Kristilegt skólablað - 01.09.1963, Síða 18

Kristilegt skólablað - 01.09.1963, Síða 18
FRELSARIER HA KiJCIIIA s. biiuvik, fía|<iifræ<laNkólu vrrknáms Kæri vinur. Þér, sem lest þessa grein, vil ég segja, að hún er til þín, hver sem þú ert og hvar sem þú ert. Yfirskriftin er: „Frelsari er hann“. Við vitum, hver frelsarinn er, því að á hverjum jólum minnumst við Jesú Krists, frelsara okkai' mann- anna. „Því að yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn í borg Daviðs“ (Lúk. 2, 11). Ef til vill ert þú einn af þeim, sem finnst skrítið eða jafnvel hlægilegt, þegar þú heyrir talað um frels- ara og frelsun. En hefur þú nokkurn tíma hugsað um Jesúm Krist sem hinn persónulega frelsara og að þú þarfnast hans? Eða hefur þú nokkum tíma beðið til Guðs, þegar þú hefur verið í nauðum staddur og enginn er til að hjálpa? Ég veit ekki, hverju þú svarar þessum spurn- ingum, kæri lesandi. En mig langar aðeins til að biðja þig að hugleiða þær. Til hvers kom Jesús eiginlega til okkar mann- anna? Jú, hann kom vegna þess, að við erum synd- .------------------------------------------------------- Stjórn K.S.S.: ÞórSur Búason, Menntaskólanum, formaióur, Stína Gísladóttir, Menntaskólanum, ritari, Valgeir ÁstráSsson, Menntaskólanum, gjaldkeri, Gunnar Jórtsson, Kennaraskólanum, meSstjórnandi, Bertha Bruvik, GagnfrceSask. verknáms, meSstjórnandi, Benedikt Arnkelsson, cand. theol., fulltrúi IÍ.S.F. og K.F.U.M. Ritnefnd Kristilegs skólablaðs: Valgeir AstráSsson, Menntaskólanum, ritstjóri, Gunnar Jónsson, Kennaraskólanum, Edda Gísladóttir, Fóstruskólanum, ValgerSur Hrólfsdóttir, Verzlunarskólanum, Bertha Bruvik, GagnfrœSaskóla verknáms. V.______________________________________________________ arar. Hann kom til þess að frelsa okkur úr glötun heimsins. Við erum syndarar eins og stendur í Róm. 3 23: „Því að allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð.“ Þú getur kannski ekki trúað, að þú og ég sé- um syndarar og þurfum á náð Guðs að halda eða vilt ekki trúa því. Þá skal ég segja þér, að það er satt. Við erum öll syndarar og brjótum gegn Guði á hverj- um degi. Kæri vinur, ef til vill ert þú einn af þeim mörgu, sem hugsa sem svo: Þig langar til að skemmta þér, á meðan þú ert ungur. En að trúa á Guð, það er bara fyrir gamla fólkið. En þá vil ég segja þér eitt. Það hræðilegasta er, að þú hefur gleymt, að þú ert fjötr- aður af syndum þínum. Þú ert þræll syndarinnar. Og liver er hamingjusamur, sem er þræll syndar- innar og fjötraður að eilífu? Þú getur horft á sjálf- an þig. Ertu hamingjusamur, hefur þú fundið þá sönnu hamingju, sem hægt er að eignast? En hvernig getum við þá losnað við þessa fjötra? .Tú, það er aðeins einn, sem getur losað hlekkina, og það er Jesús Kristur. Hann einn getur frelsað okkur. Hann hefur þegar dáið fyrir okkur mennina, með því að vera negldur með syndum okkar á krossinn, — sjálfur Guðssonurinn. „Því að svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver, sem á hann trúir, glatist ekki, heldur hafi eilíft líf“ (Jóh. 3, 16). Fyrir trúna á hann frelsumst við og eignumst eilífa lífið í stað glötunar. „Hann var særður vegna vorra synda, kraminn vegna vorra misgjörða, hegningin, sem vér höfðum til unnið, kom niður á honum, og fyrir hans benjar urðum vér heilbrigðir“ (Jes. 53, 5). Hefur þú efni á að hafna honum, sem vildi leggja líf sitt í söl- 16 KRISTILEGT SKOLABIAÐ

x

Kristilegt skólablað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.