Skák - 15.04.1956, Qupperneq 3
SKÁK
Ritatjóri oq útgefandí: Birgir Siourösson — Ritnefnd: Inoi R. Jóhannsson, Eínar Þ. Mathieaen, FriöriTc ólafsson oq Arinbjörn Guö-
mundsson — Blaöiö kemur út 8 sinnum á ári, 16 síöur í hvert sinn — Áskriftarverö þess er kr. 65.00 — Einstök blöö kr. 10.00 —
Gjalddaoi er 1. janúar — Aforeiösla blaösins er á Roltsoötu 81 — Prentaö i ísafoldarprentsmiöju h.f.
Friðrik sigurvegari í Guðjóns-mótiiiu
Taimanov og llivitsky jafnir i 2. sœti
Nú hefur rætzt sá óskadraumur
íslenzkra skákunnenda, að fá hing-
að til lands rússneska skákmeist-
ara til keppni við íslenzka skák-
menn.
Snemma á s.l. hausti skrifaði
stjórn T.R. rússneska skáksam-
bandinu og bauðst til að greiða
allan kostnað við komu tveggja
rússneskra skákmanna til Reykja-
víkur, og í febrúar-byrjun var
endanlega ákveðið, að íslenzkt-
rússneskt skákmót skyldi fara
fram í Reykjavík í marz-mánuði.
Rússneska skáksambandið valdi til
keppninnar stórmeistarann Tai-
manov, sem er núverandi skák-
meistari Sovétríkjanna, og hinn
kunna alþjóðlega meistara Ilivit-
sky.
Ákveðið var, að mótið skyldi
haldið til minningar um Guðjón
M. Sigurðsson, og var flestum
kunnustu skákmönnum bæjarins
gefinn kostur á að reyna þar
hæfni sina. Því miður sáu ýmsir
beztu skákmennimir sér ekki fært
að keppa. Einkum verður að
harma, að Guðmundur Pálmason,
Ingi R. Jóhannsson og Guðmund-
ur S. Guðmundsson voru ekki
meðal þátttakenda.
Þrátt fyrir fjarveru þeirra verð-
ur að telja Minningarmót Guðjóns
M. Sigurðssonar hörðustu skák-
keppni, sem fram hefur farið hér-
lendis.
Um árangur einstakra keppenda
vii ég fátt eitt segja. Þar talar
vinningaskráin skýrustu máli, og
sýnir glöggt, að keppendur skipt-
ust í tvo flokka eftir styrkleika.
3% vinningur skildi að 3. og 4.
mann og er sá munur ærið um-
hugsunarefni.
Mikla ánægju vakti það, að
Friðrik Ólafsson bar sigur úr být-
um. Hann hefur ekki fyrr en nú
tekið þátt í skákmóti innanlands
síðan árið 1953, er hann vann
nauman sigur í Landsliðskeppn-
inni. Allir vita, að hann ber nú
ægishjálm yfir aðra íslenzka skák-
menn, en mörgum hefði samtþótt
það ótrúleg spá fyrirfram, að Frið-
rik myndi sigra alla hina íslenzku
keppinauta sína og ná hærri vinn-
ingatölu en sjálfur Sovétmeistar-
inn. En þessi árangur kostaði
mikla vinnu, — og söknuðu marg-
ir þess skákstíls, sem mestan
ljóma hefur varpað á skákkónginn
okkar.
Taimanov virtist minnst þurfa
fyrir sínum vinningum að hafa.
Hann komst aldrei í taphættu, en
Benóný reyndist honum erfiðast-
ur að þessu sinni.
Ilivitsky tefldi mjög vel og ör-
ugglega, en hefði átt skilið að tapa
fyrir Benóný.
Aðeins 1% vinningur greindi að
4. og 10. mann í mótinu, og sýnir
það glöggt hve hörð baráttan var
milli hinna 7, sem skiptu með sér
óæðri sætunum. Gunnar Gunnars-
son tók í fyrsta sinn þátt í erfiðu
skákmóti. Vakti frammistaða hans
talsverða athygli, og verða fram-
vegis gerðar til hans miklar kröf-
ur. Benóný Benediktsson jók mjög
hróður sinn sem skákmaður með
því að ná jöfnu móti báðum Rúss-
unum. —• Aðrir keppendur bættu
engu við vöxt sinn að þessu sinni.
Mótið fór fram í Sjómannaskól-
anum dagana 12.—25. marz. Til-
högun þess var með öðrum hætti
en áður hefur tíðkast á skákmót-
um hérlendis. Mér er ekki kunn-
ugt um að 10-manna skákmót hafi
áður veriö haldið á jafn skömm-
um tíma í Reykjavík. Skylt er að
geta þess, að þessi mikli hraði
hafði óheppileg áhrif á tafl-
mennsku þeirra keppenda, sem
erfiða vinnu stunda.
Taflféiagið færði sér í nyt þær
nýjungar, sem fram komu í ein-
víginu um meistaratitil Norður-
landa í janúar s.l. — Allar skák-
irnar voru sýndar á veggtöflum 1
taflsalnum á neðstu hæð, en auk
þess voru þær sýndar og skýrðar
í forsal á næstu hæð fyrir ofan.
Hljóðnema var komið fyrir í neðri
salnum, en hátalara í þeim efri,
og var öllum leikjum „útvarpað"
til efri salarins, jafnskjótt og þeir
bárust þulnum niðri. Var þannig
reynt að auðvelda áhorfendum að
fylgjast með gangi skákanna. Sér-
stakur maður var ráðinn til þess
að flytja blöðum og útvarpi fregn-
ir af mótinu. Þessi tilhögun krafð-
ist mikillar vinnu, enda voru
starfsmenn nærri 20 að tölu, og
máttu ekki færri vera.
Helztu starfsmenn voru þessir:
Mótstjóri: Jón Böðvarsson.
Skákstjórar: Hafsteinn Gíslason
og Óli Valdimarsson.
Aðstoðarmótsstjóri: Bjarni Fel-
ixson.
Þulir: Gísli ísleifsson og Grétar
Haraldsson.
Blaðafulltrúi: Haraldur Sæm-
undsson.
Helztu skákskýrendur: Eggert
Gilfer, Guðm. S. Guðmundsson og
Haukur Sveinsson.
Ljósmyndari: Arinbjörn Guð-
mundsson.
Forseti Skáksambandsins, Sig-
urður Jónsson, veitti T.R. marg-
s kak 33