Farmasía - 01.06.1946, Blaðsíða 22

Farmasía - 01.06.1946, Blaðsíða 22
MIXTURA concentrata Thiouracil er nýlegt antithyroid lyf, sem nú er mjög mikið notað, en er fremur toxískt. Reynt hefur verið að nota thiobarbital í stað þess (5,5-diethyl-2-thiobarbitur sýra), en það hefur reynzt engu síður toxískt. Thiouracll hefur einnig hjálpað mörgum, sem þjást af angina pectoris. í stað thiouracil er nú farið að nota methyl-thiouracil (4 — methyl — 2 — thiouracil) þar eð það er ekki ein toxískt. ★ Amethón er nýtt antispasmotískt lyf, sem gefizt hefur mjög vel til að fróa þjáningar af völdum gallsteina og stuðla að því, að þeir gangi sjálfkrafa niður. Það er 3—(beta- diethylaminoethyl) — 3 phenyl — 2 — benzofuranon hydroklóríð og dregur úr spennu sléttu vöðvanna. ★ Við tannlæknaskóla einn í Ameríku tuggðu 55 stúdentar tyggigúmmí stráð með k-vita- míni, í 10 mínútur eftir máltíð dag hvern í 18 mánuði. 45 stúdentar aðrir gerðu slíkt hið sama, en fengu ekkert k-vítaimín. Þeir sem höfðu k-vítamínið, fengu 60—90% færri tan'nholur en hinir, á ’þessu tímabili. ★ Ef skurðlæknar almennt notuðu kalíum bítartrat á skurðhanzkana sína í stað talkúms, væri hugsanleg orsök blóðtappatilfella, sem frá talkúmi stafar, útilokuð, því að kalíum bítartrat, sem kemst inn í blóðið, leysist upp, en talkúm gerir það ekki. ★ Dilantin eða diphenylhydantoin hefur verið notað undanfarin ár við flogaveiki. Nú ér nýtt lyf, tridión, komið á markaðinn, og hefur reynzt mjög vel við þeim tegundum floga, peti mal, myoclonic og akinetíc, sem dilantín eða önnur flogastillandi lyf hafa lítil eða engin áhrif á. Við grand mal flogum er tridión hins veg- ar gagnslaust. Undarlegustu áhrif tridións eru þau, að sjúklingnum sýnast allir hlutir þaktir snjóföl. ★ BAL er brezkt lyf, sem vernda átti þegna Bretakonungs gegn þýzku eiturgasi. Fleiri þegnar hans héldu þó lífi fyrir það, að Hitler notaði aldrei eiturgas og nú er BAL notað með góðum árangri, til þess að bjarga lífi sjálfsmorðingja og annarra, sem gleypt hafa arsenik. BAL er 2,3,-dithiopropylalkohól. ★ Krabba-vírus. Þrátt fyrir kynni manna af krabbameini kynslóð eftir kynslóð, hefur þekkingin á því lítið aukizt. Það litla, sem vitað er með vissu, er það, að krabbamein er óeðlilegur frumuvöxtur, að oft má lækna það með uppskurði, röntgen- geislum eða geislavirkum efnum, ef það er tekið nógu fljótt. Umfram þetta hafa leyndardómar þess ver- ið huldir svörtu tjaldi vanþekkingar. Ofurlítil rifa kom í þetta tjald fyrir skemmstu, er dr. John Bittner (sérfr. í bakt- eríufr. og ónæmisfr.) og dr. Robert Green (erfðafr. og krabba-biologist) 'við Minnesota Háskóla birtu skýrslu um 10 ára krabba- meins' rannsóknir sínar. Árangur rannsókna þeirra er sá, að þeir hafa fundið filtranlegan vírus, sem veldur krabba í músum, og hafa framleitt serum, er drepur vírusana in vitro. Bittner hóf þessar rannsóknir fyrir 10 ár- um og fann svo nefndan mjólkur-þátt (fact- or), sem borizt gat með mjólkinni frá krabbameinssjúkum mæðrum til unganna. Þennan „mjólkur-þátt“ álítur Bittner vera vírus, enda fellur hann undir skilgreiningu á vírus: 1. Vex aðeins í lifandi frumum. 2. Er of lítill til að sjást í smásjá. 14 FARMASÍA

x

Farmasía

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Farmasía
https://timarit.is/publication/1978

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.