Farmasía - 01.06.1946, Side 24

Farmasía - 01.06.1946, Side 24
Akriflavín (euflavín) er nefnt akriflavín basi, neutralt akriflavín, „Gonacrine" og „Neutroflavíne". í upplausn er það þó hvorki basískt né neutralt, heldur súrt og er pH upplausnanna frá 3 til 5. Akriflavín hydroklóríð (eða súrt akrifJav- ín, súrt trypaflavín) er löggilt í N.F. VII og er greint sem blanda af hydroklóríðum of- angreindra efna. í ensku lyfjaskránni (Br. Add. I) er akriflavín hydroklóríð greint undir nafninu akriflavín. Getur sú nafngift valdið ringulreið. Súlfatið, og stundum hydroklóríðið, af „kjarna" þessara efna, 2,8-díamíno-akridíni, er nefnt próflavín og er súlfatið löggilt í ensku lyfjaskránni (B.P. Add. IV). Upp- lausnin af próflavíni 1—1000 hafa pH nálægt 2,5. Þessi akridín derívöt hafa ekki sérlega mikla bakteríudrepandi verkun, en bakteria- heftandi verkun þeirra er mjög mikil (upp- lausn 1—1000000 heftir vöxt streptococca). Þó ber þess að gæta, að blóðið dregur úr þessum eiginleikum. Upplausnir af akriflavíni (euflavíni), akri- flavín hydroklóríði og próflavíni eru bæði toxískar og ertandi. Stafar ertingin einkum af sýruverkuninni og er því betra að neu- tralisera upplausnirnar með natríum bíkarb- onati eða að setja stuðpúða í þær og einnig að hafa þær ísotonískar. Til sáraaðgerða er notuð 1—1000 ísotonísk upplausn (sbr. DD’38). Til augna aðgerða er notuð 1—1000 upplausn til 1—4000 með 1,4% af NaCl. Við urethritis er notuð innspýting með 1-—1000, eða útskolun byrjandi með 1-— 8000 upp í 1—4000. Við hálskvillum er úðað eða penslað með 1—2000 upplausn. Til þess að draga úr toxískum yerkunum og ertingu hefur verið framleitt í Englandi próflavín monohydroklóríð og próflavín hemísúlfat (M&B) og í Bandaríkjunum „Proflavine" (2,8-díamínoakridín monohy- drogen súlfat) (N.A.D., All. Chem. Corp.). Eru efni þessi neutral gagnvart lakmus og eru notuð án ísotóíseringar og stuðpúðunar. Munu þau fyrrnefndu vera fáanleg í íslenzk- um apótekum. ★ Vélaverkfæri, Handverkfæri, Málmar, Skrúfboltar, Vclareimar. G. J. Fossberg vélaverzlun h.f. Vesturgötu 3, Reykjavík Símar 3027 & 2127 Símnefni „Foss“ flytur blaða fyrst og ítarlegastar fréttir af innlendum og erlendum viðburðum, og er ásamt Lesbók, lang fjölbreyttasta, fróðlegasta og skemmtilegasta blað landsins. Morgunblaðið er helmingi útbreiddara en nokkurt annað íslenzkt blað. Þess vegna bezta auglýsingablaðið. 16 F ARMASÍA

x

Farmasía

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Farmasía
https://timarit.is/publication/1978

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.