Farmasía - 01.06.1946, Síða 20
Tilraunir hafa bent til þess, að aluminíum
sambönd kunni að hefta absorpsjón ákveð-
inna steinefna og geti valdið fosfórskorti, með
því að bindast fosfötum fæðunnar í melting-
arfærunum. Þessa gætir þó eigi, nema fæðan
sé sérlega snauð af fosfötum eða sjúkling-
urinn haldi ekki fæðunni vegna niðurgangs.
Hefur þetta því ekki áhrif á notagildi suspen-
sjónarinnar við einfalt (uncomplicated) pep-
tínskt magasár eða við of mikilli magasýru,
því að sú fæða, sem notuð er undir slíkum
kringumstæðum, er venjulega rík af fosfötum.
Aluminíum hydroxíð suspensjón er notuð
í meðferð peptínsks magasárs (í maga og
duodenum) til þess að græða, draga úr sárs-
auka og hefta blæðingar. Einnig er hún not-
uð til þess að eyða of mikilli magasýru, sem
stafar af systemiskum völdum. Notkun henn-
ar við öðrum kvillum í meltingarfærum er
talin hafa vafasamt gildi.
Aluminíum hydroxíð suspensjón er gefin
í 4—8 cc skömmtum í hálfu glasi af vatni eða
mjólk á tveggja til fjögurra stunda fresti eða
hálfri til einni stund eftir máltíðir. Einnig
er það blandað með 2 til 3 hlutum vatns og
gefið í dropatali gegn um magaslöngu, 15—20
dropa á mínútu eða alls 1500 cc af blöndunni
á sólarhring.
Aluminíum fosfat suspensjón verkar eins og
aluminíum hydroxíð suspensjón en hefur eng-
in áhrif á fosfat absorpsjónina. Hins vegar er
sýrubindandi hæfileiki hennar meir en helm-
ingi minni en alum. hydroxíð suspensjónar-
innar. Er álitið að fosfat suspensjónin sé betri
en hin við magasári, þegar skortur er á
pancreas safa eða sjúklingurinn þjáist af nið-
urgangi og hefur mataræði, sem gefur ófull-
nægjandi fosfatmagn. Er og álitið, að ekki
komi að sök við meðferð magasárs, þótt sýru-
bindandi hæfileiki fosfat suspensjónarinnar
sé minni en hinnar.
Aluminíum fosfat suspensjón er gefin í 15
—20 cc skömmtum (1—2 matsk.) .óblönduð
eða með mjólk eða vatni á tveggja stunda
fresti, meðan magasárið er á aktífu stigi. Síð-
ar eru gefnar 3 matskeiðar fjórum sinnum á
dag (með eða eftir máltíðir og við háttatíma)
eða 2 matskeiðar 6 sinnum á dag (með eða
milli máltíða og við háttatíma).
HYDROFIL SMYRSLI
Venjulegir smyrslagrunnar eru feitir og
hydrofob. Það er ekki hægt að þvo þá hæg-
lega af með vatni.
Eftirfarandi hydrofil smyrslisgrunnur hefur
verið mikið notaður í amerískum sjúkrahús-
um og mun verða tekinn upp í næstu lyfja-
skrá Bandaríkjanna (U. S. P. XIII):
Stearyl alkohól gm 25
Hvítt vaselín — 25
Glycerín — 12
Natríum lauryl-sulfat — 1
Methyl-p-oxybenzoas — 0,025
Propyl-p-oxybenzoas — 0,015
Eimað vatn, upp í — 100
Stearyl alkóhólið og hvíta veselínið er brætt
saman í vatnsbaði við 75 "C. Lauryl-sulfatið
og benzoötin eru leyst upp í glyceríninu og
vatninu við sama hitastig og blöndurnar eru
síðan hrærðar saman, þar til smyrslið er orð-
ið kalt.
Smyrslisgrunur þessi er talinn hafa reynzt
því úr fötum og af hörundi með vatni.
Smyrslagrunnur þessi er talinn hafa reynzt
vel og er sagt, að virk efni absorberist mun
betur úr honum en feitum grunnum, einkum
í sárum.
OCULOGUTTAE PENICILLINI
Natrii penieillinum 10,000 ein.
Methyli-p-oxybenzoas gm 0,03
Natrii chloridum — 0,18
Aqva dest. steril. 20 cc
Benzoatið og natríum klóríðið er leyst í
steríla eimaða vatninu, upplausnin filtreruð
og steríliseruð í autoklava.
Þegar upplausnin er orðin köld, er penicill-
íninu bætt aseptískt saman við.
Augndropaglasið verður að vera úr alkalí-
hreinu gleri.
Augndroparnir eru virkir í mesta lagi viku-
tíma, enda þótt þeir séu geymdir við hita
undir 10 stigum.
OCULENTUM PENICILLINI
Natrii penicillium 100,000 O.E.
Paraffinum liqv. tenúe gm 10
Adeps lanae — 25
Vaselinum album ad — 100
12
FARMASÍA