Kristilegt skólablað - 01.09.1963, Page 19

Kristilegt skólablað - 01.09.1963, Page 19
r Purpuraklæðið og þYrnikórónan V______________________________ 1 hinu forna ríki Babýlon var um hver áramót haldin nýárshátíð. Mun sú hátíð hafa tiðkazt meðal þjóða þar eystra um þúsundir ára. Hún fór fram á vorin, í marz—apríl eftir okkar tímatali, og stóð yfir í fimm daga. Þá var allt á öðrum endanum, í orðsins fyllstu merkingu, því að þá var öllu snúið við og hent gaman að hlutunum. Hátíðin snerist að miklu leyti um skopkonung, sem kjörinn var til þess að ríkja í fimm daga. Voru miklar skrúðgöngur farnar honum til heiðurs, og fékk hann aðgang að hýbýlum hins rétta konungs og gat látið sem hann lysti. En þetta var grátt gaman, því að þegar valdadagar hans voru á enda, var hann tekinn af lífi og færður að nýárs- fórn. Á dögum Rómverja tíðkuðust svipaðar hátíðir á ýmsum stöðum við Miðjarðarhafið, og benda likur til, að þær hafi átt rætur sínar að rekja til Austur- landa. Þessar hátíðir hófust líka með „konungskjöri“, og að þeim loknum var konungi fórnað. Síðar kom mannslíkan í stað lifandi manns, og þóttust menn brenna hann eða grafa eða honum var kastað í ána Tiber. Hátíðir þessar munu hafa verið vinsælar í rómverska hernum. Hermennirnir völdu skopkonung og gerðu sér glaðan dag með honum. Oft varð dauða- dæmdur afbrotamaður fyrir valinu. Stundum var konungurinn valinn úr hópi hermannanna með hlut- kesti. 1 leikslok varð hann að gjalda tignar sinnar með lífinu. — Á fjórðu öld var í rómverska hern- um kristinn maður, sem Dacíus hét. Árið 303 dvald- ist hann í herbúðum við Dóná. Þegar nýárshátíðin nálgaðist, vörpuðu hermennirnir hlutkesti um skop- konunginn, og kom upp hlutur Dacíusar. En hann kaus að láta heldur lífið strax en taka þátt í þessum grimmilegu leikjum og verða fómað heiðnum goð- um. Guðspjöllin segja frá því, að hinir rómversku her- menn Pílatusar hafi smánað Jesúm frá Nazaret, þeg- ar réttarhöldin yfir honum stóðu yfir. 1 Mark. 15, 15—20 segir svo: „Með því að Pilatus vildi gjöra mannfjöldanum til geðs, gaf hann þeim Barrabas lausan og lét húð- strýkja Jesúm og framseldi hann til krossfestingar. Og hermennirnir fóru burt með hann, inn í höllina,. sem er landshöfðingjasetrið, og kalla saman alla her- sveitina. Og þeir færa hann í purpuraskikkju og flétta þyrnikórónu og setja á hann. Og þeir tóku að heilsa honum: Heill vertu, Gyðingakonungur! Og þeir slógu hann í höfuðið með reyrstaf og hræktu á hann og féllu á kné og veittu honum lotning. Og er þeir höfðu spottað hann, færðu þeir hann úr purpuraskikkjunni og færðu hann í hans eigin klæði. Og þeir fara út með hann til að krossfesta hann.“ Ýmsir telja, að hér hafi hermennimir verið að gera Jesúm að skopkonungi. Þetta var einmitt á þeim tima ársins, sem hátíðimar stóðu yfir, og Pílatus hefur bætt gráu ofan á svart með þvi að leyfa þeim að' henda gaman að frelsaranum, áður en hann yrði líf- látinn á krossinum, samkvæmt úrskurði hans. urnar fyrir þig, þannig að þú mættir öðlast frelsi og eilift líf? Eða heldurðu áfram að hafa augun lokuð fyrir því, að þú ert hlekkjaður af syndum þínum? Eng- inn þræll eða fangi gæti neitað, ef honum væri gefið líf og frelsi. Þannig er það með okkur mennina; við erum eins og fangelsaðir, en við eigum samt einn, sem hefur gefið okkur frelsið og líf, Jesúm Krist. Hver getur þá sagt nei? Getur þú sagt nei? Við þig, sem ekki hefur tekið á móti Jesú sem þínum persónulega frelsara, vil ég segja: Dragðu það ekki lengur. Það er ekki bara fyrir gamla fólkið að trúa og fylgja Guði, það er líka fyrir okkur, sem ung erum, því að við vitum ekki, hve- nær það getur verið of seint. Styrki þig GuS aS velja veginn rétta, vizkan og náSin sveig úr rósum flétta, undan þér fer hann, friSarmerkiS ber hann, frelsari er hann. KRISTILEGT SKOLABLAÐ \J

x

Kristilegt skólablað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.