Mosfellingur - 24.10.2024, Side 30

Mosfellingur - 24.10.2024, Side 30
 - Skólahornið30 Laus störf í Mosfellsbæ Öll laus störf hjá Mosfellsbæ og stofnunum má sjá og sækja um á ráðningarvef bæjarins: www.mos.is/storf Þann 17. september síðastliðinn var haldinn fjölmennur fundur með foreldrum ungmenna í Mosfellsbæ, starfsfólki Fræðslu- og frístundasviðs og Velferðarsviðs ásamt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, Kára Sigurðssyni og öðrum góðum gestum. Fjallað um hvað við öll gætum gert til að börnum okkar líði vel og hvernig hægt væri að vinna að vellíðan þeirra og öryggi. Eitt af því sem kom til umræðu og hvatt var til, var að efla þátt- töku í foreldrarölti á föstudagskvöld- um í samvinnu við Bólið félags- miðstöð. Röltið í vetur skiptist á milli bekkja í unglingadeild. Skemmst er frá því að segja að þátttaka foreldra í foreldraröltinu hefur verið frábær og fyrir það ber að þakka. Markmið með foreldrarölt- inu er m.a. að mynda tengsl og stuðla að samtali milli foreldra í bænum. For- eldrar kynnast hvert öðru og hefur röltið jákvæð áhrif á hverfisbraginn. Nærvera foreldra hefur róandi og fyrirbyggjandi áhrif, gefur unglingun- um okkar tækifæri á að leita aðstoðar fullorðinna ef þörf er á og veitir ákveðið öryggi. Öryggi hverfisins er líka sam- félagsleg ábyrgð og því meiri sýnileiki í hverfinu, því betri forvörn gegn óæski- legri hópamyndun, vímuefnaneyslu eða ofbeldi. Foreldraröltið er gott dæmi um að „það þarf heilt þorp til að ala upp barn“. Miðað er við að röltið taki rúmlega klukkutíma en það er auð- vitað mismunandi eftir föstudögum. Foreldrar fá mynd af gönguleið og er hún jafnframt aðgengileg á Facebook-síðu foreldraröltsins. Leiðin er aðeins til viðmiðunar og til að styðjast við. Foreldrar hafa ekki inngripsvald og ekki er gert ráð fyrir að þeir aðhafist að öðru leyti en að spjalla. Takk kærlega fyrir frábæra þátttöku á fundi er varða börnin okkar og takk fyrir að leggja ykkar af mörkum með því að taka þátt í röltinu! Hvetjum ykkur til að kíkja á Facebook síðuna okkar Foreldrarölt í Mosfells- bæ. Starfsfólk félagsmiðstöðvarinnar Ból Það þarf heilt þorp til að ala upp barn Fræðslu- og Frístundasvið MosFellsbæjar skóla hornið Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Næsta blað kemur út: 28. Nóvember Efni og auglýsingar skulu berast fyrir kl. 12, mánudaginn 25. nóvember.

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.