Skák


Skák - 15.04.1956, Blaðsíða 5

Skák - 15.04.1956, Blaðsíða 5
ári. Okkur er það ánægjuefni að geta endurgoldið gestrisni yðar, og ég vona að vináttubönd okkar eigi eftir að víkka og styrkjast. Urslit þessa móts og úrslit ein- stakra skáka eiga sjálfsagt eftir að falla í gleymsku, en ég vona, að þau kynni og sú vinátta, sem hér hefur verið stofnað til, verði haldgóð og varandi. Þakka yður öllum". S K Á K I R frá Guðjóns-mótinu. Skák nr. 380. Hvítt: M. Taimanov. Svart: Sveinn Kristinsson. Kóngsindversk vörn. 1. c4 Rf6 2. Rc3 g6 3. e4 d6 4. d4 Bg7 5. f3 Þetta er uppáhalds- afbrigði margra rússnesku skák- meistaranna 5. — e5 6. d5 Rh5 Af mörgum er 6. - c5 álitinn betri leikur. 7. Be3 0—0 8. Dd2 f5 9. 0-0-0 f4 Pjölþættari varnarmöguleika gefur 9. - Rd7, t. d. 10. Kbl a6 11. Rge2 Rdf6 12. Rcl Bd7 13. c5 Kh8 14. Rb3 a5 (S. Johannessen—Ingi R„ Antwerpen 1955), og svartur hefur góða möguleika. 10. Bf2 Bf6 11. Rge2 Bh4 12. Bgl Taimanov álítur biskup sinn vera verðmætari. 12. — Rd7(?) Betra hefði verið fyrir Svein að fylgja uppskrift Gligorics og leika 12. - g5 13. c5 g4 14. Kbl gxf3 15. gxf3 Ra6 16. c6 Rf6 (Petrosjan-Gligoric, Zurich 1953) - Staðan er flókin. 13. Kbl Hf7 14. Rcl Be7 15. Bd3 Hg7 Ekki er hægt að stemma stigu við sókn hvíts á drottningarvæng með því að leika 15.-c5?, vegna 16. dxc6 frhj. bxc6 17. c5! og vinn- ur. Ef 15. - Rc5, þá 16. b4 Rxd3 17. Rxd3 og hvítur hefur betri möguleika. 16. b4 a5 17. a3 axb4 18. axb4 b6? Eftir þennan leik á svartur tapaða stöðu. Mun betra var 18. - c5! Ef 18. b5, þá 19. - b6, og svart- ur á frumkvæðið á kóngsvæng. — Bezti möguleiki hvíts er því 19. dxc6 frhj. bxc6 20. Rb3 Hb8 21. Ra4 og hvítur hefur betri mögu- leika, en þó hvergi afgjörandi. 19. Rb3 Ba6 20. Kb2 Bb7 21. Alþjóðameistarinn IlivitsTcy Rb5 Ba6 22. Bf2 Bxb5 Óvíst er að svartur eigi betri leik. 23. cxb5 Df8 24. Dc3 Bd8 25. Dc6 Ha4 26. Hal Hxal Auðvitað ekki 26. - Hxb4, vegna 27. Kc3 Rc5 28. Kxb4 Rxd3t 29. Kc3 Rxf2 30. Hhfl og vinnur. 27. Hxal Rhf6 28. Ha8 Kf7 29. Ra5! Hg8 Ef 29. bxa5, þá 30. bxa5! og peðið rennur upp. 30. Rb7 De7 31. Hc8(!) Nú fell- ur c-peð svarts 31. — g5 32. Rxd8 Hxd8 33. Hx c7 Hb8 34. Bfl! h6 35. g3 g4 36. fxg4 Ild8 37. Bxb6 Rxe4 38. Ha7! og svartur gafst upp. Slcýringar eftir Inga R. Jóhannsson. Skák nr. 381. Hvítt: Guðmundur Ágústsson. Svart: Friðrik Ólafsson. Sikileyjar-vörn. 1. e4 c5 2. Rc3 Rc6 3. g3 Hér teflir við Friörik Ólafsson. sveigir hvítur inn í lokað afbrigði af Sikileyjar-vörn, sem Smyslov hefur teflt með ágætum árangri. Markmið hvíts í þessu afbrigði er að byggja upp sóknarstöðu gegn kóngsvæng svarts, án þess að veikja peðastöðu sína um of, og ef til endatafls kæmi. Aðal varnar- möguleikar svarts eru bundnir við d4-reitinn, en þar getur hann staðsett riddara og með aðstoð hans hafið peðaframrás á drottn- ingarvæng. 3. — g6 4. Bg2 Bg7 5. d3 d6 6. Be3 Rf6 7. h3 Hvítur verður að fyrirbyggja Rg4. 7. — 0—0 8. Dd2 Rd4 9. Rdl Betra virðist 9. Rce2, t. d. 9. - e5 10. c3 Re6 11. f4 og staðan hefur upp á ýmsa möguleika að bjóða. 9. — e5 10. c3 Re6 11. Re2 Hér gat hvítur gert svörtum örðugra fyrir og leikið 11. f4. Svartur virð- ist þá leika bezt Il.-Rh5 12. Re2 f5(!) 13. O—O og þannig á hvítur að geta haldið spennunni á mið- borðinu. Eftir síðasta leik hvíts jafnar svartur taflið mjög auð- veldlega. 11. — d5! 12. Bh6 dxe4 13. Bx g7 (?) Betra var hér 13. dxe4Bxh6. 14. Dxh6 Dd3 15. De3 (Ef 15. Re3, þá Hd8 16. Hdl Db5 og svartur hefur betra tafl). 15. - Dc2 16. Hcl Da4 17. a3 Hd8 með ívið betra tafli fyrir svartan. 13. — Kxg7 14. dxe4 Dxd2 15. s kák 35

x

Skák

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.