Mosfellingur - 09.05.2024, Page 31
Matjurtagarðar
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um matjurtagarða í Mosfellsbæ
Matjurtagarðar bæjarins verða staðsettir austan
við Varmárskóla þar sem gömlu skólagarðarnir hafa
verið. Aðkoma að görðunum verður að norðanverðu
frá tjaldsvæðinu við eldri deild Varmárskóla.
Aðgengi að vatni og kaffiskúr verður við garðana.
Staðsetningu garða og fyrirkomulag
má sjá á meðfylgjandi korti.
Leiguverð fyrir matjurtagarða er óbreytt,
eða 2.500 kr. fyrir 50 fm garð.
Tekið er við umsóknum á
netfangið matjurtagardar@mos.is
garðar verða tilbúnir til notkunar
föstudaginn 17. maí nk.
Einnig eiga íbúar í Mosfellsbæ
möguleika á að fá leigða mat-
jurtagarða á vegum Reykjavíkur-
borgar í Skammadal. Umhverfis- og
skipulagssvið Reykjavíkurborgar sér
um útleiguna og geta áhugasamir sett
sig í samband við Þóru Jónasdóttur, umsjónarmann matjurtagarða
í Reykjavík, í síma 411 1111, eða í netfangið matjurtagardar@
reykjavik.is, og látið skrá sig á lista með ósk
um garð. Taka þarf fram að viðkomandi sé
íbúi í Mosfellsbæ.
Umhverfissvið Mosfellsbæjar
www.mosfellingur.is - 31