Mosfellingur - 24.10.2024, Page 2

Mosfellingur - 24.10.2024, Page 2
Í þá gömlu góðu ... Umsjón: Birgir D. Sveinsson (birgird@simnet.is) MOSFELLINGUR www.mosfellingur.is - mosfellingur@mosfellingur.is Næsti MosfelliNgur keMur út 28. NóveMber Útgefandi: Mosfellingur ehf., Spóahöfða 26, sími: 694-6426 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hilmar Gunnarsson, hilmar@mosfellingur.is Ritstjórn: Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, annaolof@mosfellingur.is Ragnar Þór Ólason, raggiola@mosfellingur.is Ruth Örnólfsdóttir, ruth@mosfellingur.is Prentun: Landsprent. Upplag: 5.000 eintök. Dreifing: Afturelding. Umbrot og hönnun: Mosfellingur ehf. Próförk: Ingibjörg Valsdóttir ISSN 2547-8265 Tekið er við aðsendum greinum á mosfellingur@mosfellingur.is og skulu þær ekki vera lengri en 500 orð. Efni og auglýsingar skulu berast fyrir kl. 12, mánudegi fyrir útgáfudag. Mosfellingur kemur út mánaðarlega. Það var stór stund þegar flautað var til leiksloka á Laugardalsvelli þann 28. september. Afturelding tryggði sér þá sæti í efstu deild karla í knattspyrnu. Mosfellsbær hefur löngum verið fjölmennasti byggðarkjarni á Íslandi sem aldrei hefur átt lið í efstu deild karla í fótbolta. Nú breytist það á næsta ári. Þegar maður sjálfur var lítill gutti að æfa var meistaraflokkur Aftur- eldingar oftar en ekki að ströggla í 4. deild. Nú er öldin önnur og Mosfell- ingar geta glaðst og tekið þátt í nýjum kafla í sögunni. Magnús Már þjálfari á hrós skilið fyrir sína miklu vinnu í kring- um liðið og Gísli Elvar sem haldið hefur utan um öflugt meistara- flokksráð. Þá hafa leikmenn lagt allt í sölurnar og hrifið áhorfendur með og alla þá sjálfboðaliða sem haf lagt hönd á plóg. Það er tilhlökkun fyrir næsta tímabili þar sem við fáum að spreyta okkur í Bestu deildinni 2025. Besta deildin 2025 Hilmar Gunnarsson, ritstjóri Mosfellings www.isfugl.is 6 - Bæjarblaðið í Mosfellsbæ2 mosfellspósturinn og ljósmyndasafn Héðan og þaðan Hinn 12. desember 1980 hóf bæjarblaðið Mosfellspóstur- inn göngu sína og var fyrsta ópólitíska blaðið sem gefið var út í Mosfellsbæ. Blaðið var átta blaðsíður í dagblaðsbroti, kom að jafn- aði út tvisvar í mánuði og kostaði 400 krónur í lausasölu í fyrstu. Nokkrum vikum síðar var verð blaðsins lækkað niður í sex krónur en það átti sér eðlilegar skýringar: myntbreyting gekk í garð á Íslandi. Anna Bjarnason (1933-1998) ritstýrði Mosfellspóstin- um fyrstu árin og eiginmaður hennar, Atli Steinarsson (f. 1929), vann einnig mikið við blaðið sem skapaði sér fljótlega fastan sess í sveitarfélaginu. Mosfellspósturinn kom út á árunum 1980-1983 og 1986-1989, síðustu tvö árin ritstýrði Birna E. Gunnars- dóttir (f.1948) blaðinu. Mosfellspósturinn fjallaði eingöngu um innansveitar- mál og spurði eitt sinn: Hvenær er maður orðinn Mosfell- ingu? Einn lesenda svaraði spurningunni þannig: Þegar þér finnst leiðin upp í Mos- fellssveit vera orðin styttri en leiðin til Reykjavíkur, þá ertu orðinn Mosfellingur. Ljósmyndasafn Mosfells- póstsins geymir frábærar myndir frá því tímabili sem hann kom út, bæði af mannlífi og viðburðum í bæjarfélaginu. Undirritaður hefur óspart sótt efni í pistl- ana „Í þá gömlu góðu“ í þessar heimildir. Á myndinni eru ungir og upprennandi íþróttamenn með þjálfara sínum Bjarka Sigurðssyni. Ég fékk aðstoð við að þekkja og nafnsetja strákana og kaus að nota nöfnin eins og ég fékk þau í hendur. Heimild: Mosfellsbær, saga byggðar í 1100 ár. AftAri röð: Jói, Andrés, Egill, Biggi, Villi og BJArki sig. frEmri röð: BEnni, Þórður, Víðir, mundi og ElVAr.

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.