Bautasteinn - 01.04.2004, Síða 8

Bautasteinn - 01.04.2004, Síða 8
8 Ánægjan að launum Alla þessa vinnu hefur Silli unnið á eigin kostnað og hann sér ekki eftir því. „Það var áhuginn sem dreif mig áfram og það að hafa eitthvað að gera. Þetta var virki- lega skemmtilegt verk og gaman að grúska í þessu. Ég hef lagt í töluverðan kostnað við þetta allt saman og margar ferðir, en ég sé ekki eftir því. Til dæmis fann ég 65 leiði sem ekki höfðu verið skráð á Einarsstöðum í Reykjadal bara með því að ferðast um og tala við ættingja. Það voru mín laun og svo hef ég hlotið miklar þakkir fyrir þessa vinnu frá ýmsu fólki. Ég kynntist líka mörgu góðu fólki og hafði gaman af því.“ Silli vinnur á gamla Machintosh tölvu sem einhverjum þætti nú betur geymd á safni en í skráningarvinnu, en Silli segir hana duga vel. „Það var samþykkt á hér- aðsfundi að gefa mér nýja tölvu en ég vildi ekki þiggja það og vinn enn á þá gömlu. Ég hef samt fylgst með þróun mála, t.d. vefnum gardur.is eins og ég get. Sá vefur er góður, en það er bara svo mikið verk óunnið hvað legstaða- skrárnar varðar. Víða eru þær ekki haldn- ar eins og vera ber og ég skora á athafna- fólk að feta í fótspor mín og safna þessum upplýsingum og skrá þær. Þetta er tilvalið hugðarefni t.d. fyrir eldra fólk sem er hætt að vinna og vill nýta tíma sinn til gagn- legra hluta. Það væri upplagt fyrir fólk að fara í þetta því víða er pottur brotinn. Kirkjubækurnar eru til og þar er hægt að finna upplýsingar til að vinna út frá, ég hef fengið mikið af ljósritum af slíkum bókum frá Þjóðskjalasafninu, auk þess að afla upplýsinga með viðtölum. Mín kynslóð hefur að vissu leyti brugðist hvað skrán- ingarnar varðar og ég held að það væri mun betra fyrir fólk sem dvelur t.d. á elli- heimilum að hafa eitthvað eins og þetta fyrir stafni. Þau ár sem ég hef unnið í þessu hef ég alltaf vitað að kvöldi þegar ég leggst til svefns hvað ég ætla að gera dag- inn eftir, en margt af gamla fólkinu sem dvelur á elliheimilunum fer bara í graut- inn klukkan níu og sest svo og bíður eftir hádegismatnum.“ -Þessi vinna hefur þá veitt þér mikla lífsfyllingu? „Já, tvímæla- laust, svo mikla að ég hef þurft að vera með sérstaka klukku sem hringir kl. 12 til að minna mig á hádegismatinn!“ Ljósmyndun, saumaskapur og umbrot Silli lætur legstaðaskráninguna ekki duga sér og hann hefur tekið mikið af myndum í gegnum tíðina. Hann var frétta- ritari Morgunblaðsins í 60 ár og í seinni tíð hefur hann gert nokkurs konar heim- ildarmyndir þar sem hann tekur lit- skyggnumyndir (slides) og skrifar texta við. Þannig hefur hann skráð nokkur sveitarfélög, byggðir og mannlíf. Hann tekur líka að sér að safna minningargrein- um og brjóta þær um og setja í möppur í stærðinni A4 eða A5 fyrir aðstandendur og segir hann það mjög svo þakklátt verk. Og ekki má gleyma því að hann er lista- maður líka og hefur saumað út margt fal- legt í gegnum tíðina. Núorðið saumar hann aðallega krosssaum og hlustar á út- varp á kvöldin því hann segist sjónvarps- maður lítill. Hann býr enn í húsinu sem hann ólst upp í og stofurnar prýða falleg húsgögn frá foreldrum hans, ömmu og afa. Mikið af bókum er að finna heima hjá Silla og ósjálfrátt gengur maður út frá því að Silli sé mikill bókaormur, en hann gerir lítið úr því: „Ég keypti mikið af bókum þegar ég var ungur og ætlaði að lesa þær þegar ég yrði gamall, en ég hef ekki komist í það ennþá,“ segir Silli og brosir út í annað. Hann er þó mikill áhugamaður um alls kyns töl og hefur safnað ýmsum slíkum bókum, t.d. Læknatali, Nemenda- tölum ýmiss konar og fleiru. Silli er svo sannarlega merkilegur mað- ur sem hefur lagt sitt af mörkum til samfé- lagsins. Hann er sannkallaður innblástur til fólks sem hefur lokið hefðbundinni starfsævi og vonandi verður vinna hans öðrum hvatning til dáða. Við kveðjum Silla og þökkum innlitið í forvitnilegan og fróðlegan heim þessa afkastamikla manns sem enn er að. Viðtal og myndir: Hulda G. Geirsdóttir Á þessari mynd sést vel hvernig Silli myndi vilja að allir heimagrafreitir yrðu merktir, með koparskilti á stein. Litla stúlkan á myndinni var á ferð með afa sínum, Birki Fanndal sem smellti af myndinni, en stúlkan heitir Athena Neve. Steinninn stendur við Grundarhól, en hjónin Bragi Benediktsson og Sigríður Hallgrímsdóttir á Grímsstöðum á Fjöllum eiga veg og vanda af þessari framkvæmd. Silli er listamaður í höndunum og saumar mikið út. Þessi stóll er hans verk. Legsteinagerðin Sólsteinar hefur flutt um set í kjölfar væntanlegra byggingarframkvæmda í landi Lundar í Kópavogi þar sem fyrirtækið hefur rekið starfsemi sína undanfarin átta ár. Sólsteinar eru nú staðsettir við Kársnesbraut 98 sem er vestar í Kópa- vogi og þar er hægt að koma og skoða úrval steina í rýmri og betri sýningaraðstöðu en áður var í boði. Að sögn Þóris Barðdal eiganda fyrirtækisins er áhersla lögð á persónulega þjónustu, en Sólsteinar eru lítið fjölskyldufyrirtæki sem Þórir setti á stofn eftir að hafa numið höggmyndalist erlendis og búið víða um heiminn. Í dag segir hann steinsmíðina hafa náð yfirhöndinni og listin sé nokkurs konar aukabúgrein. Sólsteinar leggja meginháherslu á granít, sem Þórir segir sterkasta og endingarbesta grjótið. „Við bjóðum upp á granít alls staðar að úr heiminum og erum með fjölbreytt úrval lita, gerða og forma. Ég hvet fólk til að koma og heimsækja okkur á nýja staðinn og skoða úrvalið. Við tökum vel á móti öllum.“ Einnig er hægt að skoða myndir af steinum á heimasíðu fyrirtækisins www.solsteinar.is. Sólsteinar á nýjum stað

x

Bautasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bautasteinn
https://timarit.is/publication/2037

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.