hafa pH yfir 9, en slíkt pH kemur ekki
fyrir í meltingarfærunum. Hins vegar kemur
hin svo nefnda stuðpúðaverkun aðeins fyrir
við pH nálægt 4.
Gert er ráð fyrir því, að súra aluminíum
klóríðið, sem suspensjónin myndar með
magasýrunni, klofni í þörmunum og klóríðið
absorberist. Álitið er, að samherpandi og
mýkjandi eiginleikar suspensjónarinnar hafi
nokkurt staðbundið gildi fyrir peptxnskt
magasár.
Svo sem er um aluminíumsambönd al-
mennt absorberast alum. hydroxið ekki úr
meltingarfærunum svo teljandi sé, og hefur
því engin toxisk áhrif, en samherpandi eig-
inleiki þess kann að valda hægðateppu.
FARMASÍA
11