Mosfellingur - 24.10.2024, Qupperneq 26
- Íþróttir26
j a ko s p o r t ( N a m o e h f ) - k r ó k h á l s 5 f - 1 1 0 á r b æ r Sími: 566 7310 - jakosport@jakosport.is - jakosport.is
AftureldingAr
vörurnAr
fást hjá okkur sport íslandi
Afturelding hafði betur gegn Keflavík í úrslitaleik
Lengjudeildar-umspils um sæti í Bestu deild karla
2025 á Laugardalsvelli. Þetta er í fyrsta sinn í sögu
Aftureldingar sem karlalið félagsins kemst í efstu
deild Íslandsmótsins.
Eina mark leiksins kom á 78. mínútu og var það Sig-
urpáll Melberg Pálsson sem skoraði þegar hann fylgdi
eftir skoti sem var varið frá Arnóri Gauta Ragnarssyni,
sem hafði komið inn á sem varamaður mínútu áður.
Þess má til gamans geta að Knattspyrnudeild Aftureld-
ingar fagnar einmitt um þessar mundir 50 ára afmæli.
Mosfellingar fjölmenntu á völlinn og létu vel í sér
heyra.
Dagur sem fer í sögubækurnar
„Það var ólýsanleg tilfinning að sjá Aftureldingu taka skref-
ið upp í efstu deild eftir mikla vinnu og uppgang undanfarin
ár,“ segir Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar.
„Það eru ótrúlega margir aðilar sem eiga þátt í því að liðið
náði þessu markmiði. Núverandi og fyrrverandi leikmenn,
þjálfarateymi, starfslið, stjórnarmenn, sjálfboðaliðar,
styrktaraðilar og síðast en ekki síst stuðningsmenn.
Laugardagurinn 28. september 2024 fer í sögubæk-
urnar hjá Aftureldingu og núna þurfum við að gefa
ennþá meira í. Við viljum meira og núna bíður gríð-
arlega spennandi verkefni í Bestu deildinni þar sem
við mætum bestu liðum landsins. Við munum reyna
að auka fagmennskuna ennþá meira hjá okkur og efla
umgjörðina.
Ef sjálfboðaliðar eða styrktaraðilar hafa áhuga
á að slást í för með okkur í þessu verkefni þá má endilega
hafa samband við mig eða Gísla Elvar Halldórsson formann
meistaraflokksráðs.“
Styrkjum liðið á skynsamlegan hátt
„Það er mikill munur á umgjörð og fjármagni liða í Bestu
deildinni og Lengjudeildinni og við þurfum að gera allt sem
við getum til að hafa okkar starf eins öflugt og mögulegt er.
Barna- og unglingastarf Aftureldingar hefur skilað frábær-
um leikmönnum í gegnum tíðina og í öðrum félögum eru
öflugir Mosfellingar. Við munum styrkja liðið á skynsamlegan
hátt og vonandi koma einhverjir uppaldir Mosfellingar aftur
heim og taka slaginn með okkur næsta sumar.“
Umgjörðin hefur verið til fyrirmyndar
„Undanfarin ár hefur myndast gríðarlega skemmtileg
stemning í kringum liðið og við viljum halda því áfram í
Bestu deildinni. Viðburðir og umgjörðin á heimaleikjum
hafa verið til fyrirmyndar hjá öflugum sjálfboðaliðum.
Nýr gervigrasvöllur kemur á Varmársvæðið á næsta ári og
vonandi sjáum við glæsilega stúku rísa við þann völl sem
allra fyrst svo hægt verði að spila heimaleiki á nýja vellinum.
Þá mun um leið áhorfenda- og búningsaðstaða verða eins og
þekkist hjá öðrum félögum í Bestu deildinni.
Það eru mjög spennandi tímar fram undan og það er mjög
gaman að sjá meðbyrinn og stuðninginn hjá fólki í Mosfells-
bæ. Við munum undirbúa okkur mjög vel í vetur og allir í
kringum liðið eru spenntir að takast á við Bestu deildina
næsta sumar. Sjáumst á vellinum. Áfram Afturelding!“ segir
Magnús Már að lokum.
Ólýsanleg tilfinning
Afturelding hefur tryggt sér sæti í efstu deild • Maggi þjálfari segir spennandi tíma fram undan
Dagana 16.-19. október fór fram Evrópu-
mót í hópfimleikum sem haldið var í Bakú,
höfuðborg Azerbaijan.
Ísland sendi frá sér stúlknalið, drengjalið,
blandað unglingalið, kvennalið og blandað
fullorðins lið en öll fimm liðin komust inn
í úrslit. Tvö lið tóku heim gullið og urðu
þar með Evrópumeistarar 2024 sem voru
kvennaliðið og blandaða unglingaliðið.
Þetta er í fjórða skipti sem íslenska kvenna-
liðið nær þessum árangri en í fyrsta skipti
sem blandað unglingalið frá Íslandi nær að
sigra Evrópumót. Þannig að síðasta helgi var
söguleg í íslenska fimleikaheiminum.
Mosfellingar og Afturelding eiga hlut í
þessum sögulega árangri en í þessu lands-
liðsverkefni voru tveir drengir sem æfa
með fimleikadeild Aftureldingar. Þessir
tveir meistarar heita Guðjón Magnússon
og Ármann Sigurhólm Larsen. Guðjón var
í blönduðu unglingaliði og Ármann var í
drengjaliðinu. Samfélagið okkar má heldur
betur vera stolt af þessu drengjum, þjálfur-
um þeirra og félaginu Aftureldingu þar sem
alltaf er verið að halda utan um börnin og
unglingana.
Hægt er að sjá frekari upplýsingar um
mótið á www.fimleikasamband.is.
guðjón evrópumeistari með
blönduðu unglingaliði Íslands
guðjón magnússon
fagnar í bakú
Sunnudaginn 13. október fór fram Íslands-
mótið í Cyclocross (CX) tímabilsins 2024-
2025 á útivistarsvæði Mosfellsbæjar við
Stekkjarflöt.
Skipuleggjendur voru Tindur hjólreiða-
félag en mótstjóri var Jón Gunnar Kristins-
son úr HFR.
Sigurvegarar í Elite flokkum í ár voru þau
Kristín Edda Sveinsdóttir og Ingvar Ómars-
son annað árið í röð.
Í öðru sæti í flokki kvenna var Björg
Hákonardóttir og í þriðja Júlía Oddsdóttir.
Í karlaflokki var Davíð Jónsson í öðru sæti
og í því þriðja var Maxon Quas.
Mosfellsbær tók vel á móti hjólreiðafólki
og bauð keppendum í sund að lokinni
keppni.
Íslandsmót
í Cyclocross
haldið í Mosó
Næsta blað kemur út: 28. Nóv
Efni og auglýsingar skulu
berast fyrir kl. 12, mánu-
daginn 25. nóvember.