Kristilegt skólablað - 01.09.1944, Qupperneq 6

Kristilegt skólablað - 01.09.1944, Qupperneq 6
viðtöku. Af þessu sést, að bænin er hið mikla aðalatriði í lífi og starfi kristinna manna. Vitnisburðurinn. Vitnisburðurinn getur verið margs konar. Fyrst og fremst vitnar kristinn maður með framkomu sinni. Enginn maður er fullkom- inn, og því er ekki bægt að krefjast þess af neinum, að bann sé óaðfinnanlegur og flekk- laus. En sá, sem á frelsið í Kristi og hefir endurfæðzt til lifandi trúar, keppir eftir því að helgast og verða fullkominn. Hann getur því tekið sér orð Páls postula í niunn í bréfi hans til Filippímanna (3, 12): — „Ekki ei svo, að ég hafi þegar náð því eða sé þegar full- kominn, en ég keppi eftir því, ef ég skyldi geta höndlað það, með því að ég er höndlaður af Kristi Jesú“. En enda þótt enginn kristinn maður sé full- kominn, hefir hann þó aflagt sinn fyrri mann og íklæðzt nýjum og betri manni, og þess vegna er það skylda hans að vera til fyrirmyndar. „Þér vitið, að í Jesú liafið þér lagt af, ásamt. með hinni fyrri breytni hinn gamla mann, sem spilltur er af tælandi girndum, en endur- nýjazt í anda hugskots yðar og íklæðzt hinum nýja manni, sem skapaður er eftir Guði í rétt- læti og heilagleika sannleikans“ (Efes. 4, 22—24). I fyrsta kapítula Jóhannesarguðspjalls í sjö- unda versi stendur skrifað um Jóhannes skír- ara: „Þessi maður kom til vitnisburðar, til þess að vitna um ljósið, til þess að allir skyldu trúa fyrir hann“. Þetta er eða ætti að vera yfirskriftin yfir lífi allra kristinna manna. Þeir hafa fengið hið sanna ljós, ljós lífsins, i hjörtu sín og vita, að þeim ber skylda til að segia meðbræðrum sínum frá því ljósi, sem lýsir veg þeirra og gerir hann bjartan og hrein- an. Á öllum þeim, sem eiga hjálpræðið í Kristi, hvílir vitnisburðarskyldan. „Sá sem trúir á Guðs son, hefir vitnisburðinn í honum“ (I. Jóh. 5, 10)- En þó er það ekki ætíð skyklan. sem knýr þá til vitnisburðar, heldur er það ^kærleikurinn til náungans og þráin til þess að gera fleiri liamingjusama. „Því að kærleiki Krists knýr oss“ (II. Kor. 5, 14). Það er kærleikurinn, sem er svo mikils virði. því að trúin er ónýt, ef kærleikann vantar, en hins vegar sprettur kærleikurinn af hreinni trú og „kærleikurinn fellur aldrei úr gildi“ (I. Kor. 13, 8.). ★ Nú hefir að nokkru verið gerð grein fyrir viðhorfi kristins manns til hinna tveggja meg- inatriða í kristilegu starfi: hænar og vitnis- burðar, og þá getum við snúið okkur að því starfi, sem rekið er í skólum almennt. Því fer fjarri, að skólalífið beri þess vott, að því sé lifað í kristnu landi. En þó eru í öllurn skólum, að minnsta kosti í Reykjavík, lærisveinar Krists, sem vinna að því leynt og Ijóst að út- breiða ríki hans, bæði með bæn og vitnisburði. En þetta fer ekki allt hljóðalaust hjá. Óvinur- inn á víða dygga fylgismenn, sem róa að því öllum árum að útrýma kristindóminum úr skólunum. Þetta er eðlilegt. Hvergi eru gerðar jafn miklar kröfur til mannlegs siðgæðis og hvergi eru gerðar jafn miklar kröfur til hreinn- ar og falslausrar trúar. Þess vegna vill enginn vantrúaður maður hafa kristindóminn því til fyrirstöðu, að hann geti lifað eftir sínum eigin fýsnum og hugsunum. En ekki verður sneitt hjá raunveruleikanum. Guð er til. Guð er ei- lífur kærleikur, sem elskar svndarann, en hef- ir viðbjóð á syndinni. Hann vill leysa liinn gjörspillta mann úr viðjum syndarinnar, en maðurinn vill ekki frelsi. Ánauðin er orðin honum svo eðlileg, að hann á bágt með að hverfa aftur til frelsisins. En hvað er þá hægt að gera til þess að maðurinn láti snúast? Bæn- in ræður hér, sem annars staðar, úrslitum. Hvar sem andstaðan kemur fram, er þessu skæða vopni kristinna manna beitt, og hún vinnur bug á erfiðleikunum og sigrar freist- ingarnar. Bæn, beðin af einlægu og auðmjúku hjarta, getur megnað meira en heilar hersveitir stríðandi manna. Eg, sem þetta skrifa, hefi

x

Kristilegt skólablað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.