Mosfellingur - 09.05.2024, Qupperneq 32

Mosfellingur - 09.05.2024, Qupperneq 32
 - Aðsendar greinar32 Þverholti 3 - Sími: 566-6612 FÓTAAÐGERÐASTOFA MOSFELLSBÆJAR Leirvogstunga 27, 270 Mosfellsbæ, sími: 864 6600 Gólfefna lausnir fyrir heimili og fyrirtæki Þjónusta við mosfellinga www.bmarkan.is Smiðjuvegi 60 (rauð gata) Kópavogi - Sími 557 2540 Hj‡lmar Guðmundsson Lšggildur hœsasm’ðameistari s:6959922 fhsverk@gmail.com Ein af helstu gönguleiðum mínum í okkar fallega útivistarbæ er meðfram Leiruvoginum. Í dag, á síðasta degi í apríl í fallegu veðri varð stórkostleg uppákoma: Margæsir hundruðum saman flugu inn voginn með tilheyrandi kvaki og látum. Þessir fuglar eru alltaf á vorin og haustin gest- ir hjá okkur, næra sig hér í leirunum í stuttan tíma áður en þeir fljúga áfram á sínni löngu leið frá kanadískum íshafseyjum til vetrardvalar á Írlandi. Án þess að stoppa hér á þessari „bens- ínstöð“ gætu þær ekki komist þetta. Leirur eins og margæsin þarf eru einungis á Vesturlandi og frekar sjaldgæfar á landsvísu. Við þurfum að standa vörð um Leiruvoginn okkar. Þetta er bæði útivistarparadís sem margir nota og njóta og með bestu fuglaskoðunarstöð- um á landinu. Áformin um Sundabrautina þarf að hugsa vel og vandlega. Brú með fyllingum mun hefta út- og inn- streymi sjávar í voginn þannig að jarðefni mun smám saman safnast fyrir og vogurinn mun grynnast. Lífríkið mun verða fyrir talsverðum breytingum og áhrif á fuglalífið gæti orðið mik- ið. Nú munu margir hugsa þannig að fuglarnir komi þeim ekki við, þeir vilja koma stystu og fljótustu leið sína á bíl. En þetta er ekki svona einfalt. Ef við höfum neikvæð áhrif á vistkerfi og jafnvel skemmum þau, þá kemur þetta á endanum okkur sjálfum í koll. Öll vistkerfin eru samspil af mörgum þáttum sem við menn áttum okkur oft ekki á. Við sem notum gönguleiðir um Leiruvoginn okkar til heilsubóta og ánægju værum örugglega ekki kát að fá umferðaniðinn sem myndi stafa af hábrú þegar við viljum njóta náttúrunnar og kyrrðarinnar. Sundabrautina þarf að hanna með þetta í huga þó að það kosti meira. Við Mosfellingar eigum ekki að sætta okkur við ódýrustu leiðina sem gæti skemmt okkar útivistarparadís sem Leiruvogurinn er. Úrsúla Jünemann Leiruvogurinn okkar Ársreikningur Mosfellsbæjar fyrir árið 2023 liggur nú fyrir og sitt sýnist hverjum um nið- urstöðuna. Niðurstaða rekstrarreikn- ings A-hluta Mosfellsbæjar er jákvæð sem nemur tæpum 230 milljónum, rekstrarniðurstaða A- og B-hluta var árið 2023 tæpar 341 milljónir, sem er þó lakari útkoma en áætlað var og er það þrátt fyrir umtalsvert hærri tekjur en áætlanir gerðu ráð fyrir á árinu. Ástæða jákvæðrar rekstrarniðurstöðu Ekki er hægt að segja að reksturinn sé sjálfbær þar sem jákvæða rekstr- arniðurstaðan er að mestu vegna hækkunar skatta, gjalda og álaga á íbúa en mestu munar þó um einskiptistekjur af sölu byggingarréttar og leiðréttingar á tekjum frá Jöfnunarsjóði m.a. vegna skólamála. Hagnaður ársins af A-hluta er nær sá sami og hækkun fasteignaskatta á íbúa bæjarins eða um 250 milljónir. Hér er um að ræða hækkanir á fasteignaeigendur og fyrirtæki, það er ekki er um að ræða fjölgun íbúa í bænum heldur hækkanir á fasteignagjöldum. Þetta er áhugavert þar sem fram kemur í málefnasamningi meirihlutans að ætlunin sé að lækka fasteignaskatta til að koma til móts við hækkun á fasteignamati. Tekjur, gjöld og framkvæmdir Framlag Jöfunarsjóðs hefur aukist síðustu árin, útsvarstekjur hækkuðu á milli áranna 2022 og 2023 um 1,2 milljarð, fasteignskattur um 250 milljónir, framlag Jöfunarsjóðs um rúmar 700 milljónir og aðrar tekjur um 1 milljarð. Er hér m.a. um að ræða hækkun tekna vegna hækkunar útsvarsprósentu og hækkunar á gjaldskrá. Launakostnaður hækkaði um 1,3 milljarð á milli áranna 2022 og 2023 og er hluti hækkun- arinnar vegna stöðugilda sem fylgja Skálatúni og kjarasamningshækkana eða um 1.1 milljarður. Annar rekstarkostnaður hækkar um 500 millj- ónir milli áranna. Áætluð útgjöld vegna varanlegra fastafjár- muna voru áætluð 2,1 milljarður en á árinu fóru 1,8 milljarð í framkvæmdir og þar af 158 milljón- ir umfram áætlaðan kostnað í Kvíslarskóla. Hluti af öðrum áætluðum framkvæmdum var frestað á árinu. Rekstrarniðurstaða félags- legra íbúða var neikvæð um 41 milljón á árinu en var jákvæð árið 2022 um 4,6 milljónir. Þá var rekstrarniðurstaða Hlé- garðs neikvæð um 4,3 millj- ónir. Það sem stendur upp úr í ársreikningnum er m.a. að: • skattar og álögur á íbúa hafa stórhækkað annað árið í röð • skuldir aukast milli ára um tvo milljarða • kostnaður við rekstur bæjar- ins eykst milli ára um 20% • launakostnaður jókst um 21% milli ára á meðan launvísitalan hækkaði um 7% • stöðugildum fjölgar mikið • tekjur eru mun hærri en áætlun gerði ráð fyrir Rekstrarhorfur næstu ára Miðað við að vextir og verðbólga virðast ætla að lækka hægar en áætlanir gerðu ráð fyrir, er ljóst að fara þarf í hagræðingar og lækkun á út- gjöldum. Það veldur því áhyggjum að í áætlun næsta árs má sjá áframhaldandi innleiðingu á nýju skipuriti með fjölgun stöðugilda. Íbúum í Mosfellsbæ fjölgar áfram og traustur rekstur undanfarinna ára og sterk fjárhagsstaða eiga að gera sveitarfélaginu kleift að veita íbúum áfram framúrskarandi þjónustu sem stöðugt hefur verið að aukast og mun vonandi gera áfram. Það jákvæða í rekstrarhorfum bæjarins er þó að í fyrsta sinn í mjög mörg ár er Mosfellsbær eigandi að landi sem var úthlutað lóðum á síð- asta ári og verður úthlutað áfram á næstu 2-3 árum og mun það tryggja hundruð milljóna í tekjur á hverju ári fyrir sveitarfélagið. Við bæjarfulltrúar D-lista í Mosfellsbæ munum áfram styðja góðar tillögur og hvetja meirihlutann áfram til góðra verka. Við munum einnig halda áfram að koma okkar tillögum og stefnumálum á framfæri svo áfram verði best að búa í Mosó. Bæjarfulltrúar D-lista Mosfellsbæ, Ásgeir Sveinsson Jana Katrín Knútsdóttir Rúnar Bragi Guðlaugsson Helga Jóhannesdóttir Ársreikningur Mosfellsbæjar 2023

x

Mosfellingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.