Mosfellingur - 09.05.2024, Síða 24
Hulda Jónasdóttir hlaut tónlistar-
legt uppeldi frá blautu barnsbeini
og hefur tónlistin fylgt henni æ
síðan. Á heimili hennar var mikið hlustað
á blús, djass og klassíska tónlist og gömlu
góðu íslensku lögin voru einnig í háveg-
um höfð.
Árið 2016 skellti Hulda sér í nám í
viðburðastjórnun og stofnaði sitt eigið
fyrirtæki í kjölfarið, Gná tónleikar. Nú
skipuleggur hún og viðburðastýrir tón-
leikum og ýmsum öðrum viðburðum af
öllum stærðum og gerðum.
Hulda er fædd á Sauðárkróki 1. janúar
1963. Foreldrar hennar eru Erla Gígja
Þorvaldsdóttir matráður og tónlistarkona
og Jónas Þór Pálsson málarameistari,
leiktjaldasmiður, trommari og listmálari
en hann lést árið 2016. Þau hjónin settu
mikinn svip á menningarlíf Skagfirðinga
hér á árum áður.
Hulda á tvö systkini, Björn f. 1953 skip-
stjóra og Þórdísi f. 1957 húsmóður.
Naut þess að hlusta
„Ég er alin upp á Sauðárkróki, þeim
fallega bæ og þar var ákaflega ljúft og gott
að alast upp. Ég eignaðist marga góða vini
sem enn í dag eru meðal minna bestu vina.
Við lékum okkur mikið úti í náttúrunni og
brölluðum margt skemmtilegt.
Ég var mjög ung þegar ég byrjaði að
hlusta á tónlist, pabbi hlustaði á djass og
blús en mamma meira á karlakórana og
gamla íslenska tónlist. Saman hlustuðu þau
svo á klassíska tónlist þannig að tónlistar-
valið hjá þeim var mjög fjölbreytt.
Ég átti gamlan plötuspilara og naut þess
að hlusta, var sjö ára þegar ég eignaðist
mína fyrstu vínylplötu, plötu með Bessa
Bjarnasyni leikara þar sem hann söng vís-
ur Stefáns Jónssonar. Ég var líka aðdáandi
Svanhildar Jakobsdóttur og eignaðist marg-
ar plötur með henni.“
Ómissandi partur af aðventunni
„Jólastemmingin á Króknum
þegar ég var að alast upp var
einstök. Aðalgatan var hlaðin
skemmtilegum verslunum og það var
gaman að ganga á milli þeirra og kaupa
jólagjafir.
Ég var svo heppin að afi minn, Þorvaldur
Þorvaldsson, rak verslunina Vísi á þessum
árum og þar fékk skólastelpan vinnu fyrir
jólin. Afi setti alltaf jólasvein út í glugga og
var hann ómissandi partur af aðventunni
hjá Króksurum.
Ég man sérstaklega stemminguna á
Þorláksmessukvöldi þegar opið var til mið-
nættis, þá komu margir við í búðinni hjá
afa. Sumir til að kaupa í jólamatinn, aðrir
til að kaupa jólagjafir og sumir til að fá sér
hressingu, eina Spur Cola og Smakk súkku-
laði áður en haldið var áfram. Eftir lokun
var svo farið til Huldu ömmu sem beið með
nýsteiktar kleinur og ískalda mjólk.
Ég kem alltaf til með að
bera hlýjar og góðar tilfinn-
ingar til Sauðárkróks“, segir
Hulda og brosir.
Hóf störf í Noregi
„Hulda gekk í barna- og gagnfræða-
skólann á Sauðárkróki og átti þar góð ár. Á
sumrin þegar hún hafði aldur til þá starfaði
hún í sjoppu, fiski og í versluninni hjá afa
og svo hjálpaði hún föður sínum með bók-
hald en hann rak málningarfyrirtæki og var
oft og tíðum með marga menn í vinnu.
Eftir útskrift úr gaggó 1980 fór ég til Nor-
egs og hóf störf á SAS hóteli. Mig langaði til
að prófa að vinna einhvers staðar annars
staðar en á Íslandi og læra nýtt tungumál
í leiðinni.
Þegar ég kom heim aftur þá fór ég í
Fjölbrautarskólann á Sauðárkróki og út-
skrifaðist sem stúdent 1984. Ég flutti svo
til Reykjavíkur og leigði um tíma með vin-
konu minni. Ég hóf nám í snyrtifræði við
Fjölbrautaskólann í Breiðholti og útskrifast
þaðan árið 1988, í framhaldi starfaði ég svo
við förðun í Íslensku óperunni.“
Gaman að skoða nýja staði
Hulda kynntist eiginmanni sínum, Garð-
ari Hreinssyni smiði, á balli með Geirmundi
árið 1983. Þau keyptu sér íbúð í Mosfellsbæ
en fluttu fljótlega í Mosfellsdalinn þar sem
þau byggðu sér hús og þar búa þau enn. Börn
þeirra eru Hreindís Ylva f. 1989 skrifstofu-
stjóri, leikari og söngkona og Yngvi Rafn f.
1991 smiður og tónlistarmaður. Barnabörnin
eru tvö Arey Hólm og Sóley Herdís.
„Hesta og hundahald hefur alltaf fylgt
okkur fjölskyldunni. Okkur finnst einnig
mjög gaman að ferðast og skoða nýja staði,
við Garðar höfum verið dugleg að fara með
börnin alveg frá því þau voru lítil. Eftir að
þau fluttu að heiman þá hittumst við alltaf
reglulega og borðum saman. Okkur finnst
líka mjög gaman að skreppa saman í
sumarbústaðaferðir og svo eru leikhús
og tónleikaferðir í miklu uppáhaldi fyrir
jafnt stóra sem smá fjölskyldumeðlimi.“
Ákvað að stíga skrefinu lengra
Hulda hefur unnið ýmis konar störf
í gegnum tíðina, í fiski, verslunarstörf,
bókhaldi, bankastörf og er í dag þjón-
ustufulltrúi í Lágafellsskóla. En hvernig
skyldi hafa staðið á því að hún fór út í
það að halda tónleika? „Þetta byrjaði
í rauninni allt með styrktartónleikum,
frænka mín og maðurinn hennar voru
búin að vera mikið veik og höfðu lítið
getað unnið. Mér datt því í hug að hóa sam-
an listafólki og halda tónleika fyrir þau.
Í kjölfarið fylgdu nokkrir styrktartón-
leikar, þar á meðal fyrir tvo Mosfellinga.
Þetta gekk allt svo ljómandi vel og var svo
skemmtilegt að ég ákvað að stíga skrefinu
lengra. Ég ákvað að skella mér í nám í við-
burðastjórnun og stofna fyrirtæki í kringum
þetta allt saman, Gná tónlist. Þessi verkefni
mín eiga hug minn allan og ég er að skipu-
leggja og viðburðastýra tónleikum og við-
burðum af öllum stærðum og gerðum. Ég
hafði reyndar alla mína skólagöngu alltaf
verið í árshátíðar-, skemmti- og tónlistar-
nefndum svo þetta er greinilega eitthvað
sem ég hef alltaf haft mikinn áhuga á.“
Þetta vatt svo upp á sig
„Ég hef verið að heiðra gömlu góðu
söngvarana okkar, Erlu Þorsteinsdóttur,
Helenu Eyjólfsdóttur, Hauk Morthens,
Mjöll Hólm og Svanhildi Jakobsdóttur og
hafa tónleikarnir farið fram í Hofi á Akur-
eyri og í Salnum í Kópavogi.
Fyrstu alvöru tónleikarnir sem ég skipu-
lagði voru tónleikarnir, Út við himinbláu
sundin, þetta áttu bara að vera einir tón-
leikar en þeir gengu svo vel að þeir urðu
fimm talsins. Þetta vatt svo upp á sig og í
kjölfarið fylgdu alls kyns tónleikar og við-
burðir m.a. sjómannatónleikar og fleiri
heiðurstónleikar.“
Hvað er hægt að biðja um meira
„Síðustu tónleikar sem ég hélt voru
til heiðurs sjálfum Gunnari Þórðarsyni,
Himinn og jörð. Gunnar og fjölskylda hans
heiðruðu okkur með nærveru sinni og voru
afar sátt, hvað er hægt að biðja um meira?“
segir Hulda og brosir. „Við náum vonandi
að endurtaka þessa tónleika því færri kom-
ust að en vildu. Fólki finnst gaman að heyra
þessa gömlu góðu íslensku lög.
Ég hef líka verið að aðstoða aðra við að
skipuleggja alls kyns viðburði og nú síðast
Rotarý á Íslandi með klassíska tónleika svo
eitthvað sé nefnt. Á teikniborðinu eru svo
fleiri tónleikar. Þetta er mjög skemmtilegt
og gefandi starf sem ég elska,“ segir Hulda
að lokum er við kveðjumst.
- Mosfellingurinn Hulda Jónasdóttir24
Myndir: Ruth Örnólfsdóttir og úr einkasafni.
Fjölskyldan: Hreindís Ylva, Hulda, Hulda með Areyju
og Garðar með Sóleyju, Yngvi Rafn og Sigrún Anna.
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
Hulda Jónasdóttir viðburðastjóri hefur sett upp tónleika víða um land og er hvergi nærri hætt
Þetta gekk allt svo ljómandi
vel og var svo skemmtilegt
að ég ákvað að stíga skrefinu
lengra
Tónlist gefur manni svo mikið
hulda 9 ára hjónin á ítalíu
að loknum tónleikum
Hvað ertu að hámhorfa á? Ég er algjör
sökker fyrir skandinavískum glæpaseríum
og þessa dagana er ég að horfa á
Gæsamömmuna.
Hvaða tungumál talar þú? Íslensku,
ensku og norsku.
Hvað er það fyrsta sem þú gerir þegar
þú vaknar? Fæ mér kaffibolla og sest
í sólstofuna mína, horfi út um gluggann
og hugsa hvað ég sé heppin að búa í
Mosfellsdalnum.
Hvaða lag kemur þér alltaf í gírinn?
Það getur verið ansi misjafn, fer eftir stað
og stund en ég hlusta mikið á tónlist, Eva
Cassidy er í sérstöku uppáhaldi.
Besta gjöf sem þú hefur fengið? Ég er
skírð í höfuðið á ömmu minni og við vorum
mjög nánar. Þegar hún lést þá færði afi
mér skartgripasafnið hennar, mér þykir
mjög vænt um þá gjöf. Eins myndirnar
hans pabba en hann var listmálari.
Syngur þú í sturtu? Já það kemur alveg
fyrir, svo góður hljómur.
Leiðinlegasti dagur vikunnar? Reyni nú
yfirleitt að hafa þá bara alla skemmtilega.
Hvað er það versta sem þú hafur
bragðað? Súr hvalur og hákarl.
HIN HLIÐIN