Bautasteinn - 01.04.2004, Page 20

Bautasteinn - 01.04.2004, Page 20
20 Kirkjugarðurinn í Hnífsdal stendur á svonefndum Lambavöll- um í landi Búðar og Heimabæjar, en þar fékk sóknarnefnd Hnífs- dalssóknar land undir garðinn árið 1926. Garðurinn var svo vígð- ur árið 1927 og hefur verið í notkun síðan. Árið 2000 var farið að skoða aðstæður í garðinum, en mjög lítið viðhald hafði verið þar um árabil og því var orðið brýnt að taka til hendinni. Í maí 2000 var svo ákveðið á sóknarnefndarfundi að ráðast í gagngerar endurbætur á garðinum. Settar voru fram hugmyndir að endurbótum og tilhögun á garðinum í samráði við Guðmund Rafn Sigurðsson hjá skipulagsnefnd kirkjugarða sem gerði uppdrátt sem samþykktur var af sóknarnefnd og í kjölfarið var Pétur Jónsson landslagsarkitekt fenginn til að vinna verkið á- fram og teikna. Umfangsmiklar framkvæmdir Framkvæmdir hófust árið 2002 og stóðu yfir fram á árið 2003. Aðalstígur frá hliði og að styttu við enda garðsins var steinlagður og allir hliðarstígar voru markaðir og lagfærðir. Vandað grjótbeð var sett upp meðfram veggnum beggja vegna styttunnar sem prýðir garðinn og er það hugsað til minningar um horfna. Þar geta aðstandendur helgað sér stein og jafnvel sett á þá minning- arskildi. Allir steinkantar sem ekki höfðu verið hirtir og voru lýti á garðinum voru brotnir niður og lággróðri var komið fyrir á grjótbeðum með veggjum garðsins. Einnig var skipt um sáluhlið og boga þar yfir sem og allar undirstöður undir grindverki sem er á sáluhliðsvegg garðsins. Þá voru allir veggir garðsins málaðir og vatnsbrunni komið fyrir. Tengingin við sjóinn Garðinn prýðir myndarleg stytta af sjómanni eftir Sigurlinna Pétursson og setur hún sterkan svip á garðinn. Styttan er til minningar um drukknaða sjómenn og var hún sett upp árið 1974, en gefandi styttunnar var Slysavarnafélagið í Hnífsdal. Kirkju- garðurinn stendur alveg niður við sjó og er útsýni frá garðinum afskaplega fallegt eins og sjá má af myndum. Að sögn Andrésar Guðmundssonar sem sat í sóknarnefnd þeg- ar framkvæmdirnar stóðu yfir tókst vel til með endurbæturnar og hafa heimamenn lýst yfir mikilli ánægju með breytingarnar. „Þetta var heljarinnar verk enda þurfti að skipta um jarðveg í öll- um göngustígum og afmarka þá, auk þess sem grjótbeðið var búið til. En útkoman er góð og gaman að sjá hvað garðurinn hef- ur tekið miklum stakkaskiptum.“ Það eru svo sannarlega orð að sönnu og er garðurinn virkilega fallegur og ættu ferðalangar sem leið eiga um svæðið að staldra við og skoða þennan snyrtilega kirkjugarð. Fré t t i r a f f ramkvæmdum Kirkjugarðurinn í Hnífsdal upplýstur að kvöldi til. Yfirlitsmynd af garðinum eftir framkvæmdirnar. Framkvæmdir á fullu, hér sést lega garðsins niður við sjó mjög vel. Hér sést styttan af sjómanninum og grjótbeðið með minningarstein- unum. Ljósmyndir: Halldór Sveinbjörnsson Kirkjugarðurinn í Hnífsdal endurbættur

x

Bautasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bautasteinn
https://timarit.is/publication/2037

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.