Kristilegt skólablað - 01.09.1963, Page 35
VERK GEÐS
Framh. af bls. 7:
Það, sem við þurfum því að gera, er að trúa. „Þeir
sögðu því við hann: Hvað eigum vér að gjöra, til þess
að vér vinnum verk Guðs? Jesús svaraði og sagði við
þá: Þetta er verk Guðs, að þér trúið á þann, sem hann
sendi“ (Jóh. 6,28—29). Hér sjáum við, að lífið veit-
ist af náð fyrir trú, en ekki fyrir eigin verk. Það
eina, sem maðurinn getur, er að trúa á Jesúm Krist.
Og svo er það blóð Krists, sem hreinsar af allri
synd þannig, að syndin er ekki lengur til aðskiln-
aðar milli Guðs og okkar mannanna, ef við trúum.
En allt gerir Guð fyrir okkur, án hans megmun
við ekkert. Við getum ekki skapað í okkur trúna, því
að hún fæst aðeins fyrir gjöf heilags anda. Orð Guðs
þarf að fá að hljóma til okkar inn í hjörtu okkar og
skapa þar trúna fyrir heilagan anda. Og þá munum
við eignast frið og staðfestu.
Án Guðs, erum við villuráfandi og óánægð, fáum
aldrei fullnægt innstu hjartans þrá okkar, en Guð
getur gefið friðinn í hjartað, einmitt þann frið, sem
það þráir.
Þessi grein er skrifuð af því, að eitt sinn gaf Jesús
Kristur lærisveinum sínum skipun um að fara út um
allan heiminn og boða mönnunum fagnaðarerindið
um hann, sem tók á sig syndir allra manna. Nú hef-
ur þessi boðskapur borizt þannig kynslóð eftir kyn-
slóð, í bráðum tvö þúsund ár. Hann kemur nú til
þín, og ég vil vekja athygli þína á honum, því að
hann hefur reynzt mér sannur og þess virði, að við
honum sé tekið. Lestu Biblíuna, og í henni muntu
finna orð lífsins, sem veitir þér það, sem þú þarfnast.
Guð gefi þér náð til þess að eignast trúna á frelsar-
ann, Jesúm Krist, og frið í sálu þinni.
KRISTILEGT SKOLABLAÐ 33