Skák


Skák - 01.10.1996, Blaðsíða 32

Skák - 01.10.1996, Blaðsíða 32
Kæri ritstjóri! Undirritaður óskar eftir að blaðið birti eftirfarandi svargrein við bréfi Asgeirs Överbys sem birtist í 4. tbl. Skákar. Varðandi frásögn Ásgeirs af lok- um skákarinnar óska ég eftir að grein Margeirs Péturssonar stór- meistara sem birtist í Mbl. 12. maí sl. verði birt óstytt. Það verð- ur að segjast eins og er að frásögn þáverandi varaforseta S.I. lýsi at- vikinu mjög vel. Undirritaður vill taka fram að hann sá lok skákar Matthíasar og Jóns. í kringunr borðið voru u.þ.b. 15-20 manns og að halda því fram að ég hafi ekki séð atvikið er einfaldlega rangt. Ekki tók ég eft- ir hverjir aðrir voru að horfa á skákina, enda þegar ég horfi á skákir horfi ég á borðið sjálft, ekki áhorfendur! Að halda því fram fullum fetum að ég hafi ekki verið þarna stenst því engan veginn. Varðandi lok skákar Matthíasar Kjelds og Jóns Björg- vinssonar vill undirritaður taka fram: Matthías Kjeld gerði enga athuga- semd við niðurstöðu mína. Ólafur H. Ólafsson formaður og liðstjóri D-sveitar T.R. hefur enga athugasemd gert og telur mig hafa staðið rétt að málum. Ásgeir sendi erindi varðandi þetta atvik til stjórnar S.í. Stjórn S.í. úrskurðaði að rétt hafi verið stað- ið að málum. Ólafur S. Ásgrímsson alþjóðlegur skákdómari og yfirdómari keppn- innar er sammála niðurstöðu minni. Allir þeir skákdómarar sem ég hef rætt við eru sammála þeirri túlk- un minni að þegar annar keppandi fellur á tíma lýkur skákinni. Skiptir þar engu máli hvort þeir semji síðar jafntefli. í lögum FIDE segir (grein 10.14): „The game is lost by a player who has not completet the prescribed number of moves in the alloted time. “ 1 lauslegri þýð- ingu minni: „Skák er töpuð þegar skákmaður hefur ekki lokið leik- jum sínum innan tilskilins tíma”. Aðalatriði málsins er þó það að Matthías Kjeld féll á undan, því hefur enginn mótmælt og tapaði því skákinni. Sú frásögn að ég hafi talað við Ólaf Ásgrímsson alþjóðlegan skákdómara og lagt hart að hon- um að breyta úrslitunum norðan- mönnum í vil er heldur ekki rétt. Getur Ólafur staðfest það. Undir- ritaður bar ekki einu sinni dóminn undir Ólaf. Ástæðan fyrir því er sú að ég tel mig hafa það mikla reynslu í skákstjórn að vita að þegar annar keppandi hefur fallið á tíma sé skákinni lokið. Eg er reyndar sammála Ásgeiri um að það sé vart verjandi að að- eins tveir skákdómarar séu í jafn fjölmennu móti. Reyndar í þess- ari tilteknu umferð, síðustu um- ferð Deildakeppninnar var Ólafur aðeins einn, sem er auðvitað óviðunandi. Vandamálið er hins vegar það að ílestir skákdómarar landsins sitja að tafli í Deildakeppninni. Því hef- ur sú venja komist að biðja okkur, sem einhverja reynslu höfum að skákdómarastörfum, að aðstoða dómarana í tímahrakinu. Höfum við flestir brugðist jákvætt við því. í þessu tilviki bað Ólafur Ásgríms- son mig um að vera skákstjóri í skák Jóns og Matthíasar og fylgj- ast með lokum skákarinnar. Þess má geta að stjórn S.I. beitti sér fyrir því skv. beiðni minni og fleiri að fjölga klukkudómurum í Deildakeppninni sem hófst í haust og tókst það vonum framar og voru nú aldrei færri en 3 í sjálfu tímahrakinu. Einnig vil ég leiðrétta það að ég er ekki formaður Hellis! Það eru orðin tæp tvö ár síðan Andri Áss Grétarsson tók við því starfi. Ásgeir Överby á þakkir skildar fyrir að reyna að benda á það sem betur má fara. Ég get samt full- vissað hann um að ég dæmdi samkvæmt lögum og að ekki lágu nein annarleg markmið á bak við þá dómgæslu eins og skilja má á grein Ásgeirs. Að lokum hvet ég alla að skoða grein Margeirs, því lok skákarinn- ar voru einnig skrautleg á sjálfu taflborðinu! Þakka fyrir mig og bið áskrifendur Skákar vel að lifa. Gunnar Björnsson 188 SKÁK

x

Skák

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.