Kristilegt skólablað - 01.09.1944, Blaðsíða 14

Kristilegt skólablað - 01.09.1944, Blaðsíða 14
KRISTILEGTSKÓLABLAÐ Guðniundur Ólufsson: Ertu hpæddur? Sjáðu til, ég og þú vitum, að til er fólk, sem trúir því, að Guð sé til, að hægt sé að tilbiðja þaun Guð og að Biblían sé bans orð. Þú hefir sjálfsagt séð Biblíu, já. meira að segja ekki ósennilegt, að bún sé til í einhverri hillu eða skúffu heima. Þú befir, ef til vill, lesið í henni sjálfur, nú, og ef ekki það, þá befir þú að minsta kosti ekki komizt lijá því að heyra les- ið úr henni. Hafi það verið í kirkju, hefir þú sjálfsagt heyrt prestinn halfla ræðu út frá orðum Biblíunnar, en í hreinskilni sagt, það hafði, ef til vill, ekkert góð áhrif á þig, þú varst hálf-sofancli, eða jafnvel þig hálf-flökr- aði við, og þú varst feginn, þegar ræðunni var lokið. Segðu mér annars eitt, það á sér varla stað, að þú sért hræddur? Hefirðu aldrei þor- að að líta í Biblíuna? Ekki það, nei, ég vissi það, það var auðvitað. En ekki vantar hetju- svipinn, þú ert svo sem nógu svipmikill og fríður, já, óneitanlega einhver myndarlegasti upprennandi unglingur. Þú hefðir átt að vera uppi, þegar menn börðust með sverði, já, eink- anlega af því að þá voru líka uotaðir skildir. Eg dáist að þér! En hættum nú þessu, og ef þér er ekki á móti skapi og ef þú ert ekki hræddur, þá skulum við taka nokkur orð til hugleiðingar úr Biblíunni. „Því að ekki megn- um vér neitt gegn sannleikanum, lieldur fvrii sannleikann“ (II. Kor. 13, 8). Ég fullvissa þig um, að Biblían er sú bók, sem talar skýrt. Þú veizt það líka innst inni fyrir, að hún er öllu öðru fremur nærgöngvd í ræðu sinni. Þú hefir einhvern tíma orðið að læra boðorð- in utan að, og þú hefir heyrt hitt og annað úr fjallræðunni. Þú veizt, að það á ekki ein- ungis við ytri framkomu eða gerðir, það á við liugsun þína og sálarlíf. Og hvar stendur þú nú? Hugsaðu um það, að Biblían, þessi gamli spegill, segir frá öllu því, sem ég og þvi ger- um, öllu því sem enginn mátti vita. Á hverri síðu er talað um mín og þín einkamál. Er það þess vegna, sem þvi þorir ekki að líta í hana? Heigull! Þorirðu ekki að liorfa á það, að þú liefir gert það, sem þig langaði til, ef ekki áþreifanlega, þá í hugsun. Biblían segir, að það sé jafngilt. Sannleikurinn er fyrirferðar- mikill; það verður erfitt að komast framhjá honum. Eg og þú höfum gert það, sem okkur langaði til, og við munum sjálfsagt framvegis gera ýmislegt, sem okkur langar til. Hvað um það, þótt einhverjum komi það ekki vel. En skyldi það koma mér eða þér vel? Ef það væri niv satt, að við ættum að standa reikningsskil af gerðum okkar. Heyrðu, mundir þú þora að gera allt, sem þú ætlar að gera, ef þvi vissir. að þeir, sem í kringum þig eru, hefðu and- styggð á þér fyrir það? Ég veit, að þér væri erfitt að koma fravn eins og þú telur skynsam- legt, ef allir dæmdu þig fyrir það, og þú ætt- ir jafnvel í vændum, að þér væri kastað í elds- vítið. Ertu þá enn svo lvræddur, að þú þorir ekki að gera það, sem þig langar til? Ertu. ef til vill. ekki sjálfstæður maðvvr? Dæmdu sjálf- ur. Eg veit af eigin reynslu, að það er erfitt að dæma um sjálfau sig, og margt er það, sem við vilduvn gjarnan nvega skjóta undan okkar eigin dómi, og sjálfsagt gerum við það líka. af þeirri einföldu ástæðu, að við erum og verð- 12

x

Kristilegt skólablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.