Bautasteinn - 01.04.2004, Page 6

Bautasteinn - 01.04.2004, Page 6
Áhugavert verk Silli er 86 ára gamall í dag, en hann hætti störfum hjá Landsbankanum fyrir 16 árum þar sem hann hafði starfað í tugi ára sem útibússtjóri. Silli segist ekki hafa getað hugsað sér að setjast í helgan stein þegar formlegri starfsævi hans lauk og hóf hann þá að safna upplýsingum um kirkjugarða og legstaðaskrár. „Ég hafði verið safnaðarfulltrúi í um 20 ár og í gegn- um það starf komst ég að því að það var aðeins til eitt kort af kirkjugarðinum hér á Húsavík. Ég tók ljósrit af kortinu og geymdi í góðri geymslu í bankanum og þegar ég hætti að vinna tók ég kortið upp og fór að skoða það betur. Ég hafði rekið augun í misræmi í legstaðaskránni og þar með var áhugi minn kviknaður. Þetta var spennandi vinna, að grafa upp upplýsing- ar, leiðrétta og laga. En auðvitað vildi ég bara hafa eitthvað að gera því ég hef alltaf verið vinnuglaður og það hefur verið mitt mesta lán í lífinu.“ Silli vann skráninguna þannig að hann fékk upplýsingar frá þjóðskjalaverði, ljós- rit af öllum kirkjubókum yfir þá sem voru dánir frá 1921 og jarðsettir í nýja kirkju- garðinum á Húsavík. Þessum upplýsing- um var mjög ábótavant og segir Silli að í 6 Alltaf verið vinnuglaður – viðtal við Silla á Húsavík Sigurður Pétur Björnsson, eða Silli á Húsavík, eins og flestir þekkja hann er maður sem leit á eftirlaunin sem nýtt upphaf. Í stað þess að setjast í helgan stein hefur hann unnið að áhugamáli sínu undanfarin 16 ár og teiknað og skráð alla kirkjugarða í Þingeyjarpró- fastsdæmi og víðar. Silli er fæddur á Kópaskeri þar sem faðir hans starfaði sem læknir. Fjöl- skyldan fluttist hins vegar til Húsavíkur þegar Silli var ársgamall og þar hefur hann búið alla tíð síðan, utan nokk- urra mánaða er hann dvaldist í Bret- landi við starfsnám í Barclays banka. Silli barðist við erfið veikindi sem barn og gekk því ekki í skóla á þeim árum. „Ég fór ekki frá rúminu hennar mömmu fyrr en ég var orðinn sautján ára gamall, en ég var sjúklingur frá fimm ára aldri og fram að þeim tíma. Í rúm tvö ár, frá sjö til níu ára, lá ég rúmfastur í gifsi, en það var hluti af meðferð við berklum. Það var erfið lífsreynsla, en eftir að ég komst á stjá var ég ávallt heilsuhraustur og sem dæmi má nefna að ég sótti Rotary- fundi vikulega í fimmtíu ár og missti aldrei af fundi. Það er ekki fyrr en núna upp á síðkastið sem heilsan er farin að bila aftur,“ segir Silli þegar tíð- indamaður Bautasteins heimsótti hann í Læknishúsið á Húsavík í mars síðastliðnum. Sólin skein á Húsavík þegar við heimsóttum Silla, en þar hefur hann búið alla tíð. Sigurður Pétur Björnsson, betur þekktur sem Silli á Húsavík. Ljósm.: MBL

x

Bautasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bautasteinn
https://timarit.is/publication/2037

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.