Skák


Skák - 15.04.1956, Síða 4

Skák - 15.04.1956, Síða 4
víslega aðstoö við framkvæmd mótsins. Mánudaginn 26. marz s.l. hélt Taflfélagið hóf i Þjóðleikhúskjall- aranum, og voru þar afhent fern verðlaun, sem samtals námu kr. 4.500.00. — Þátttökugjald í mót- inu var kr. 200.00. Jón Böövarsson. Verðl a u ■■ :i si tli pntl i n þ. Mánudagskvöldið 26. marz s.l. bauð stjórn Taflfélags Reykjavík- ur keppendum og starfsmönnum Guðjóns-mótsins, auk blaðamanna og fleiri gesta, til verðlaunaaf- hendingar og skilnaðarhófs fyrir Sovétskákmeistarana. Veizlustjóri, Elís Ó. Guðmunds- son, bauð gesti velkomna, en því næst afhenti Guðmundur Arn- laugsspn verðlaun til þeirra Frið- riks Ólafssonar, Taimanov’s, Ili- vitsky’s og Gunnars Gunnarsson- ar, og ávarpaði þá um leið með nokkrum orðum. Auk peninga- verðlauna hlutu þeir Taimanov og Ilivitsky bækur að gjöf. Einnig hlutu þeir Baranov, túlkur skák- meistaranna, og Ivanof, sendiráðs- ritari, bækur að gjöf. Ræður fluttu þeir Sigurður Jóns- son, forseti Skáksambandsins, og Guðm. S. Guðmundsson, formaður T. R. Fluttu þeir Sovétskákmeist- urunum þakkir fyrir komuna og ánægjulega keppni. Kvaðst Guðm. S. vona, að heimsókn þessi yrði upphafið af frekari kynnum ís- lenzkra og rússneskra skákmanna. Stórmeistarinn Taimanov þakk- aði fyrir hönd þeirra félaga með ræðu, sem birtist hér á eftir. Skemmtiatriði að loknum ræð- um og veitingum, voru þessi: Ein- leikur á Harmoniku, 11 ára dreng- ur lék. —• Operusöngvarinn Guð- mundur Jónsson söng nokkur lög með undirleik Fritz Weisshappels. Stórmeistarinn Taimanov lék ein- Stórmeistarinn Mark Taimanov. leik á píanó við mikla hrifningu viðstaddra. — Einnig lék Eggert Gilfer tvö lög á píanó. Sátu menn þarna í góðum fagn- aði fram eftir kvöldi, og þótti hóf- ið takast mjög vel. Hér birtist svo til gamans ræða sú, er Taimanov flutti þetta kvöld, þýdd af Gúðmundi Arnlaugssyni: „Góðir tilheyrendur! Við erum komin hér saman til þess að samgleðjast við lok lítillar en skemmtilegrar skákkeppni. — Skákmót það, sem hér hefur farið fram, er um margt ólíkt venjuleg- um alþjóðamótum; þar er að jafn- aði teflt um einhver réttindi, t. d. í keppninni um heimsmeistara- tignina, en í öðrum mótum um há verðlaun og heiöur. En þegar við skákmenn Sovét- ríkjanna tókum yðar góða boði um að heimsækja Reykjavík, var til- gangurinn allt annar. Framar öllu öðru lék okkur hugur á að kynn- ast skákfélögum okkar á íslandi og stofna til fastra samskipta við þá. Okkur þykir vænt um að hafa ekki einungis teflt við skemmtilega andstæðinga, heldur einnig eign- azt hér góða vini. Skákmótið sýndi enn einu sinni, að Friðrik Ólafsson er mjög góður skákmaður. Þegar Friðrik teflir, fylgjast landar hans með honum með samúð og áhuga, og hann á þann áhuga og hlýhug fyllilega skilið. Afrek hans kemur okkur engan veginn á óvart, við óskum honum af öllu hjarta til hamingju með sigurinn og samgleðjumst ís- lenzku þjóðinni með að eiga slík- an skákmann. Ekki verður fram hjá því geng- ið að vekja athygli á skemmtilegri taflmennsku Benónýs Benedikts- sonar, sem réði röð keppendanna á mótinu. Hann kom okkur mjög vel fyrir sjónir, er honum tókst að halda skák sinni við mig í fyrstu umferð, þrátt fyrir óhag- stæða stöðu, en það álit breyttist aö vísu dálitið, er hann tapaði fyrir Friðrik, en hefði sennilega átt að halda þeirri skák. Mig langar að hrósa tveimur ungum skákmönnum, þeim Gunn- ari Gunnarssyni og Freysteini Þor- bergssyni. Mér virðist að þeir muni brátt geta keppt við snjöllustu skákmenn íslendinga. Freysteinn tefldi miklu betur en virðast mætti eftir vinningafjölda hans. Að lokum vil ég fyrir hönd okk- ar félaganna láta í ljós þakklæti okkar til Taflfélags Reykjavíkur fyrir góða gestrisni, og einnig þökkum við formanni félagsins, Guðm. S. Guðmundssyni, og for- manni Skáksambandsins, Sigurði Jónssyni, og öðrum, fyrir vinsemd og greiðasemi í okkar garð. Mér er það sönn ánægja að mega flytja íslenzkum skákmönnum boð um þátttöku í 12. Olympíuleikjum skákarinnar, sem eiga að fara fram í Moskvu í september á þessu MINNINGARMÓT GUÐJÓNS M. SIGURÐSSONAR 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 V. 1. Friðrik Ólafsson . X y2 y2 1 1 1 í 1 1 1 8 2. Taimanov . % X V-2 1 y2 1 1 1 1 1 7% 3. Ilivitsky . % % X 1 % 1 í 1 1 1 7% 4. Gunnar Gunnarsson . . .. . 0 0 0 X y2 y2 y2 y2 1 1 4 5. Benóný Benediktsson . . . . 0 y2 y2 y2 X 0 í 0 0 1 3x/2 6. Guðmundur Ágústsson . . . 0 0 0 y2 1 X 0 y2 1 y2 3% 7. Baldur Möller . 0 0 0 y2 0 í X y2 y2 y2 3 8. Jón Þorsteinsson . 0 0 0 % 1 y2 y2 X 0 % 3 9. Freysteinn Þorbergsson . . 0 0 0 0 1 0 y2 1 X 0 2% 10. Sveinn Kristinsson . 0 0 0 0 0 y2 y2 y í X 2y2 34 SKÁK

x

Skák

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.