Skák


Skák - 01.04.1994, Qupperneq 6

Skák - 01.04.1994, Qupperneq 6
 Einar Trausti Óskarsson: Haustmót Taflfélags Reykjavíkur 1993 Síðustu ár hafa verið ár ýmis- konar breytinga í skákinni. Fyrir utan hina hatrömmu pólitísku baráttu, sem nú stendur milli FIDE, hins alþjóðlega skáksambands, og PCA (Pro- fessional Chessplayers’ Associ- ation), sambands Kasparovs og félaga, hefur hið almenna form skákmóta, alþjóðlegra jafnt sem annarra, verið mikið að breytast. Breytingamar hafa allar miðað í sömu átt, til styttingar umhugs- unartíma. Atskákin, hálftíma- skák, er orðin feikivinsæl, jafnt hjá skákmönnum sem skipu- leggjendum móta, og í kapp- skákunum er orðið sjaldgæft að hafa biðskákir. Mátti t.d. sjá fyrsta Reykjavíkurskákmótið án biðskáka nú í febrúar. Einnig hefur sú þróun orðið, raunar á lengri tíma, að opin mót eru í yfirgnæfandi meirihluta þeirra móta sem haldin eru. Flaustmót Taflfélags Reykja- víkur er eitt af fáum mótum sem eftir eru hér á landi þar sem teflt er í riðlum eftir styrkleika. I Flaustmótinu hafði einnig verið hið gamla biðskákafyrirkomu- lag, en nú í haust var því útrýmt og teflt þannig að keppandi fékk 1 'A klst. á 36 leiki og 45 mínútur til að ljúka skákinni eftir það. Valið er í riðla samkvæmt styrk- leika, þannig að þeir tólf sterkustu sem láta skrá sig í mótið fara í a-riðil, hinir tólf næstu í b-riðil og þannig áfram. Nú eru hins vegar komnar reglur sem breyta þessu örlítið. Sigur- vegari í hverjum af neðri tlokk- unum hlýtur sjálfkrafa rétt til þátttöku í næsta flokki fyrir ofan að ári, sbr. reglur um opinn flokk og áskorendaflokk í Skákþingi Islands. Þessi regla er góð hvatn- ing fyrir keppendur þá sem öðlast réttinn til að bæta sig nægilega fram að næsta móti til að eiga erindi í flokkinn fyrir ofan. Ut frá þessari reglu tefldi Olafur B. Þórsson í a-riðli. A-riðill Haustmótsins var prýði- lega sterkur. Þrír alþjóðlegir Arnlri /tss Grétarsson, Hellismaðurinn sem lætur sér fátt fyrir brjósti brenna: vann góðan sigur í a-riðli. meistarar tóku þátt, og margir hinna eru FIDE-meistarar. Hið óvenjulega við a-riðilinn var hinsvegar áberandi skortur skákmanna frá félaginu sem hélt mótið. Einungis þrír skákmenn af tólf tilheyra félaginu. A móti mátti þó benda á að nokkrir þeirra sem voru úr öðrum félögum eru fyrrverandi með- limir í þessum stóra skákklúbbi, og ber þar hæst þá tvo keppendur sem börðust um sigurinn, þá Sævar Bjarnason og Andra Ass Grétarsson. Toppbaráttan var jöfn og spenn- andi og voru fimm skákmenn í hnapp lengst af, þeir Andri Ass Grétarsson, Sævar Bjarnason, Guðmundur Gíslason, Halldór Grétar Einarsson og Björgvin Jónsson. Andra Ass gekk mjög vel í seinni hluta mótsins, og fyrir síðustu umferð stóð hann vel að vígi: var hálfum vinningi fyrir ofan næsta mann. Og þannig vildi til að Andri tefldi einmitt við þennan mann í síðustu umferð, en sá var enginn annar en Sævar Bjarnason AM. Andri var með 8 vinninga, en Sævar með l'A vinning og þurfti því að vinna til að hreppa 1. sætið. Eftir ónákvæma tafl- mennsku Andra í miðtaflinu fómaði Sævar manni og fékk yfirburðastöðu. Svo virtist sem endalokin væru í nánd, en 66 SKÁK

x

Skák

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.