Skák


Skák - 01.10.1996, Blaðsíða 13

Skák - 01.10.1996, Blaðsíða 13
6. umferð Besta skák Hannesar sem fórnaði báðunr hrókum sínum fyrir sókn. Helgi Ass barðist hetjulega gegn stórmeistarakollegum sínum og fékk nokkrar slæmar en athyglis- verðar byltur. Þær verða honum væntanlega gott veganesti í fram- tíðarviðureignum. Skák nr. 7962 Hvítt: Hannes H. Stefánsson Svart: Helgi Ass Grétarsson Spánski leikurinn 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 d6 Steinitz-afbrigðið svokallaða er í miklu uppáhaldi hjá Helga Ass. Hann reyndi það nokkrum sinn- um í mótinu en fékk alltaf slæmar stöður. Afbrigðið er lrklega komið í slipp núna eftir þessa skák eða í úreldingu! 5. c3 Bd7 5. - f5 var oft leikið á millistríðs- árunum af snillingum eins og Aljékín og Keres. Þessi leikur hefur verið endurvakinn af m.a. Jusupov! Mér finnst leikurinn vera meira í samræmi við stíl Helga Áss svo e.t.v. verður málið skoðað í slippnum. 6. d4 Rge7 7. Be3 Rg6 8. h4! Bg4?! 8. h4 er oft svarað með 8. - h5! Stíll Helga Áss er skemmtileg blanda af dynamískri sókn eins og Aljékín tefldi eða af dynamískri vöm eins og Kortsnoj teflir. Helgi Áss fómar gjarnan peðum (eins og í skákinni við Jóhann Hjartarson) eða reynir að ná peðum á kostnað stöðu sinnar eins og í þessari skák. Baráttugleði sem sagt. 9. Rbd2 Be7 10. Bxc6t bxc6 11. Da4! Áskorun sem er tekið. 11. - exd4 12. cxd4 Bxh4!? Varkárari sálir hefðu leikið 12,- Dd7 og haldið sér fast! 13. Rxh4 Rxh4 14. Hxh4! Dxh4 15. Dxc6t Ke7 16. Dxc7t Bd7 Hannes hefur fórnað skiptamun, en lætur ekki þar við sitja. 17. Rc4! Dhlt Það verður ekki aftur snúið, 17.- Df6 18. Rb6 með slæmu hugar- fari! Hótar hrók, biskup og skák á d5! 18. Kd2 Dxal 19. Dxd6t Ke8 19. - Kd8 20.Dd5 Hc8 21. Dg5t með jarðarfararsókn. 20. Bg5 f6 Er hvíta sóknin að fjara út? Nei alls ekki, Hannes leikur nú sjálf- sögðum leik sem hann varð að hafa séð fyrir þegar hann byrjaði á þessum ósköpum! Vel gert! 21. Bxf6! gxf6 22. Dxf6 Bb5 Hvítur hótaði máti með Rd6. Hinn möguleikinn 22. - Bc8 23. Dxh8t Ke7 24. Dxh7t Kf6 er vita vonlaus vegna þess að svörtu mennirnir eru ekki einu sinni áhorfendur að því sem fer fram. 23. Dxh8t Ke7 24. Dxh7t Kd8 25. Dg8t Kc7 26. Dxa8 Bxc4 27. Da7t Kd8 Fimm peð gegn biskupi er einum of mikið. Þar fyrir utan er svarta drottningin úr leik. Eftir stendur að þoka hvíta kónginum og peð- um hans inn í herbúðir svarts. Það vefst ekki fyrir Hannesi. SKÁK169

x

Skák

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.