Bautasteinn - 01.04.2004, Síða 4
Tún verður að kirkjugarði
Nýi garðurinn er staðsettur rétt utan við bæinn og var hann
byggður frá grunni upp á landi þar sem áður voru tún.
Framkvæmdir hófust í lok október 2001 og var garðurinn tekinn
í notkun tæpum tveimur árum síðar. Fjöldi legstæða er 214 í
fjórum reitum og hefur fyrsti reiturinn verið tekinn í notkun.
Gert er ráð fyrir bæði hefðbundnum legstæðum sem og reitum
fyrir duftker, en hönnuður garðsins er Pétur Jónsson
landslagsarkitekt.
Ómar Halldórsson situr í sóknarnefnd og hefur hann haft með
framkvæmdir við garðinn að gera. Hann segir heimamenn hafa
komið að öllum verkþáttum utan malbikunar. „Við lögðum
áherslu á að fá heimamenn að verkinu og fengum mjög góða
verktaka og iðnaðarmenn til að vinna þetta með okkur og
útkoman er frábær. Við viljum þakka öllu þessu góða fólki
samstarfið og erum ánægðir með að hafa getað unnið þetta með
heimafólki. Við lögðum líka áherslu á að skapa strax hlýlega
umgjörð um garðinn og höfum gróðursett mikið af plöntum og
sett upp skjólmanir í kringum garðinn. Það er mikilvægt að fólki
finnist notalegt að koma í garðinn og að það vilji gjarna heim-
sækja hann hvort sem það á erindi í garðinn eða langar bara að
njóta umhverfisins og friðarins sem þar ríkir.“
Framkvæmdir enn í gangi
Stígar hafa verið lagðir um garðinn og til stendur að setja þar
niður bekki sem fólk getur tyllt sér á. Í miðjum garðinum er svo
fallegt minnismerki úr hraungrjóti og stáli sem hugsað er til
minningar um horfna. Hægt er að setja kerti í útskorin hólf
neðst í verkinu og uppi eru hugmyndir um að koma fyrir litlum
reit þar við hliðina á þar sem setja mætti upp skildi með nöfnum
horfinna ástvina. Lýsing í garðinum er falleg, en bæði sáluhlið
og kross eru upplýst og kviknar á ljósunum um leið og eitthvað
skyggir, t.d. ef dimmt él skellur á. Lýsing garðsins var í höndum
GH ljósa og segir Ómar samstarfið við þá hafa verið sérlega
ánægjulegt. „Lýsingin tókst mjög vel og kemur vel út, garðurinn
er hannaður þannig að sáluhlið, minnisvarði og kross mynda
nokkurs konar öxul í garðinum og þegar ljós kviknar á öllum
þremur stöðum má segja að það vísi leiðina í gegnum garðinn.“
Að sögn Ómars standa framkvæmdir enn yfir að hluta til, en að-
staðan verður enn bætt á næstu mánuðum, með uppsetningu
tenglakassa svo lýsa megi leiði og frekari frágang á garðinum.
„Við vonumst til þess að garðurinn verði staður sem fólk vilji
skoða og eiga góða stund á. Heimamenn hafa lýst yfir mikilli
4
Nýr kirkjugarður á Hvolsvelli
Ómar Halldórsson við sáluhliðið. Ljósmyndir: HGG Krossinn við enda garðsins gegnt sáluhliðinu.
Nýr kirkjugarður hefur verið tekinn í notkun á Hvolsvelli og
var hann vígður í lok sumars 2003. Ekki er algengt í dag að
nýir kirkjugarðar séu byggðir upp frá grunni, oftast er um að
ræða endurgerð eða stækkun eldri garða, en á Hvolsvelli hafði
eldri kirkjugarðurinn við Stórólfshvolskirkju fyllst og er nú
aðeins jarðsett í frátekin leiði þar.