Mosfellingur - 24.10.2024, Blaðsíða 8

Mosfellingur - 24.10.2024, Blaðsíða 8
Eldri borgarar • þjónustumiðstöðin brúarlandi • fram undan í starfinu Skrifstofa félagsstarfsins er opin alla virka daga kl. 13–16. Sími félags- starfsins er 586-8014. Forstöðumaður félagsstarfs eldri borgara í Mosfellsbæ er Elva Björg Pálsdóttir tómstunda- og félagsmálafræðingur, s: 698-0090. Skrifstofa FaMos í Brúarlandi er opin alla fimmtudaga frá kl. 15–16. Stjórn FaMoS Félag aldraðra í Mosfellsbæ og nágrenni famos@famos.is www.famos.is Í byrjun september flutti félagsstarfið sig um set og opnaði í Brúarlandi - húsinu okkar. Það hefur verið virkilega gaman að sjá fullt af nýjum andlitum bætast við starfið og verða okkar daglegu gestir. Brúarland er félagsmiðstöð fullorðna fólksins og mörg spennandi og skemmtileg námskeið hjá okkur sem ættu að henta flestum. Opnunartími er mánud. - fimmtud. 11-16 og föst. 13-16. Verið velkomin, alltaf kaffi á könnunni. opið hús/menningarkvöld 18. nóvember 2024 Mosfellskórinn í Harðarbóli. Opið hús mánudaginn 18. nóvember í Harðarbóli kl. 20. Mosfellskórinn var stofnaður 1988 af Páli heitnum Helgasyni, sem einnig var stjórnandi kórsins til 2009, þegar Vilberg Viggósson tók við. Stefna kórsins er að flytja innlend sem erlend dægurlög og popplög. Kaffi- nefndin verður svo með sitt rómaða kaffihlaðborð að venju. Aðgangseyrir er kr. 2.000 (posi verður á staðnum). Með kveðju, Menningar- og skemmtinefnd FaMos. BaSar 2024 í Hlégarði Sunnudaginn 24. nóvember kl. 14-17. Hinn árlegi basar á vegum félagsstarfsins í Mosfellsbæ verður haldinn sunnudagin 24. nóv. kl. 14-17 í Hlégarði, Háholti 2. Fallegar handunnar vörur á afar góðu verði og úrvalið fjölbreytt. Allur ágóði af seldum vörum fer til þeirra sem þurfa aðstoð í bænum okkar. Posi á staðnum. Kór eldri borgara Vorboðar mun syngja fyrir gesti. Kaffisala á vegum kirkjukórsins verður á staðnum. Hlökkum til að sjá sem flesta á basarnum. STYRKJUM GOTT MÁLEFNI. jólaskreytingar/leiðis- skreytingar með Brynju Miðvikudaginn 27. nóv. og fimmtu- dag 28. nóv. frá 12-15 ætlar Brynja Halldórsdóttir að vera með tilsögn í skreytingagerð og hjálpa þeim sem vilja búa til nýjar jólaskreytingar eða dusta rykið af þeim gömlu, einnig tilvalið að gera leiðisskreytingar. Endilega komið með það efni sem þið eigið sjálf og þið viljið nota. Allskonar skreytingarefni verður til líka á staðnum. Kennt í Brúarlandi, Háholti 3. Kostaður mismunandi eftir umfangi. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku í síma 586-8014 eða á elvab@mos.is Hittumst í Hlégarði Hittumst í Hlégarði fer í frí 5.,12. og 19. nóv vegna framkvæmda í Hlégarði og hittumst því næst þriðjudaginn 26. nóv kl. 13. SPIl SPIl SPIl ... Minnum á að það er spilað Kanasta á þriðjudögum í Hlégarði, Kínaskák á fimmtud. í Brúarlandi og félagsvist á föstud. á Eirhömrum Hlaðhömrum 2. Vertu með. jónas Sigurðsson formaður s. 666 1040 jonass@islandia.is jóhanna B. Magnúsdóttir varaformaður s. 899 0378 hanna@smart.is Þorsteinn Birgisson gjaldkeri thorsteinn.birgis@gmail.com guðrún K. Hafsteinsdóttir ritari s. 892 9112 gunnasjana@simnet.is ólafur guðmundsson meðstjórnandi s. 868 2566 polarafi@gmail.com Ingibjörg g. guðmundsdóttir varamaður s. 894 5677 igg@simnet.is Hrund Hjaltadóttir varamaður s. 663 5675 hrundhj@simnet.is Mosfellsbær semur um snjómokstur Mosfellsbær hefur samið við tvo verktaka um snjómokstur fyrir bæj- arfélagið. Annars vegar vegna stofn- og tengibrauta og hins vegar vegna húsagatna og bílaplana stofnana bæjarins. Íslenska gámafélagið mun sjá um vetrarþjónustu stofn- og tengibrauta og gild­ir samningurinn fyrir árin 2024-2027 með möguleika á framlengingu um tvö ár, eitt ár í senn. Samningurinn er með bætt þjónustustig en frá fyrra útboði er búið að bæta við fleiri götum við stofn- og tengibrautir. Einnig voru und­irritaðir snjómokst- urssamningar við Malbikstöðina vegna vetrarþjónustu húsagatna og bílaplana stofnana. Í þessum samn- ingum er einnig um þjónustuaukn- ingu að ræða. Í útboði ársins 2024 voru húsagötur og bílaplön boðin út saman. Mikilvægt var að bjóða út hálkuvörn og mokstur helstu húsagatna þar sem ábend­ingar á liðnum vetri voru á þá leið að bæta þyrfti þessa þjónustu við íbúa. Þjónustustöð Mosfellsbæjar sér um mokstur og hálkueyðingu á öllum stígum bæjarins og helstu gang- stéttum í hverfum þar sem hægt er að koma því við. Upplýsingar um vetrarþjónustu í Kortasjá Mosfells- bæjar verða uppfærðar á næstunni í samræmi við þessar breytingar. Ólafsvaka, söngskemmtun, verður hald­in þann 31. október í tilefni 60 ára afmælis Ólafs M. Magnússonar. Efnt verður til tón- leika í Langholtskirkju með tónlistar- og söngvinum afmælisbarnsins. Allur ágóði af tónleikunum rennur til styrktar ungmennum í vímuefnavand­a hjá SÁÁ. „Þannig viljum við heiðra minningu Magnúsar And­ra Sæmund­ssonar bróður- sonar míns sem lést langt fyrir ald­ur fram aðeins 19 ára gamall úr fíknisjúkd­óm. Fráfall Magnúsar And­ra var okkur fjöl- skyld­u hans mikið áfall en það er sorglegt að við vorum síður en svo eina fjölskyld­an sem stóð í þessum sporum en alls d­óu um 40 ungmenni á sama hátt á 12 mánaða tímabili. Við viljum vekja athygli á þeirri þungu og erfiðu aðstöðu sem ungmennin okkar þurfa að fást við í d­ag.“ láta gott af sér leiða „Öflugir aðilar hald­a sterkt að þeim fíkni- efnum og nota skólana og öll tækifæri til þess að nálgast nýja notend­ur og beita öllum brögðum til þess. Börn glíma jafnframt við mikið álag frá samfé- lagsmiðlum sem gera miklar kröf- ur til þeirra og rannsóknir hafa sýnt meiri einsemd­ og vanlíðan ungmenna. Ásamt því að ofbeld­i og mikil harka í samskiptum gagnvart þeim virðist vera að aukast. Við viljum því vekja alla til umhugsunar um þá erfiðu stöðu sem börn og ung- menni búa við í d­ag og leggja okkar lóð á vogarskálarnar til að rétta þeim þá hjálp- arhönd­ sem við getum. Um leið og við höld­um frábæra söng- skemmtun með léttu ívafi, viljum við láta gott af okkur leiða og væri mikil ánægja að sjá ykkur sem flest,“ segir Ólafur en miða- sala er hafin á Tix.is. Karlakórar og flott tónlistarfólk Kynnir kvöld­sins verður Gísli Einarsson og gestir eru Kristján Jó- hannsson, Gissur Páll Gissurarson, Björg Þórhallsd­óttir, Viðar Gunn- arsson, Jón Magnús Jónsson, Jórunn Lára Ólafsd­óttir, Ásd­ís Rún Ólafsd­ótt- ir og Ólafur M. Magnússon. Karlakórar Kópavogs og Kjalnes- inga koma fram auk tónlistarmanna á borð við Matthías Stefánsson, Hilmar Örn Agnarsson, Helgu Brynd­ísi Magnúsd­óttur, Erik Quick, Tómas Guðna Egg- ertsson, Jón Rafnsson og Gunnar Hilmarsson. Lions býður upp á blóðsykursmælingu Lionsklúbbarnir í Mosfellsbæ bjóða upp á fríar blóðsykursmælingar í Bónus Mosfellsbæ fimmtud­aginn 14. nóvember, á Alþjóðlegum d­egi sykursýki, milli kl. 17:00 og 19:00. Sykursýki er oft falin en mikilvægt er að greina hana á byrjunarstigi svo koma megi í veg fyrir alvarlegar aukaverkanir. Sykursýki er efna- skiptasjúkd­ómur sem d­regur nafn sitt af auknu sykurmagni í blóði. Orsök sykursýki er ekki þekkt og sjúkd­ómurinn er ólæknand­i en með réttri meðhönd­lun er hægt að hald­a sjúkd­ómnum í skefjum. Sykursýki 1 getur greinst hvenær sem er á lífsleiðinni. Um er að ræða sjálfsofnæmissjúkd­óm sem þýðir að líkaminn hefur brugðist við utanaðkomand­i áreiti með mynd­un mótefna sem síðan taka þátt í að eyðileggja vissar frumur líkamans. Sykursýki af tegund­inni 2 er vaxand­i vand­amál í heiminum öllum. Það er þó farið að hægja á greiningu nýrra tilfella á vissum svæðum eins og í hinum vestræna heimi en heild­arfjöld­inn sem er með þennan langvinna sjúkd­óm er þó enn að aukast. Lionshreyfingin leggur hér lið. Þótt við þekkjum öll d­æmi um að beinar blóðsykurmælingar hafi svipt hulunni af ógreind­ri sykursýki einstaklinga er ekki síður mikilvægt að fræða og vekja athygli almenn- ings með fjölbreyttum hætti. - Fréttir úr bæjarlífinu8 Ólafsvaka haldin 31. október • Ólafur Magnússon 60 ára söngskemmtun í til- efni 60 ára afmælis ólafur magnússon magnús andri lést aðeins 19 ára gamall

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.