Mosfellingur - 09.05.2024, Qupperneq 6
- Fréttir úr bæjarlífinu6
Sóknarnefnd Lágafellssóknar hefur tekið
ákvörðun um að loka Mosfellskirkju tíma-
bundið.
Ástæðan er sú að rakaskemmdir og
mygla fannst þegar verkfræðistofan Efla var
fengin til að kanna ástand kirkjunnar.
„Nefndin bað um úttekt á ástandi kirkj-
unnar, kirkjan er komin til ára sinna og
ljóst er að hún þarfnast mikils viðhalds,“
segir Ólína Kristín Margeirsdóttir formaður
sóknarnefndar Lágafellssóknar.
„Niðurstöður Eflu voru meðal annars
að það eru víðtækar rakasemmdir og að
það þurfi að fara í gagngerar endurbætur
á byggingunni. Við tókum þá ákvörðun að
loka Mosfellskirkju tímabundið á meðan
verið er að taka ákvörðun um hvað skuli
gera. Það er ljóst að þessar framkvæmdir
eru kostnaðarsamar og það þarf að vera til
peningur fyrir því sem þarf að gera. Báðar
kirkjurnar okkar eru komnar til ára sinna
og því mikill viðhaldskostnaður til staðar.
Nýverið var skipt um þak á Lágafells-
kirkju og ljóst er að fljótlega þarf að skipta
þar um glugga og fleira,“ segir Ólína að
lokum og nefnir að jafnvel þurfi að stofna
til söfnunar meðal almennings fyrir fram-
kvæmdum Mosfellskirkju.
Rakaskemmdir og mygla • Þarfnast mikils viðhalds
Mosfellskirkju
lokað vegna raka
M
yn
d/
Ra
gg
iÓ
la
mosfellskirkja
í mosfellsdal
Samningur um innri frágang og innrétting-
ar við íþróttahús sem tilheyrir Helgafells-
skóla hefur verið undirritaður við fyrirtækið
Land og verk ehf.
Um er að ræða síðasta áfanga í uppbygg-
ingu íþróttahúss skólans sem er nýbygging
og alls um 1.000 m2 sem skiptast þannig að
íþróttasalur er 600 m2, rými í aðliggjandi
íþróttasal eru í heildina 150 m2 og bún-
ingsklefasvæði 250 m2.
Tilboðsfrestur vegna útboðs í verkið rann
út þann 14. mars síðastliðinn og voru þrír
aðilar sem sendu inn tilboð, Land og Verk
ehf., E. Sigurðsson ehf. og Stéttafélagið ehf.
Kostnaðaráætlun var 292.800.509 kr. en
lægsta tilboð var uppá 312.861.865 kr. og
kom frá fyrirtækinu Land og Verk ehf.
Myndin er frá undirritun samninga. Efri
röð: Illugi Þór Gunnarsson verkefnastjóri
hjá Eignasjóði, Halla Karen Kristjánsdóttir
formaður bæjarráðs, Rósa Ingvarsdóttir
skólastjóri Helgafellsskóla, Marvin Ingi
Einarsson verkefnastjóri Land og Verk og
Hafþór Sigtryggsson deildarstjóri fram-
kvæmdasviðs Land og Verk. Neðri röð:
Berglind Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri
Lands og Verks og Regína Ásvaldsdóttir
bæjarstjóri.
Síðasti áfangi í byggingu íþróttahúss við Helgafellsskóla
Samið um innréttingar
í nýju íþróttahúsi
skrifað undir í íþróttahúsinu
SumarblómaSala
DalSgarðS
hefSt 24. maí
í Dalsgarði í Mosfellsdal
Mikið úrval af fallegum sumarblómum
Opið alla daga frá 11-18
Glæsileg túlípanasýning
Garðyrkjudeild Mosfellsbæjar og gróðrastöðin Dalsgarður í Mosfellsdal stóðu fyrir
túlípanasýningu í Kjarna í lok apríl. Á sýningunni voru 90 tegundir af túlípönum sem
ræktaðir eru í Dalsgarði. Sýningin vakti mikla athygli og lífgaði upp á tilveruna.
blómleg sýning í kjarna