Mosfellsblaðið - 01.05.1999, Síða 5
Ur Mosfells-
dalnum
t/f Kanaríeyja
Klara Baldursdóttir er f. 22. jan.
1951 í Reykjavík og bjó síðan
um árabil að Furuvöllum í
Mosfellsdal með foreldrum sínum.
Hún flutti með foreldrum sínum 1959
til Costa Brava á Spáni, en faðir henn-
ar fór sér til heilsubótar. Hún var farin
að vinna þar í gestamóttöku 1969 og á
Costa Brava kynntist hún mannsefni
sínu, Fransisko Casadesus „Siskó“ frá
Katalóníu, f. 2. jan. 1945 og þau giftu
sig í Reykjavík 1973.
Þau byrjuð með veitingarekstur
1971 á Costa Brava, en fóru síðan til
Kanaríeyja á Ensku ströndina 1979,
leigðu stað í Prisma og settu þar upp
bar í des. sama ár. Síðan keyptu þau
sér stað í Jumbo Centrum 1982, settu
upp veitingarekstur og voru þau fyrstu,
sem opnuðu í byggingunni. Staðurinn
heitir Cosmos en í daglegu tali kallað-
ur „Klörubar.“
Þar er um 10 manna starfslið, fram-
reiddur mikill og góður matur öll
kvöld, enda er Siskó listakokkur. Þau
hjón reka staðinn með miklum mynd-
arbrag, eins og margir Islendingar
þekkja, það er kjaftfullt hjá þeim frá
miðjum des. til aprílloka, en sérstakt
álag er um jól og páska og þannig var
einnig nú um páskana 1999, enda
1500 - 1800 íslendingar á svæðinu, Á
Gran Canarí koma um 6 milljónir
ferðamanna á ári, en þau hjón loka
júní, júlí og ágúst og fara þá í burtu, en
annars búa þau á Ensku ströndinni og
eiga tvo drengi, 15 og 18 ára.
Ymsir skemmtikraftar koma fram á
Klörubar, en lengst hefur Örvar Krist-
jánsson skemmt þar með harmon-
ikkunni. Að sinni kveðjum við þennan
fjölfama Islendingastað.
Allir þekkja Harry, hér er hann í búðinni
sinni og selur mikið.
Yfirkokkurinn á Barbacan Sol í búri sínu,
en hann notar bara íslenskan saltfisk í
gómsœta rétti. Margir íslendingar koma til
hans í mat, en hann var í þœtti hjá Sigga
Hall nýlega.
Á páskadag var haldið upp á 120 ára afmceli tvíburanna Sigurðar G. Njálssonar, f.v. hval-
veiðiskipstjóra og Sigurðar N. Njálssonar, veiðieftirlitsmanns.
Ritstjórar Mosfellsblaðsins þeir Gylfi og Helgi ásamt Klöru og Siskó á Cosmos (Klöru-
bar).
Starfsliðið á Klörubar, f.v. Ama Baldursdóttir, Guðrún Vemharðsdóttir, Ólöf Magnúsdótt-
ir og þá líklega Mateo, Elías og Femando, en tvo starfsmenn vantar á myndina.
Lögreglan á Kanaríeyjum er kurteis og vinsamlegferðamanninum oghefur horfið af henni
hið harða yfirbragð, sem fylgdi Franco-tímanum.
Itlosfellsblaðið e