Skák


Skák - 01.04.1994, Síða 30

Skák - 01.04.1994, Síða 30
Haukur Bergmann: 43. Helgarskákmótið í Keflavík / Helgi Olafsson sigurvegari Dagana 21.-23. janúar síðast- liðinn fór fram í Keflavík helgarskákmót á vegum Skákar, það 43. í röðinni. Þessi mót hafa fyrir löngu skipað veglegan sess í hugum skákmanna og verið kærkomin upplyfting fyrir skák- lífið úti á landi. Fyrsta helgarskákmótið fór einmitt frarn í Keflavík fyrir einum 14 árum og síðan hefur Jóhann Þórir haldið helgarskák- mót á flestum þéttbýliskjömum landsins. Þegar ég ræddi við Jóhann Þóri fyrir nokkium árum var einhver uppgjafartónn í honum, taldi 40 helgarskákmót vera nóg og rétt að aðrir tækju upp merkið. Sem betur fer hefur hann heldur breytt um tón, nú þegar eru að mér skilst hátt í tíu helgarskákmót í undirbúningi. Það var mikil tilhlökkun hjá ofanrituðum fyrir þetta mót. Gert var ráð fyrir mikilli þátttöku, bæði vegna nálægðar við Reykjavík, og eins er skákáhugi rnikill á Suðurnesjum um þessar mundir. En Vetur konungur gerði aldeilis strik í reikninginn, því að á morgni fyrsta mótsdags fór að blása all hressilega ásamt því sem það kyngdi niður snjó sem aldrei áður. Um miðjan daginn var nánast orðið ófært milli bæjarhluta í Keflavík. Jóhann var þó ekki á því að fresta mótinu og braust til Keflavíkur með hóp skákmanna. Þegar stundin var runnin upp var ljóst að þátttakan var ekki eins góð og búist var við. Hins vegar var mótið feikilega sterkt. Flestar helstu kanónur landsins voru mættar, fjórir stórmeistarar, þeir Helgi Ólafsson, Jón L. Arnason, Margeir Pétursson og Hannes Hlífar Stefánsson. Einnig þrír alþjóðlegir meistarar: Sævar Bjamason, Haukur Angantýsson og Þröstur Þórhallsson. Þá var helsta ungstirni landans, Helgi Ass Grétarsson, mættur til leiks. Jóhann Þórir hefur breytt helgar- skákmótunum í atskákform. Er það mjög til bóta. Það fást mun fleiri umferðir þannig að skák- mótið er ekki búið þó ein skák tapist. Einnig verður meiri spenna og sviptingar fyrir áhorf- endur. Spurning er hvort ekki sé reynandi að taka þetta form upp í fleiri mótum, t.d. Deildakeppn- inni. Þá væri hægt að taka keppnina á einni helgi í stað þess að slíta hana í tvennt eins og gert er í dag. Um mótið má segja að þar hafi gengið á ýrnsu eins og utan dyra. Var ljóst að menn ferðast ekki alla leið til Keflavíkur til að gera stutt jafntefli. I upphafi virtist sem sigur- Það er kannski ekki að undra þótt Helgi haldi þétt um höfuðið. Bragi tefldi forkunnar vel á þessu móti og vann m.a. Helga, Margeir og Andra Ass. Krafturinn dugðifram í sjöttu umferð, en þá fór að halla undan. Með átaki til jafnteflis í tveimur síðustu umferðunum náði hann 10. sæti sem erfrábœrt miðað við andstöðuna. 90 SKÁK

x

Skák

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.