Kristilegt skólablað - 01.09.1944, Side 5
KRISTILEGT SKÓLABLAÐ
$ig. Magnússon:
KRISTILEGT STARF I SKÖLUM
Það má segja, að starfið fyrir Krist byggist
aðallega á tvennu auk lifandi trúar. Hið fyrra
er bœnin, þetta bitra og ósigrandi vopn, sem
enginn kristinn maður getur án verið, en hið
síðara er vitnisbur'Surinn, sem hver sá, er þekk-
ir náð Drottins vors Jesii Krists, hlýtur ávallt
að hafa til taks.
Bænin.
Sá maður, sem biður einlæglega til hins lif-
anda Guðs, má undir flestum kringumstæðum
treysta bænlieyrslu- Það hefir líka sýnt sig, að
sá maður fékk alltaf bænheyrslu, sem treysti
því, að liann yrði bænheyrðnr, og þorði að
leggja allt í liendur Guðs. Jesús segir á einum
stað í Biblíunni: „Og sérhvað það, er þér beið-
izt í bæninni trúaðir, munuð þér öðlast“
(Matt. 21, 22).
Og nú þegar minnzt er á kristilegt starf í
skólum, fer ekki hjá því, að bænin sé nefnd.
Bænin er það, sem heldnr ölln starfi í þágu
Guðsríkis uppi, og allt það, sem ávinnst í starf-
inu, er fyrir bæn. Hvergi er hægt að benda
á kristindóm án bænar, því að kristilegt starf
eða líf án bænar er ekki til. Bænin má segja,
að sé andardráttur kristins manns, líkt og Guðs
orð er honum nauðsynleg fæða. Hver, sem
hættir að nota hana dofnar og veikist, og deyr
svo innan skamms, andlega talað. En sá, sem
biður Guð, verður að biðja samkvæmt vilja
hans, ef hann vill eiga von á bænheyrslu. ,,0g
þetta er sú djörfung, sem vér höfum til hans,
að ef vér biðjum um eitthvað eftir hans vilja.
þá heyrir liann oss“ (I. Jóh. 5, 14). En þá
kann einhver að spyrja: Hver er þá kominn
til þess að dæma eða segja til um, hvort ég
bið samkvæmt vilja Guðs eða ekki? Þessu er
auðsvarað fyrir þann, sem þekkir Guðs orð.
Guð hefir af hinni óumræðilegu náð sinni
gefið okkur syndugum mönnum sitt heilaga
orð, og í því framsetur hann vilja sinn, og í
því svarar hann þessari spurningu. Sá, sem
biður af einlægu og auðmjúku lijarta, fær bæn
sína uppfyllta, svo framarlega sem Guð hefir
ekki ákveðið eitthvað annað betra. Því að Guð
bænheyrir langt fram yfir það, sem hann er
beðinn um. Hann veit, livað er okkur fyrir
beztu. Þess vegna leggur trúaður maður allt
í hans almáttugu hendur og treystir honum
Þýðingarmesta bæn kristindómsins er því:
Verði þinn vilji! Einnig fær hver sá, er séð
hefir sekt sína og synd, fyrirgefningu, og hverj-
um manni er hennar þörf- Það er því dagleg
þörf og dagleg venja kristins manns að biðja
Guð fyrirgefningar, um leið og hann leggur
fram fyrir hann hugðarefni sín og lofar hann.
Bænin er sem sé samtal við Guð, sem held-
ur samfélaginu milli hans og mannsins stöð-
ugu og stvrkir trúna, um leið og liún gerir liana
lifandi.
Sá maður, sem vill komast í persónulegt sam-
félag við Guð og eignast lifandi trú, tekur sér
fyrst Biblíuna í hönd og kynnir sér vilja hans.
krýpur síðan frammi fyrir hinum ósýnilega,
en þó lifandi Guði og fær hjá honum blessun
og frið, sem veitist hverjum þeim, er leggur
líf sitt í hendur hans og veitir hjálpræðinu
3