Bautasteinn - 01.04.2004, Síða 16

Bautasteinn - 01.04.2004, Síða 16
16 Eins og áður hefur verið sagt frá í Bautasteini verður haldin norræn ráðstefna um málefni kirkjugarða og bálfarastofa dagana 24. - 27. ágúst 2005 í Reykjavík. Ráðstefnur þessar eru haldnar á fjögurra ára fresti og var hún síðast haldin í Åbo í Finnlandi í september 2001. Í lok þeirrar ráðstefnu var boðið til þinghalds á Íslandi síðsum- ars 2005 og fer nú að hilla undir að allt að 500 þátttakendur bregði sér yfir hafið og heimsæki okkur. Mikill áhugi er á ráð- stefnunni á hinum Norðurlöndunum og ekki vafi að hér verður gestkvæmt. Ráðstefnur þessar hafa verið haldnar frá 1985, þá í Finnlandi, 1989 í Stokkhólmi, 1993 í Noregi, Kaupmannahöfn 1997 og loks í Åbo 2001 eins og áður sagði. Aðili af hálfu Íslands er Kirkju- garðasamband Íslands og situr Þórsteinn Ragnarsson í stjórn norrænu samtakanna NFKK (Nordiska Forbundet för Kirkogårdar och Krematorier). Samið hefur verið við ráðstefnuskrifstofuna Congress um allt skipulag og undirbúning. Verður ráðstefnan haldin í Háskólabíói. Í bígerð er að bjóða þátttakendum frá Færeyjum og Grænlandi en fulltrúar þaðan hafa ekki áður setið ráðstefnur þessar. Dagskrá þingsins er í undirbúningi og fyrirhugað að vanda til verka. Fjallað verður sérstaklega um greftrun og útfarasiði á nor- rænum slóðum. Mun m.a. verða fjallað um íslenska greftrunar- siði fyrr á tímum og mun fulltrúi frá Þjóðminjasafninu verða einn af aðalfyrirlesurum þingsins. Á þing sem þetta eiga fjölmargir erindi. Má þar nefna stjórn- endur og starfsmenn kirkjugarða, garðyrkjufræðinga, arkitekta o.fl. Fyrirhugað er að hafa sýningu á ýmsum vörum og áhöldum sem kirkjugarðar nota og er sú sýning jafnframt í undirbúningi og verður hún á sama stað. Allur undirbúningur verður vandaður þannig að þingið verður öllum aðstandendum til sóma. Áhugi nágranna okkar er mikill, bæði á málefnum kirkjugarða á Íslandi og líka á landi og þjóð. Ísland og kirkjugarðar hérlendis hafa upp á margt að bjóða og getum við stolt sýnt gestum menningararfleið þá sem er í kirkju- görðum okkar. Þá er ekki að efa að starfsmenn íslenskra kirkju- garða geta mikið lært af samstarfsfólki frá öðrum löndum. Þá er bara að taka frá 35. viku ársins 2005 og mæta til þings dagana 24. - 27. ágúst. Norræn ráðstefna í Reykjavík árið 2005

x

Bautasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bautasteinn
https://timarit.is/publication/2037

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.