Skák


Skák - 01.04.1994, Side 32

Skák - 01.04.1994, Side 32
Ríkharður Sveinsson, alþjóðlegur skákdómari, er fáséður við skákborðið. Hér brá hann samt vananum og tefldi með hreint ágœtum árangri. Andstœðingur hans er Stefán Þór Sigurjónsson er vakið hefur athygli sem mikið skákmannsefhi. Lokadagurinn reyndist honum samt háll eins og ýmsum öðrum að þessu sinni. Formaður Hellis, Gunnar Björnsson, stóð sig vel. Hér teflir hann við heimamanninn Olaflngason, sem hlutskarpastur varð heimamanna. Helgi Áss komst upp á milli stórmeistaranna og náði 2. sæti. Sannarlega glæsilegur árangur hjá þessum unga pilti, en þó alls ekki óvænt. Það er mitt mat að hann geti orðið okkar næsti stór- meistari, enda hefur hann allt til þess: mjög hæfileikaríkur, sókn- djarfur með eindæmum og baráttuskapið í lagi. Þá er hann geysiharður í tímahrakinu. Stórmeistararnir Margeir og Jón L. enduðu jafnir í 3. sæti. Sjálfsagt hafa báðir stefnt hærra í þessu móti. Þessi tímamörk virðast eiga vel við Margeir, en hann varð stuttu eftir mótið Islandsmeistari í atskák. Veilt voru nokkur aukaverðlaun eins og venja er á helgarskák- mótunum. Jón Árni Jónsson, Skákfélagi Akureyrar, hlaut verðlaun fyrir bestan árangur landsbyggðarmanns, Olafur G. Ingason fyrir bestan árangur heimamanns og Patrick Svans- son úr Skákfélagi Keflavíkur fyrir bestan árangur yngri kyn- slóðarinnar. Þá er ógetið sérstakra öldungaverðlauna, sem féllu í skaut Sturlu Péturssonar. Frekari úrslit vísast í töflu. Mótinu var síðan slitið með veislu í boði Keflavrkurbæjar sem var helsti styrktaraðili mótsins ásamt Sparisjóðnum í Keliavík, Keflavrkurverktökum og VISA ísland. Ég vil að lokum, fyrir hönd Skákfélags Keflavíkur, þakka Jóhanni Þóri fyrir hans framtak fyrir skákíþróttina í gegnum tíðina. Mót, eins og þetta helgar- skákmót, er sannarlega mikill fengur fyrir skáklífið á Suður- nesjum og það er von mín að ekki verði lengi að bíða eftir næsta helgarskákmóti hér suður með sjó. Skák nr. 7367 Hvítt: Margeir Pétursson Svart: Pálmar Breiðfjörð Slavnesk vörn 1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 e6 5. Bg5 Á helgarmótinu í Keflavík 1980 lék ég 5. e3 gegn Pálmari sem leiddi til venjulegrar Meran- vamar. 5. - Be7 6. e3 Rbd7 7. I)c2 Da5?! Þetta á ekki vel við eftir að svartur hefur leikið Bf8-e7. 8. cxd5 exd5 9. Bd3 h6 10. Bh4 b5 11. 0-0 Bb7 12. Re5 Hc8 13. Bg3 a6 14. Bg6!? Dæmigerður atskákarleikur. Hvítur sér að biskupinn er eitraður, en nú ætti svartur einfaldlega að hróka og biskupinn hefur farið fýluferð. 14. - Rxe5? 15. dxe5 fxg6 16. Dxg6t Kd8 17. exf6 Bxf6 92 SKÁK

x

Skák

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.