Mosfellingur - 09.05.2024, Qupperneq 30

Mosfellingur - 09.05.2024, Qupperneq 30
 - Fréttir úr bæjarlífinu30 Það ætti ekki að hafa farið fram hjá neinum að sólin hefur hækkað á lofti og hljóðin úti breyst, við heyrum í börnum leika sem er hinn sanni vorboði og um leið er erfiðara að halda þeim að heimanámi. Eftir lang- an vetur þráum við frí. Einn þáttur ætti alls ekki að fara í frí en það er lestur. Lestur er undirstaða náms og með lestri er verið að auka orðaforða og lesskilning. Við lestur bóka dýpkar orðaforði sem er undirstaða góðs lesskilnings. Nú gengur sumarið í garð og losnar um rútínuna sem einkennir vetrarstarf- ið. Mikilvægt er að muna eftir lestrinum því annars er hætt við að árangur vetr- arins glatist. Á sumrin bjóðast tækifæri til þess að brjóta upp lestrarstundirnar. Stöldrum við og sýnum lestrarefni barn- anna áhuga til dæmis að ræða við þau um það sem er verið að lesa. Börn á öllum aldri vilja að lesið sé fyrir þau og með þeim. Eflum skilning þeirra á því sem þau eru að lesa til dæmis með samtali um bækur eða lesa það sem fyrir augu ber eins og auglýsingar, mataruppskriftir, matseðil eða draga fram uppáhaldsbókina og lesa hana aftur. Við sýnum þannig að lestur er alls staðar. Megin markmiðið er að taka ekki frí og gera lestrarstundir að jákvæðri samverustund sem allir njóta og sýnum gott fordæmi með því að lesa sjálf. Að setjast niður með bók í hönd er töfrastund sem gefur okkur tækifæri til þess að fræðast og gleðjast. Lestur er kjarninn í öllu námi og nýt- um tímann fram undan til þess að njóta þess að lesa, lærum að nota tækifærin sem bjóðast. Með lestri erum við að gefa börnunum okkar bestu gjöf sem við getum gefið þeim. Kæru íbúar Mosfellsbæjar Gleðilegt lestrarsumar Kristín Edda Guðmundsdóttir, ráðgjafi í skólaþjónustu Mosfellsbæjar Sumarið er tíminn - til þess að lesa fræðsluskrifstofa mosfellsbæjar skóla hornið Íslandsmótið í sveitakeppni í bridge fór fram í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ dagana 25.-28. apríl. Sveit InfoCapital gerði sér lítið fyrir og tryggði sér Íslands- meistaratitilinn. Sveit Tick Cad ehf hafnaði í 2. sæti og sveit Kjörís í 3. sæti. Íslandsmótið í bridge í Fmos Sunnudaginn 14. apríl fór fram Íslandsmót skólasveita í skák í Rimaskóla. Lágafellsskóli sendi lið í keppnina fyrir 8.-10. bekk. Tefld- ar voru sjö umferðir eftir svissneska kerfinu og höfðu leikmenn 10+2 mín umhugsunar- tíma. Fjórir skipa hvert lið og eftirfarandi nemendur skipuðu lið Lágafellsskóla: Vignir Óli Gunnlaugsson, Jóel Tobiasson Helmer, Arnar Bjartur Valdimarsson og Hrafn Elí Arndal Maríuson úr 8. bekk. Alls kepptu 22 sveitir á mótinu og Skák- sveit Lágafellsskóla endaði í 6. sæti. Flottur árangur hjá strákunum og er skólinn virki- lega stoltur af þeim og árangri þeirra. Kepptu á Íslandsmóti í skák skólasveit lágafellsskóla Þann 23. apríl fór 4. árgangur í Varmárskóla í langþráð skólaferðalag til Vestmanna- eyja. „Aðdragandi ferðalagsins var langur en skemmtilegur en við höfum verið að læra um eldgos í vetur. Við vildum fræðast meira og úr varð að ákveðið var að fara til Vest- mannaeyja og læra um eldgosið í Heimaey og hvaða áhrif það hafði á samfélagið þar. Farið var í að safna fyrir ferðinni, haldin var myndlistarsýning með vöfflusölu og söfnuðum við líka dósum. Þetta tókst hratt og vel og ferðin sett á dagsskrá. Farið var með rútu til Landeyja og Herjólfi þaðan til Eyja. Veðrið lék við okkur allan tímann. Í Eyjum heimsóttum við Eldheimasafnið þar sem hægt var að skoða hús sem hafði verið grafið upp úr hrauninu. Þaðan var farið í Herjólfsdal þar sem við gátum leikið okkur og svo skoðuðum við Herjólfsskála. Þar lærðum við um landnámsmanninn Herjólf og hans fólk. Við fengum tækifæri til að heimsækja mjaldrana í Sealife. Þeir léku á als oddi og sýndu listir sínar. Við keyrðum um eyjuna og sáum öll helstu kennileiti eyjanna. Stakkó og Vigtartorg voru skemmtilegir staðir fyrir samveru og nutum við þess að leika okkur saman. Heimleiðin gekk líka eins og í sögu enda sjórinn sléttur og útsýnið stórbrotið. Allir fóru sáttir og sælir að sofa um kvöldið enda mikil ævintýraferð að baki. Bestu kveðjur frá umsjónarkennurum 4. bekkjar í Varmárskóla. Nemendur í skólaferðalag til Vestmannaeyja heimferð í herjólfi

x

Mosfellingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.