Skák


Skák - 01.04.1994, Blaðsíða 31

Skák - 01.04.1994, Blaðsíða 31
vegarar síðustu tveggja móta, þeir Helgi Olafsson og Hannes, ætla að berjast um sigurinn. Eftir fjórar umferðir voru þeir einir efstir með fullt hús, en Jón L. og Margeir höfðu báðir tapað skák, Jón L. fyrir Jóni Ama Jónssyni og Margeir fyrir Braga Halldórs- syni. Bragi sýndi að sá sigur var engin tilviljun, því í sjöttu umferð lá Helgi Olafsson í valnum fyrir honum í hreint út sagt magnaðri skák. Var Bragi þá orðinn einn efstur. Hann náði þó ekki að fylgja þessu eftir og eftir átta umferðir var Margeir orðinn einn efstur eftir fimm sigra í röð, hálfum vinningi á undan Helga Ólafssyni. Var Ijóst að þeir myndu lenda saman í næstu umferð og sú skák hefði úrslita- þýðingu. Gaman var að fylgjast með þeim undirbúa sig fyrir skákina. Margeir settist strax niður við taflið og horfði fbygginn á taflreitina meðan Helgi gekk stórstígur fram og aftur um salinn þungt hugsi. Síðan hófst taflið og virtist Helgi ná heldur betra tafli. En Margeir varðist vel, stýrði skákinni út í endatafl og jafntefli virtist í sjónmáli. En Helgi var grimmur; eitt augnablik fékk hann tæki- færið, fómaði skiptamun og frípeð var allt í einu óstöðvandi. Eftir þenna sigur náði Helgi aftur forystunni og hélt henni örgugg- lega út mótið. Sigur Helga í mótinu var sanngjarn. Hann býr yfir miklum sigurvilja, tefldi af fítons krafti allt mótið og lét ekki á sig fá þó hann tapaði einni skák um miðbik mótsins. Er það af sem áður var þegar Helgi mátti ekki tapa skák þá fylgdu yfirleitt nokkur töp með. En hvað ætli Helgi sé búinn að sigra í mörgum helgarskákmótum? Hannes Hlífar hóf keppnina af miklum krafti en missti gjörsamlega þráöinn síöasta daginn eins og sjá má. Jón Arni náði góöum árangri þráttfyrir harösnúna andstöðu. Þeir fóru sitt hvora leiðina til verðlauna, urðu í 3. - 4. sœti sem er vel viðunandi. Margeir hóf mótið afmiklum krafti en missti þráðinn í lokin. Jón L. aftur á móti tók heljarmikinn endasprett eins og taflan ber með sér. Haukur (t.h.) tefldi nú á sínum œskustöövum og stóð sig með ágœtum. Hér teflir hann við Einar S. Guðmundsson. SKÁK 91

x

Skák

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.