Mosfellingur - 09.05.2024, Síða 24

Mosfellingur - 09.05.2024, Síða 24
Hulda Jónasdóttir hlaut tónlistar- legt uppeldi frá blautu barnsbeini og hefur tónlistin fylgt henni æ síðan. Á heimili hennar var mikið hlustað á blús, djass og klassíska tónlist og gömlu góðu íslensku lögin voru einnig í háveg- um höfð. Árið 2016 skellti Hulda sér í nám í viðburðastjórnun og stofnaði sitt eigið fyrirtæki í kjölfarið, Gná tónleikar. Nú skipuleggur hún og viðburðastýrir tón- leikum og ýmsum öðrum viðburðum af öllum stærðum og gerðum. Hulda er fædd á Sauðárkróki 1. janúar 1963. Foreldrar hennar eru Erla Gígja Þorvaldsdóttir matráður og tónlistarkona og Jónas Þór Pálsson málarameistari, leiktjaldasmiður, trommari og listmálari en hann lést árið 2016. Þau hjónin settu mikinn svip á menningarlíf Skagfirðinga hér á árum áður. Hulda á tvö systkini, Björn f. 1953 skip- stjóra og Þórdísi f. 1957 húsmóður. Naut þess að hlusta „Ég er alin upp á Sauðárkróki, þeim fallega bæ og þar var ákaflega ljúft og gott að alast upp. Ég eignaðist marga góða vini sem enn í dag eru meðal minna bestu vina. Við lékum okkur mikið úti í náttúrunni og brölluðum margt skemmtilegt. Ég var mjög ung þegar ég byrjaði að hlusta á tónlist, pabbi hlustaði á djass og blús en mamma meira á karlakórana og gamla íslenska tónlist. Saman hlustuðu þau svo á klassíska tónlist þannig að tónlistar- valið hjá þeim var mjög fjölbreytt. Ég átti gamlan plötuspilara og naut þess að hlusta, var sjö ára þegar ég eignaðist mína fyrstu vínylplötu, plötu með Bessa Bjarnasyni leikara þar sem hann söng vís- ur Stefáns Jónssonar. Ég var líka aðdáandi Svanhildar Jakobsdóttur og eignaðist marg- ar plötur með henni.“ Ómissandi partur af aðventunni „Jólastemmingin á Króknum þegar ég var að alast upp var einstök. Aðalgatan var hlaðin skemmtilegum verslunum og það var gaman að ganga á milli þeirra og kaupa jólagjafir. Ég var svo heppin að afi minn, Þorvaldur Þorvaldsson, rak verslunina Vísi á þessum árum og þar fékk skólastelpan vinnu fyrir jólin. Afi setti alltaf jólasvein út í glugga og var hann ómissandi partur af aðventunni hjá Króksurum. Ég man sérstaklega stemminguna á Þorláksmessukvöldi þegar opið var til mið- nættis, þá komu margir við í búðinni hjá afa. Sumir til að kaupa í jólamatinn, aðrir til að kaupa jólagjafir og sumir til að fá sér hressingu, eina Spur Cola og Smakk súkku- laði áður en haldið var áfram. Eftir lokun var svo farið til Huldu ömmu sem beið með nýsteiktar kleinur og ískalda mjólk. Ég kem alltaf til með að bera hlýjar og góðar tilfinn- ingar til Sauðárkróks“, segir Hulda og brosir. Hóf störf í Noregi „Hulda gekk í barna- og gagnfræða- skólann á Sauðárkróki og átti þar góð ár. Á sumrin þegar hún hafði aldur til þá starfaði hún í sjoppu, fiski og í versluninni hjá afa og svo hjálpaði hún föður sínum með bók- hald en hann rak málningarfyrirtæki og var oft og tíðum með marga menn í vinnu. Eftir útskrift úr gaggó 1980 fór ég til Nor- egs og hóf störf á SAS hóteli. Mig langaði til að prófa að vinna einhvers staðar annars staðar en á Íslandi og læra nýtt tungumál í leiðinni. Þegar ég kom heim aftur þá fór ég í Fjölbrautarskólann á Sauðárkróki og út- skrifaðist sem stúdent 1984. Ég flutti svo til Reykjavíkur og leigði um tíma með vin- konu minni. Ég hóf nám í snyrtifræði við Fjölbrautaskólann í Breiðholti og útskrifast þaðan árið 1988, í framhaldi starfaði ég svo við förðun í Íslensku óperunni.“ Gaman að skoða nýja staði Hulda kynntist eiginmanni sínum, Garð- ari Hreinssyni smiði, á balli með Geirmundi árið 1983. Þau keyptu sér íbúð í Mosfellsbæ en fluttu fljótlega í Mosfellsdalinn þar sem þau byggðu sér hús og þar búa þau enn. Börn þeirra eru Hreindís Ylva f. 1989 skrifstofu- stjóri, leikari og söngkona og Yngvi Rafn f. 1991 smiður og tónlistarmaður. Barnabörnin eru tvö Arey Hólm og Sóley Herdís. „Hesta og hundahald hefur alltaf fylgt okkur fjölskyldunni. Okkur finnst einnig mjög gaman að ferðast og skoða nýja staði, við Garðar höfum verið dugleg að fara með börnin alveg frá því þau voru lítil. Eftir að þau fluttu að heiman þá hittumst við alltaf reglulega og borðum saman. Okkur finnst líka mjög gaman að skreppa saman í sumarbústaðaferðir og svo eru leikhús og tónleikaferðir í miklu uppáhaldi fyrir jafnt stóra sem smá fjölskyldumeðlimi.“ Ákvað að stíga skrefinu lengra Hulda hefur unnið ýmis konar störf í gegnum tíðina, í fiski, verslunarstörf, bókhaldi, bankastörf og er í dag þjón- ustufulltrúi í Lágafellsskóla. En hvernig skyldi hafa staðið á því að hún fór út í það að halda tónleika? „Þetta byrjaði í rauninni allt með styrktartónleikum, frænka mín og maðurinn hennar voru búin að vera mikið veik og höfðu lítið getað unnið. Mér datt því í hug að hóa sam- an listafólki og halda tónleika fyrir þau. Í kjölfarið fylgdu nokkrir styrktartón- leikar, þar á meðal fyrir tvo Mosfellinga. Þetta gekk allt svo ljómandi vel og var svo skemmtilegt að ég ákvað að stíga skrefinu lengra. Ég ákvað að skella mér í nám í við- burðastjórnun og stofna fyrirtæki í kringum þetta allt saman, Gná tónlist. Þessi verkefni mín eiga hug minn allan og ég er að skipu- leggja og viðburðastýra tónleikum og við- burðum af öllum stærðum og gerðum. Ég hafði reyndar alla mína skólagöngu alltaf verið í árshátíðar-, skemmti- og tónlistar- nefndum svo þetta er greinilega eitthvað sem ég hef alltaf haft mikinn áhuga á.“ Þetta vatt svo upp á sig „Ég hef verið að heiðra gömlu góðu söngvarana okkar, Erlu Þorsteinsdóttur, Helenu Eyjólfsdóttur, Hauk Morthens, Mjöll Hólm og Svanhildi Jakobsdóttur og hafa tónleikarnir farið fram í Hofi á Akur- eyri og í Salnum í Kópavogi. Fyrstu alvöru tónleikarnir sem ég skipu- lagði voru tónleikarnir, Út við himinbláu sundin, þetta áttu bara að vera einir tón- leikar en þeir gengu svo vel að þeir urðu fimm talsins. Þetta vatt svo upp á sig og í kjölfarið fylgdu alls kyns tónleikar og við- burðir m.a. sjómannatónleikar og fleiri heiðurstónleikar.“ Hvað er hægt að biðja um meira „Síðustu tónleikar sem ég hélt voru til heiðurs sjálfum Gunnari Þórðarsyni, Himinn og jörð. Gunnar og fjölskylda hans heiðruðu okkur með nærveru sinni og voru afar sátt, hvað er hægt að biðja um meira?“ segir Hulda og brosir. „Við náum vonandi að endurtaka þessa tónleika því færri kom- ust að en vildu. Fólki finnst gaman að heyra þessa gömlu góðu íslensku lög. Ég hef líka verið að aðstoða aðra við að skipuleggja alls kyns viðburði og nú síðast Rotarý á Íslandi með klassíska tónleika svo eitthvað sé nefnt. Á teikniborðinu eru svo fleiri tónleikar. Þetta er mjög skemmtilegt og gefandi starf sem ég elska,“ segir Hulda að lokum er við kveðjumst. - Mosfellingurinn Hulda Jónasdóttir24 Myndir: Ruth Örnólfsdóttir og úr einkasafni. Fjölskyldan: Hreindís Ylva, Hulda, Hulda með Areyju og Garðar með Sóleyju, Yngvi Rafn og Sigrún Anna. MOSFELLINGURINN Eftir Ruth Örnólfsdóttur ruth@mosfellingur.is Hulda Jónasdóttir viðburðastjóri hefur sett upp tónleika víða um land og er hvergi nærri hætt Þetta gekk allt svo ljómandi vel og var svo skemmtilegt að ég ákvað að stíga skrefinu lengra Tónlist gefur manni svo mikið hulda 9 ára hjónin á ítalíu að loknum tónleikum Hvað ertu að hámhorfa á? Ég er algjör sökker fyrir skandinavískum glæpaseríum og þessa dagana er ég að horfa á Gæsamömmuna. Hvaða tungumál talar þú? Íslensku, ensku og norsku. Hvað er það fyrsta sem þú gerir þegar þú vaknar? Fæ mér kaffibolla og sest í sólstofuna mína, horfi út um gluggann og hugsa hvað ég sé heppin að búa í Mosfellsdalnum. Hvaða lag kemur þér alltaf í gírinn? Það getur verið ansi misjafn, fer eftir stað og stund en ég hlusta mikið á tónlist, Eva Cassidy er í sérstöku uppáhaldi. Besta gjöf sem þú hefur fengið? Ég er skírð í höfuðið á ömmu minni og við vorum mjög nánar. Þegar hún lést þá færði afi mér skartgripasafnið hennar, mér þykir mjög vænt um þá gjöf. Eins myndirnar hans pabba en hann var listmálari. Syngur þú í sturtu? Já það kemur alveg fyrir, svo góður hljómur. Leiðinlegasti dagur vikunnar? Reyni nú yfirleitt að hafa þá bara alla skemmtilega. Hvað er það versta sem þú hafur bragðað? Súr hvalur og hákarl. HIN HLIÐIN

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.