Bautasteinn - 01.04.2004, Page 14

Bautasteinn - 01.04.2004, Page 14
14 Eitt af því skemmtilegasta og margbrotnasta í viðfangsefnum listasögunnar er táknfræðin („orig- in and use of sym- bols“), sem teygir sig stundum aftur til frumalda menningarsög- unnar. Í könnun minni á táknfræði íslenzkra minningar- marka hef ég rekizt á ýmislegt sem á sér bæði rætur í fornnorrænni goðafræði og kristnum hefðum löngu liðinna alda. Með- al elztu kristinna tákna er þar að nefna fiskinn. Einföld og frumstæð mynd fisks er víða krotuð á veggi katakombanna fyrir utan Rómaborg þar sem ofsóttur hópur frumkristinna manna leyndist löngum. Orsökina fyrir tákni fisksins telja menn helzta þá, að úr bókstöfum gríska orðsins fiskur megi lesa upphafsstafina að orðun- um Jesus Christus Frelsari Sonur Guðs. Eftir því voru þeir kristnu uppnefndir pisculi, litlu fiskarnir. Í einu af mörgum ritum sínum víkur Karl Marx að tákni fisksins meðal frum- kristinna og hallast fremur að því að fisk- urinn tengist Kristi vegna fiskimannanna á Galíleuvatni, sem köstuðu burt eignum sínum og gengu snauðir og ofsóttir grýtta boðunarbraut Meistara síns og urðu í sannleika fyrstir kristinna manna. Fisks- táknið má sjá á einum – og allnýlegum- legsteini í Hólavallagarði, á legstað nr. F 3–24. Önnur tákn eru miklu auðlæsari, svo sem stundaglasið, sem vísar allajafna til hins skammvinna lífs manna á jörðu hér. Eitt hið elzta slíkra á íslenzkum minning- armörkum er á vönduðum legsteini í Garðakirkjugarði á Álftanesi, yfir þau hjónin sr. Einar Einarsson og Þóru Torfa- dóttur, en þau létust með eins árs millibili, 1690 og 1691. Miklu yngra er stórt tákn stundaglass í Hólavallagarði. Það er höggvið í undir- stöpul vandaðs járnkross yfir Guðríði Magnúsdóttur ljósmóður í reit P 503, en sú mæta ljósmóðir dó vorið 1864. Enn má nefna stundaglasið á hinum stóra marmarasteini yfir Finn biskup Jónsson í Skálholti, en hann er erlend smíð. Mest er þó við haft um tákn þetta á stórum og vönduðum legsteini Þórðar biskups Þorlákssonar í Skálholti, því þar er stundaglasið vængjað og tekur til „flugs tímans“, „tempus fugit“. Mjög skjöplast mér, ef lágmyndin til hægri við vængjaða stundaglasið á steini Þórðar biskups á ekki að sýna sáðmanninn sem sáir hinu góða korni Herrans, og leiðir sú hugmynd beint að næsta grafartákninu sem ég ætla að nefna hér en það er kornaxið. Kornaxið. Táknlega tekur kornaxið til orða Krists í guðspjalli Matteusar (13, 24– 30) um sáðkornið sem féll í góða jörð og bar margfaldan ávöxt: „En það sem sáð er í góða jörð merkir þann sem heyrir Orðið og skilur það.“ Vissulega hafa Íslendingar handleikið annan jarðargróða fremur en kornöx eða hveitibundini að hausti, en hafa haft þeim mun nær sér táknmál sjálfs trúarskálds þjóðarinnar er það ávarpar guð sinn í sálminum og biður: „Hveitikorn þekktu þitt, þá upprís holdið mitt, í bundini barna þinna“. Þrátt fyrir svo ljósa og fagra trúarmerk- ingu er vart að finna kornöx eða hveiti- stilka á íslenzkum legsteinum. Í Hólavalla- garði er aðeins til eitt dæmi, en það er á steininum með fisktákninu sem áður var nefnt, í reit F 3–24. Þar standa þrjú einföld kornöx í röð, einkar haglega höggvin – eða sandblásin í steininn. Önnur kristin grafartákn blasa hins vegar víða við í því mikla listasafni sem Hólavallagarður er, vínviðurinn og stund- um þrúgnaklasi, sem vísa til heilags sakramentis: „Ég er vínviðurinn, þér eruð greinarnar. Sá ber mikinn ávöxt sem í mér er og ég í honum“ (Jóh. 15, 5–6). Eins er liljustöngullinn algengur á vönd- uðum steinum, en hann merkir hreinleika Maríu guðsmóður og getnað Frelsarans fyrir náð heilags anda. Að lokum vildi ég bæta við einu leg- tákni, sem ber að fegurð forms og trúar- hugsjónar af flestum öðrum, en það er fiðrildið. Uppruna þess er að finna með Kríteyingum hinum fornu og merkir að sjálfsögðu endurfæðinguna, svo mörg og merkileg stig umbreytinga til lífsins sem ferill þess er, frá lirfu í púpu og loks hins litfagra og fleyga dýrindis sem fiðrildið er. Þótt varla sé að vænta þessa fagra tákns á minningarmörkum norðurhvels jarðar, segir listfræðingurinn Broby–Johansen samt í bók sinni, Heimslist – heimalist Nokkur fásén grafartákn eftir Björn Th. Björnsson Björn Th. Björnsson.

x

Bautasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bautasteinn
https://timarit.is/publication/2037

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.